Morgunblaðið - 24.10.2009, Síða 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TILLAGA félags- og trygginga-
málanefndar Alþingis um breyt-
ingu á lögum um tekjuskatt var aft-
urkölluð á síðustu stundu í gær.
Breytingin átti upphaflega að vera
hluti af björgunarfrumvarpi Árna
Páls Árnasonar félagsmálaráð-
herra um almenna greiðslujöfnun
og fleira sem varð að lögum í gær.
Í tillögunni fólst að bönkum yrði
heimilað að afskrifa lán fólks að
hluta eða í heild, án þess að þær af-
skriftir myndu leiða til skattskyldu,
eftir núgildandi ákvæðum laga um
tekjuskatt. Í tillögunni var þó tekið
fram að ákvörðun um slíka niður-
fellingu skyldi „taka mið“ af því
hvort til væru eignir eða trygg-
ingar upp í skuldina eða ekki, en
það mat lagt í hendur viðkomandi
banka eða kröfueiganda.
Eins og gefur að skilja gæti það
ferli orðið nokkuð viðkvæmt ef um
væri að ræða núverandi eða fyrr-
verandi starfsmann viðkomandi
fjármálastofnunar og launþega-
samband væri þeirra á milli.
Skattfrelsi fyrir starfsmenn
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur gætt þrýstings
frá tilteknum fulltrúa gamla Kaup-
þings, á það að skilyrði um skatt-
leysi við niðurfellingu skulda verði
gerð rýmri, en þau eru ströng eins
og lögin um tekjuskatt eru í dag.
Tilgangur þess ku vera sá að
starfsmenn sem tóku mikla áhættu
með lántöku, til dæmis kúlulánum
til hlutabréfakaupa, fái ekki á sig
skattskyldu við væntanlega nið-
urfellingu skulda. Mun þessi
fulltrúi hins fallna banka hafa
starfað þar sem lögfræðilegur ráð-
gjafi fyrir hrun en nú starfa á end-
urskoðunarskrifstofu.
Þingmenn vildu engan asa
Þessi fyrirhugaða breyting á lög-
um um tekjuskatt var sem fyrr
segir afturkölluð og henni vísað til
efnahags- og skattanefndar þings-
ins til frekari meðferðar. Þing-
mennirnir Þór Saari, Hreyfing-
unni, og Pétur H. Blöndal,
Sjálfstæðisflokki, gerðu athuga-
semdir við að þessu flókna máli
væri hraðað í gegnum þingið.
Þór Saari velti því meira að segja
upp í ræðustól Alþingis í gær hvort
hin mikla samstaða sem tekist
hefði í félags- og trygginga-
málanefnd um málið stafaði af því
að nefndarmenn sjálfir ættu von á
stórfelldum niðurfellingum skulda í
kjölfarið.
Andaði þá köldu til hans úr þing-
salnum og nefndarmenn hneyksl-
uðust mjög. Þór bætti því þá við að
best væri að taka af öll tvímæli um
að þannig væri einmitt ekki í pott-
inn búið, hann væri ekki að væna
þingmenn um sérhagsmunagæslu.
Þarf að stoppa betur í götin
Í samtali við Morgunblaðið segir
Pétur að aðgæta þurfi miklu nánar
hvort í breytingunum séu gloppur
sem hægt sé að misnota, til dæmis
með því að færa hagnað úr fyr-
irtækjum yfir í dótturfyrirtæki, eða
öfugt, til að forðast skattskyldu
vegna afskrifta. „Sú snilld sem
menn hafa hannað hér á und-
anförnum árum, í alls konar æv-
intýrum, gefur manni tilefni til
þess að skoða þetta miklu nánar,“
segir Pétur.
