Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
VIKA 43 – vímu-
varnarvikan beinir nú
sjónum að kannabis-
neyslu. Foreldrar fá
þau skilaboð frá sér-
fræðingum í vímu-
vörnum að hægt sé að
tala um kannabis sem
vímuefni unga fólks-
ins og mikilvægt sé
að leggjast í forvarnir
til að bjarga komandi kynslóðum.
Við foreldrar megum ekki sofna á
verðinum og mikilvægt er að for-
eldrar þekki þau einkenni sem
koma fram hjá unglingum sem eru
að byrja að neyta ólöglegra kann-
abisefna. Unga fólkið þarf á stuðn-
ingi okkar að halda svo þau hefji
ekki neysluna og mikilvægt er að
grípa fljótt inn í ef börn eru að
leiðast út í neyslu. Sérstaklega
þarf að beina sjónum
að 16 til 18 ára ung-
lingum í framhalds-
skólum. Niðurstöður
rannsókna sem hafa
verið gerðar hér á
landi á líðan og hög-
um ungmenna sýna
fram á að eftirlit for-
eldra, stuðningur
þeirra, magn tíma
sem varið er með
börnunum og tengsl
foreldra við aðra for-
eldra og vini ung-
mennanna draga úr líkum á vímu-
efnaneyslu og auka líkur á góðum
námsárangri. Samstarf foreldra í
framhaldsskólum hefur tekið á sig
nýja mynd síðan ný menntastefna
leit dagsins ljós og menntalög
tóku gildi í júní 2008. Þar er gert
ráð fyrir foreldraráðum í fram-
haldsskólum og þar starfa nú sér-
stakir forvarnarfulltrúar. Sam-
starfið þarf öðru fremur að
einkennast af gagnkvæmri upplýs-
ingamiðlun og er það því fagn-
aðarefni að foreldrar fái send vef-
rit eins og Verzlunarskólinn hefur
gert undanfarið. Verzlunarskólinn
sýnir með þeim hætti frumkvæði
og leggur áherslu á gott upplýs-
ingastreymi til foreldra og for-
ráðamanna nemenda sinna. Slíkt
framtak er til fyrirmyndar fyrir
alla framhaldsskóla landsins. Það
er einmitt á fyrstu árum í fram-
haldsskóla sem hætta er á að for-
eldrar gefi eftir eða missi tökin á
börnum sínum, sérstaklega þegar
horft er til niðurstaðna kannana
sem gerðar hafa verið á neyslu-
venjum 16 til 18 ára unglinga hvað
varðar áfengisdrykkju og neyslu
kannabisefna. Með virkri og mark-
vissri þátttöku foreldra í fram-
haldsskólastarfinu felast sókn-
arfæri fyrir foreldra til að hafa
áhrif á almenna stefnumótun í
skólamálum, þar á meðal
forvarnarmálum.
Hlutverk foreldraráða í fram-
haldsskólum er meðal annars að
styðja við skólastarfið, huga að
hagsmunamálum nemenda og efla
samstarf foreldra og forráða-
manna ólögráða nemenda í sam-
starfi við skólann. Með samstarf-
inu er hægt að halda uppi öflugu
og góðu forvarnarstarfi og hvetja
foreldra til að sýna samstöðu og
halda ekki eftirlitslaus samkvæmi,
leyfa ekki áfengi fyrir viðburði á
vegum skólans í heimahúsi og
samkvæmum fyrir skólaböll, svo
dæmi séu tekin.
Æskan leggur grunninn að
framtíð hvers einstaklings. Þá
mótast mikilvægar forsendur lífs-
sýnar, þroska og heilbrigði síðar á
ævinni. Líkt og máltækið segir;
lengi býr að fyrstu gerð. Ungt
fólk er veikara fyrir neyslu vímu-
efna en fullorðnir og rannsóknir
sýna að því seinna sem ungt fólk
hefur neyslu áfengis og tóbaks því
minni líkur eru á að það leiðist út
í neyslu vímuefna, hætti í skóla
eða lendi í öðrum erfiðleikum. Við
vitum að börn og ungmenni eru
berskjölduð fyrir áróðri um neyslu
áfengis og annarra vímuefna. Með
öflugu foreldrasamstarfi, sam-
starfi við skólayfirvöld, nemenda-
félög, fræðslu, upplýsingastarfi og
hvatningu til heilbrigðra lífshátta
er hægt að sporna gegn vímuefna-
neyslu ungmenna. Foreldrar eru
auðlind í skólastarfi og með því að
taka þátt í því verndum við það
dýrmætasta sem við eigum, börnin
okkar.
