Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 30
30 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009 LYFJAEFTIRLIT Íþrótta- og ólympíu- sambands Íslands hef- ur um árabil haft eft- irlit með lyfjamisnotkun í íþróttum hér á landi. Lyfjaeftirlit fer fram árið um kring í ólíkum íþróttagreinum í keppni og á æfingum. Unnið er eftir alþjóðlegum reglum Alþjóðalyfjaeftirlitsins (WADA – World Anti-Doping Agency). Árlega er gefinn út bannlisti þar sem gefin eru upp þau efni og aðferðir sem bönnuð eru í íþróttum. Á listanum eru meðal annars anabólískir sterar, hormón og skyld efni, beta-2-virk efni, þvagræsilyf og önnur efni sem dylja lyfjamisnotkun. Bannaðar að- ferðir eru aukning súrefnisburð- argetu, fölsun sýna með efna- eða eðlisfræðilegum aðferðum og mis- notkun erfðaefnis. Auk þess eru örv- andi efni, ávana- og fíkniefni, kanna- bisefni og barksterar á listanum. Nánari upplýsingar um lyfjaeft- irlitsmálaflokkinn má finna á heima- síðu lyfjaeftirlits ÍSÍ, www.lyfjaeft- irlit.is. Nú stendur yfir Vika 43, vímu- varnavika 2009 þar sem umfjöll- unarefnið er „kannabis – afleiðingar og leiðir í forvörnum“. Verður því vikið nánar að kannabisefnum og lyfjaeftirliti meðal íþróttamanna. Við árlega endurskoðun bannlista WADA þurfa efni að uppfylla tvö af þremur skilyrðum. Efnin eða að- ferðin má ekki bæta eða geta bætt árangur í íþróttum, þau mega ekki skaða eða geta skaðað heilsu íþróttamannsins og notkun efnisins má ekki vera andstæð anda íþróttanna. Þar fyrir utan geta efni hafnað á listanum sem mögulega geta falið notkun bannaðra efna og bannaðra aðferða. Kannabis og afkastageta Notkun kannabisefna hefur í för með sér ýmsar aukaverkanir sem margar hverjar hafa neikvæð áhrif á frammistöðu. Skammtímaaukaverk- anir eru lakari samhæfing og lengri viðbragðstími. Samhæfing verður lakari og hámarksafkastageta minni. Getur það haft í för með sér aukna slysahættu í íþróttum þar sem hraði og úthald skipta máli. Kannabis hefur engin jákvæð áhrif á líkamlega getu. Þvert á móti getur notkun gert viðkomandi sljóan og dregið úr einbeitingu og þrótti. Neikvæð líkamleg áhrif geta varað í allt að sólarhring eftir notkun. Virkni og aukaverkanir Kannabis getur róað þann sem neytir þess, gert hann hláturmildan og sljóan. Auk þess getur notkun haft áhrif á tímaskyn og aðra skynj- un. Margir finna fyrir ógleði, svima og þurrki í munni. Hjartað slær örar og augu verða rauð. Aukaverkanir svo sem kvíði, hræðsla og ofskynj- anir geta fylgt. Neikvæð áhrif á skammtímaminni geta varað í fleiri daga eftir notkun og dregur úr getu til að leysa flókin verkefni. Þeir sem ánetjast kanna- bisreykingum geta átt erfitt með einbeitingu og að læra nýja hluti. Hættan á lungnasjúkdómum, svo sem sýkingum og lungnakrabba- meini, eykst. Kannabisefni eru á bannlista Notkun kannabisefna samræmist ekki anda íþróttanna og er bönnuð í öllum íþróttum, það getur auk þess haft neikvæð áhrif á heilsu íþrótta- manna. Því er kannabis á bannlista. Hægt er að greina efnin í fleiri vikur eftir inntöku þeirra og getur lyfja- próf ljóstrað upp um notkun slíkra efna löngu eftir inntöku. Fall á lyfja- prófi getur haft í för með sér keppn- is- og æfingabann. Lyfjaeftirlit í íþróttum og kannabis Eftir Skúla Skúla- son og Áslaugu Sigurjónsdóttur »Neikvæð líkamleg áhrif geta varað í allt að sólarhring eftir notk- un. Áslaug Sigurjónsdóttir Skúli er formaður lyfjaráðs ÍSÍ og Áslaug lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ. Skúli Skúlason EITTHVAÐ skort- ir á framtíðarsýn stjórnvalda hér á landi þar sem at- vinnuleysið eykst og eykst. Engar lausnir eru sjáanlegar á þeim ósköpum og er ég hugsi yfir andleysi nýsköpunar í at- vinnulífinu. Af hverju er til dæmis ekki far- ið að framleiða einnota bleiur, dömubindi og jafnvel leðurskó. Nú er verðið á þessum vörum orðið skelfilegt. Hvar eru hugmyndir um að flytja inn hrávöru til að fullvinna fyrir innanlandsmarkað? Hollendingar eru til dæmis stærstu demantaframleiðendur í heimi, ekki eru demantanámurnar þar. Erum við ekki í góðu við- skiptasambandi við Kínverja sem hægt væri að virkja betur? Hvað þurfum við frá Evrópu? EES gaf okkur jú tækifæri inn á einn at- vinnumarkað og frjálst vöruflæði. En hvað gagnast það okkur í dag? Jú, lyfjaútflutningur, fiskur og leiga á flugvélum. En skiptir þetta sköpum fyrir okkur sem þjóð? Við þurfum að finna okkur nýja markaði. Ég tel að við Íslendingar eigum að vera snöggir að því að verða sjálfbær- ari með okkar þarfir. Við erum það í raun með matvælaframleiðsl- una að mestu og með orkuna. Ekki þurfum við að kynda húsin okkar með olíu, kolum eða gasi. Ég hef þá trú að eftir örfá ár losum við okkur við alla innflutta þörf á orkugjöfum í formi elds- neytis. Kreppan mun hjálpa okkur við það, samanber hvernig við hófum notkun heita vatnsins á krepputímum hér á árum áður. Ég heyrði því fleygt að heita vatnið skaffaði okkur um 60% af orkunotk- un okkar. Við Íslend- ingar erum harð- duglegir en það vantar sparkið til að koma okkur í gang. Þetta gengur ekki lengur þessi kyrrstaða og þetta magnleysi, nú verða ráðamenn all- ir sem einn að bretta upp ermar og gefa í fyrir alþýðuna. Þó svo að það þurfi að klára Icesave-dæmið, þá erum við almenningurinn hérna úti, sem er vanur að vera á skófl- unni, að reyna að vinka ykkur til að fá athygli, það þarf að huga að atvinnumálum og vandamálunum hér innanlands. Við getum ekki látið atvinnuleysið verða að þjóð- arböli. Það þýðir ekki endalaust að velta sér upp úr því að eiga ekki vini í öðrum þjóðum. Við verðum að standa sjálf í lappirnar og gera okkur grein fyrir því. Við verðum að hugsa vel um okkar fjöregg sem er landið okkar Ís- land. Auglýst eftir lausnum Eftir Þóreyju A. Matthíasdóttur Þórey A. Matthíasdóttir »Ég tel að við Íslend- ingar eigum að vera snöggir að því að verða sjálfbærari með okkar þarfir. Höfundur er formaður lands- sambands framsóknarkvenna. – meira fyrir áskrifendur Sunnudagsmogginn er nú borinn út með laugardagsblaðinu Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Sunnudagsmogginn er blað með nýju sniði sem héðan í frá verður borið út með laugardagsblaði Morgunblaðsins. Lesbókin tilheyrir nú sunnudagsmogganum og fastir liðir sem tilheyrðu sunnudagsblaðinu eins og smáauglýsingar, raðauglýsingar, dánartilkynningar og fylgiblaðið með atvinnuauglýsingum flytjast yfir í laugardagsblaðið. Emilíana Torrini m Sunnudags Mogginn Fréttaskýringar Pistlar Viðtöl Lesbók Krossgátur Með einlægnina að vopni leggur hún Evrópu að fótum sér. Efasemdir fara vaxandi um að í Kaupmannahöfn náist raunverulegur árangur í loftslagsmálum. Flosi Ólafsson Stendur á áttræðu og ræðir um illmennsku, sveitina, skáldskapinn og ástina. 25. október 2009 Loftslagsklúður? Lesbók Margrét Örnólfsdóttir „Galdurinn er að leyfa efninu að koma manni á óvart, jafnvel draga mann á asnaeyrum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.