Morgunblaðið/Golli
Kippt út á síðustu stundu
Myndi óbreytt leiða til skattfrjálsra afskrifta á áhættusömum góðærislánum
Andstætt tilgangi frumvarps félagsmálaráðherra en tilkomið vegna þrýstings
BÆJARSTJÓRI Vesturbyggðar
hefur afhent samgönguráðherra und-
irskriftir þar sem skorað er á hann að
sjá til þess að fallið verði frá fyr-
irætlun um fækkun ferða Breiða-
fjarðaferjunnar Baldurs. Undir-
skriftum var safnað síðustu vikur
meðal íbúa og farþega Baldurs.
Í skjalinu, sem Ragnar Jörundsson
bæjarstjóri afhenti, kemur fram að
Baldur sé oft á tíðum eina samgöngu-
leið íbúanna sem og leið fyrir vöru-
flutninga.
Kristján L. Möller samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra tók við
áskoruninni. Ráðherra segir að
samningur við Sæferðir um styrki
vegna siglinga Baldurs verði fram-
lengdur en ekki í óbreyttri mynd.
Verið sé að fara yfir öll mál varðandi
ríkisstyrktar samgöngur og fleira hjá
Vegagerðinni. Niðurstaða liggi ekki
fyrir í þeim efnum en ljóst sé að Bald-
ur muni sigla áfram yfir Breiðafjörð.
Ferðum
Baldurs
fækki ekki
Ráðherra: Samn-
ingur framlengdur
Héraðsdómur Suðurlands hefur
dæmt þrjá karlmenn i skilorðsbundið
fangelsi, tvo í mánaðar fangelsi og
einn í fjögurra mánaða fangelsi fyrir
þjófnaði, þar á meðal úr verslun við
Geysi í byrjun október. Mennirnir
voru einnig dæmdir til að greiða
verslunum samtals 450 þúsund krón-
ur í bætur.
Mennirnir þrír voru dæmdir fyrir
að stela vörum úr verslun Bónuss í
Reykjanesbæ í september og fyrir að
stela, jökkum, dúnúlpu og flíspeysum
úr ferðamannaversluninni við Geysi,
samtals að verðmæti 427.500 krónum.
Allir hafa mennirnir hlotið dóma
áður hér á landi. Sá sem þyngsta
dóminn hlaut rauf skilorð eldri dóms
sem hann hlaut fyrir fíkniefnabrot.
Tekið var hins vegar tillit til þess, að
mennirnir játuðu vafningalaust brot
sitt.
Dæmdir
fyrir þjófnaði
AÐSTOÐARSKÓLASTJÓRAR á
átta leikskólum Reykjavíkurborgar,
sem ekki eru jafnframt deild-
arstjórar, munu taka við störfum
deildarstjóra fyrir árslok 2010. Ing-
unn Gísladóttir, starfsmannastjóri
leikskólasviðs Reykjavíkur, sagði
þetta eiga við um nokkra tveggja og
þriggja deilda leikskóla. Borgin rekur
78 leikskóla og um helmingur þeirra
er 2-3 deilda. Nú eru aðstoðar-
skólastjórar um helmings minni leik-
skóla jafnframt deildarstjórar. Alls
starfa yfir 1.800 manns við leikskóla
borgarinnar.
Ingunn sagði að með þessari breyt-
ingu væri verið að hagræða hjá leik-
skólasviði og gera stjórnun einfaldari
og skilvirkari. Starfsmannafjöldi yrði
óbreyttur en stjórnunarstöðum
mundi lítillega fækka. Hún sagði að
reynt yrði að finna sem „mýksta lend-
ingu“ í hverju tilviki.
Ingunn taldi það vera algengt hjá
öðrum sveitarfélögum að aðstoð-
arskólastjórar 2-3 deilda leikskóla
væru jafnframt deildarstjórar. Hún
sagði að aðstoðarskólastjórarnir
mundu eftir sem áður sinna stjórn-
unarskyldum sínum.
Björg Bjarnadóttir, formaður Fé-
lags leikskólakennara, sagði að und-
anfarin ár hefði félagið lagt áherslu á
að auka vægi stjórnunar í leikskólum.