Samstarf foreldra, nemenda og
skólayfirvalda skilar árangri
Eftir Sjöfn
Þórðardóttur » ...því seinna sem
ungt fólk hefur
neyslu áfengis og tóbaks
því minni líkur eru á að
það leiðist út í neyslu
vímuefna, hætti í skóla
eða lendi í öðrum erf-
iðleikum.
Sjöfn Þórðardóttir
Höfundur er formaður Heimilis og
skóla – landssamtaka foreldra.
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
LANGALÍNA – GLÆSILEG ÚTSÝNISÍBÚÐ
Glæsileg fullbúin 129,5 fm 3ja herbergja íbúð við sjávarsíðuna ásamt stæði í bílageymslu.
Mikið af innfeldri halogenlýsingu er í loftum. Allar innréttingar eru úr eikarspón. Gólfefni eru
eikarparket og flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Fallegt sjávarútsýni. V. 38,9 m. 5114
SIGTÚN – GLÆSILEGT SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Glæsilegt 480 fm skrifstofuhúsnæði auk mikillar og glæsilegrar sameignar. Húsið stendur á
mjög góðum og rólegum stað en örstutt frá aðalumferðaræðum. Góð bílastæði og gott að-
gengi. Húsnæðið er innréttað á vandaðan hátt og glæsilegt. Það skiptist þannig: stór mót-
taka, 12 skrifstofur, mjög stórt fundarherbergi, skjalgeymsla, ljósritunarherbergi, eldhús og
snyrtingar. Allar nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali eða Magn-
ús Geir Pálsson sölumaður. 4525
REYKJAVÍKURVEGUR 29 - UPPGERÐ ÍBÚÐ
Góð 66,6 fm 3ja herbergja íbúð í Reykjavík. Íbúðin er öll hin glæsilegasta með mikilli lofthæð.
Mikið endurnýjuð íbúð á góðum stað í hjarta Reykjavíkur. V. 19,9 m. 4965
FROSTAFOLD 62 – FALLEG ÍBÚÐ
Falleg, björt og vel skipulögð 100,4 fm 3ja - 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ á efri hæð með
glugga á þrjá vegu í fjórbýlishúsi innst í botnlanga. Sérinngangur. Íbúðinni fylgir steypt bíl-
skúrsplata. V. 22,8 m. 5047
OPIÐ HÚS Á MÁNUDAG FRÁ KL. 17:30 - 18:30
Bankastræti – vönduð íbúð Um er að
ræða 120 fm íbúð sem sem er búið að skipta
upp í tvær einingar. Íbúðin er ca 80 fm og við
hlið hennar er vinnustofa sem mætti breyta í
íbúð.Íbúðin skiptist í stóra stofu (auðveld væri
að stúka herbergi af stofu) samliggjandi eld-
hús, svefnherbergi og baðherbergi. V. 28,5
m. 5109
Bergstaðastræti – upprunaleg Þriggja
herbergja íbúð sem bíður upp á mikla mögu-
leika. Íbúðin þarfnast endurnýjunar (þ.e. er
upprunaleg). Íbúðin skiptist þannig: stofa, tvö
svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, baðher-
bergi, snyrting og forstofa. Í kjallara fylgir
sameignar þvottahús og geymsla. V. 14,9 m.
5122
OPIÐ HÚS
MALTAKUR 9 – ÖRFÁAR ÍBÚÐIR ÓSELDAR!