Það hefði m.a. verið gert með því að
losa aðstoðarskólastjóra úr störfum
deildarstjóra.
Björg sagði að aðstoðarskólastjór-
ar hefðu ekki eingöngu sinnt stjórnun
heldur t.d. einnig sérkennslu og af-
leysingum. Hún sagði deildarstjóra
sem láta af því starfi og er boðið starf
leikskólakennara í staðinn verða fyrir
kjaraskerðingu. Hún gæti numið 25-
30 þúsund krónum á mánuði. Björg
sagði töluvert marga hafa haft sam-
band við félagið vegna þessara breyt-
inga. gudni@mbl.is
Hagrætt verð-
ur í leikskólum
Aðstoðarskólastjórar líka deildarstjórar
Morgunblaðið/Ómar
Leikskóli Víða þarf að hagræða.
YFIRLÝSTUR tilgangur frumvarps félagsmálaráðherra er sá að að-
stoða heimilin og fyrirtækin í landinu við að ráða við afleiðingar
bankahruns og gjaldeyriskreppu. Ekki að ráðast gegn skuldavanda
þeirra sem tóku of mikla áhættu í fjármálabraski á uppgangstím-
unum. Það skýtur því skökku við að hvergi hafi í breytingartillögu fé-
lags- og tryggingamálanefndar verið talað um hámarksupphæðir lána
sem megi afskrifa án þess að skattskylda myndist á móti.
Embættismaður sem rætt var við í gær telur, að ef þetta hefði orðið
að lögum, þá hefði verið hægt að afskrifa lán allra þeirra sem tóku sér
kúlulán til hlutabréfakaupa í góðærinu, án þess að það leiddi til tekju-
skattskyldu á móti. Félags- og tryggingamálanefnd hafi fengið til sín
hugmyndir um lagabreytingar sem ekki hafi verið byggðar á nógu
hlutlausum grunni.
Tilgangurinn var sá að hjálpa heimilum
Stjórn sjóðsins velur höfund úr hópi um-
sækjenda sem býðst eins árs samningur við
Borgarleikhúsið. Laun, sem eru greidd mán-
aðarlega, taka mið af starfslaunum listamanna.
Skáld skal þegar hafa sýnt árangur við skáld-
skap en reynsla af leikritun er ekki skilyrði.
Skáldið fær aðstöðu í leikhúsinu, vinnur þar á
samningstímanum og verður hluti af starfs-
liði Borgarleikhússins og mun njóta aðstoðar,
leiðsagnar og stuðnings leikhússtjóra og leik-
listarráðunauta. Stefnt er að því að velja skáld
sem er líklegt til að njóta góðs af aðstöðu sinni
hjá leikhúsinu.
Unnið skal að ritun leikverks á tímabilinu með
uppsetningu í huga, auk þess sem skáldið
kynnir sér leikhúsformið. Stefnt er að því að
leikverk, eitt eða fleiri, sem unnin eru á sam-
ningstíma, verði sviðsett í Borgarleikhúsinu.
Þetta er þó ekki skilyrði.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál og öll gögn endursend umsækjendum að
loknu vali.
Umsóknir skulu stílaðar á
Borgarleikhúsið / Leikritunarsjóður
Leikfélags Reykjavíkur
Listabraut 3, 103 Reykjavík
fyrir 20. nóvember 2008.
Leikritunarsjóður LR: Fyrsta leikskáld leikritunarsjóðsins, Auður Jóns-
dóttir, var ráðin í upphafi þessa árs. Meðal markmiða sjóðsins er að
efla nýsköpun og fjölbreytni í íslenskri leikritun, auka vægi leikritunar
í samfélaginu og stuðla að því að hún njóti virðingar í samfélagi lista.
Markmiðið er að kynna hæfileikarík skáld eiginleikum og töframætti
leikhússins og hvetja þau til að skrifa fyrir leiksviðið.
Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur
auglýsir eftir umsóknum um starf
leikskálds Borgarleikhússins árið 2010