Stórglæsilegar og vel hannaðar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað á Arnarneshæðinni. Í íbúð-
unum eru stór og björt rými. Svefnherbergi eru með innbyggðum fataherbergjum og mörg
með sér baðherbergjum. Sannkallaðar hjónasvítur. Góð herbergi og rúmgóðar stofur með
sambyggðu eldhúsi á móti suðri. 4672
OPIÐ HÚS Á MÁNUDAG FRÁ KL. 17:30 - 18:30
OPIÐ HÚS
ÁRAKUR 4 – GARÐABÆR
Einstaklega glæsileg fullbúiÐ 5 herbergja 232 fm raðhús í þessu nýja hverfi. Húsin skiptast í
anddyri, bílskúr, 2 baðh., 2 stofur, eldhús, 3 svefnh., þvottah. og geymslu. Mögulegt að
hafa allt að 5 svefnherbergi. Einnig er möguleiki á að fá húsin styttra á veg komin, þ.e. tilb. til
innréttinga. V. 51,6 m. 7824
OPIÐ HÚS Á MÁNUDAG FRÁ KL. 17:30 - 18:30
OPIÐ HÚS
Kaplaskjólsvegur – mikið endurn.
2ja herb. Falleg mikið endurnýjuð 2ja her-
bergja íbúð á 3.hæð í mjög góðu húsi við
Kaplaskjólsveg. Nýlegt eldhús, baðherbergi
og fl. Suðvestur svalir með mjög góðu útsýni
bæði á Keili og eins út yfir Seltjarnarnesið.
Parket, flísal. baðherb. m. tengi f. þvottavél.
Mögul. að yfirtaka hátt lán. V. 17,4 m. 5124
Vesturhús – neðri hæð Mjög vel skipu-
lögð vel staðsett 2ja herbergja íbúð á 1. hæð
í tvíbýli í lokuðum botnlanga efst í Grafarvog-
inum. Íbúðin er 59,9 fm. Sérinngangur, park-
et, endurnýjað baðherbergi. Sérgarður. Laus
mjög fljótlega. V. 16,9 millj. 5129
Sandakur – gott verð Sérlega vel skipu-
lagt og fallegt raðhús á skjólsælum stað á
miðri Arnarneshæðinni. Tvílyft húsið er glæsi-
legt ásýndum þar sem það er ýmist klætt áli
eða harðviði. Húsið snýr á móti suð- suð-
vestri þannig að það nýtur sólar allan daginn.
Húsið er selt og afhent tilbúið til innréttingar.
V. 41,0 - 43,0 m. 8071
Stigahlíð – Glæsilegt uppgert einbýl-
ishús. Til leigu 434,7 fm einbýlishús. Húsið
er á þremur hæðum og er nánast allt endur-
nýjað. Lóðin er frágengin með timburverönd
út frá eldhúsi. Gólfefni eru parket, flísar og
marmari. Mikið hefur verið lagt í innréttingar
og tæki og er húsið einkar glæsilegt að inn-
an. Laust frá áramótum. Leiguverð kr.
400.000,- 5111
Vatnsholt 10 – Efri sérhæð Hæðin
skiptist þannig: 2 rúmg. stofur með fallegum
arin, sjónvarpsherbergi, stór skrifstofa með
setustofu. Fjögur svefnherbergi (skv teikn-
ingu), ný innréttað eldhús, baðherbergi,
snyrting, þvottahús og geymsla inn af því.
Rúm forstofa og sérhannað fatahengi í for-
stofu. Íbúðin er öll lögð með gegnheilu park-
eti. Stórar svalir. Eign í algerum sérflokki.
4053
Laugarnesvegur til leigu með auka-
herbergi. Góð 3ja herb. íbúð á 1. hæð.
Íbúðinni tilheyrir auk þess herbergi í kjallara
með möguleika á útleigu, herberginu fylgir
aðgengi að snyrtingu með sturtu. Rúmgóð
stofa með suðursvölum. Parket og flísar á
gólfum. Nýlega standsett baðherbergi. Upp-
gert eldhús. V. 22,9 m. 7590
Norðurhella – nýtt hús Nýtt hús á góð-
um stað. Húsið sem er einingahús skiptist í
fjórar iðnaðar-, verslunar- eða skrifstofuein-
ingar sem eru mjög bjartar og stendur húsið
mjög vel. Húsið er á tveimur hæðum og af-
hendist í núverandi ástandi. V. 50,0 m. 5093