Morgunblaðið - 24.10.2009, Qupperneq 31
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
RÍKJANDI stefna í
orkumálum hefur verið
sú að raforka sé nauð-
synleg þjóðfélaginu og
hættuástand skapist ef
orkuskortur verður.
Því hefur vinnsla raf-
orku og dreifing lengst
af verið þjónusta við
heimili og almennan at-
vinnurekstur á vegum
opinberra aðila og ork-
an seld á kostn-
aðarverði. Á tímum Einars Bene-
diktssonar skálds og annarra
frumkvöðla í orkumálum var önnur
stefna uppi, þá var litið á raf-
orkuframleiðslu sem gróðatækifæri
einkaaðila. Þetta gerbreyttist þegar
Franklin D. Roosevelt Bandaríkja-
forseti notaði það tækifæri sem orku-
nýtingin bauð upp á til að rífa Banda-
ríkin upp úr kreppunni miklu.
Aðferðin var einföld. Ríkið byggði
virkjanir út um allt og seldi rafork-
una á almennan markað á kostn-
aðarverði. Iðnaðurinn tók stórstígum
framförum og með þetta fyrir aug-
unum tóku flest Evrópuríki upp
sömu stefnu. Ríkisorkurisarnir í
Evrópu litu dagsins
ljós.
Orkufrek iðnfyr-
irtæki höfðu í öndverðu
byggt eigin orkuver og
héldu því áfram, en
smám saman minnkaði
bygging orkuvera á
þeirra vegum en í stað-
inn fengu þau raforku á
verði sem tók tillit til
lægri dreifingarkostn-
aðar og lengri nýting-
artíma þeirra en ann-
arra notenda. En einn
galli var á þessu. Þegar gamlar verk-
smiðjur voru lagðar niður sat orku-
salinn eftir með sárt ennið og oftar
en ekki töluvert tap. Því var í upphafi
stóriðjuvæðingar á Íslandi mörkuð
sú stefna að selja raforkuna í stóriðju
á kostnaðarverði en fá í staðinn kaup-
tryggingu sem grípa mátti til ef
orkukaup hættu. Þetta reyndist
gæfuspor enda hefur í stóriðjurekstri
hér, varla fallið úr einn einasti dagur
meðan erlendis er allt aðra sögu að
segja.
Almenni markaðurinn
Samkeppnishæft verð til stóriðj-
unnar fékkst auðveldlega í byrjun
með því að byggja stærri virkjanir
sem framleiddu ódýrt á hverja orku-
einingu og seldu inn á almennan
markað, sem þá þurfti ekki að sætta
sig við dýrari orku frá smærri virkj-
unum. Þessi samnýting orkuvera
gekk mjög vel meðan almenni mark-
aðurinn var af sömu stærðargráðu og
stóriðjan. Hefur verið sýnt fram á að
orkuverð til almennings á Íslandi
hefur verið hóflegt og í raun lækkað
vegna þessa.
Vendipunktur
Gamla stefnan er ekki lengur
möguleg þar sem frekari stóriðja
kemur ekki til með að lækka orku-
verð til almenningsveitna. Kára-
hnjúkavirkjun er fyrsta virkjunin
sem selur alla framleiðslu til stóriðju.
Héðan í frá þarf að byggja sér-
staklega fyrir alla stórnotendur, ál-
ver, aðrar rafbræðslur, netþjónabú
og stórnotendur aðra, sem óska eftir
sérstökum raforkusamningi við
framleiðendur.
Stóriðjan sjái um sig
Það er dýr atvinnusköpun að
byggja stóriðjuver og íslenskt fjár-
magn hefur aldrei verið lagt í slíkt.
Nú þarf að breyta um stefnu og taka
virkjanirnar undir sama hatt; þeir
sem vilja koma hér upp stóriðju eiga
að leggja fram það fjármagn sem
orkuöflunin kostar og að sjálfsögðu
greiða eðlilegt gjald fyrir nýtingu
auðlindanna a.m.k. með þeim hætti
að með tímanum eignist ríkið þessi
orkuver. Þetta er nefnt BOT-
fyrirkomulag. (http://en.wiki-
pedia.org/wiki/Build-Operate-
Transfer).
Ný leið til lækkunar
raforkuverðs
Eins og fyrr segir er ekki lengur
unnt að ná lækkun á orkuverði til al-
mennings með því að rugla reytum
með stóriðjunni. Hún verður að sjá
um sig sjálf. Aftur á móti á að inn-
kalla gömlu raforkusamninga um leið
og tækifæri gefst. Þetta er ódýrasti
kosturinn til að afla orku fyrir mark-
aðinn. Nýjar virkjanir byggðar eftir
nýja fyrirkomulaginu munu halda
uppi nægilegu orkuframboði til al-
menns markaðar þegar fram í sækir.
Samkvæmt fyrsta áfanga ramma-
áætlunar frá 2003 eru nægir orkuöfl-
unarkostir fyrir hendi til að byggja
fyrir þá stóriðju sem leggja vill fram
nægilegt fé. Náttúruverndarstefnan
keppist nú við að banna frekari virkj-
anagerð og beitir þar umhverf-
islöggjöfinni sem aldrei fyrr. Eitt-
hvað af orkukostum verður vafalítið
tekið til friðunar en það verður nóg
eftir samt. Hættan á umhverfis-
slysum er nánast engin. Sú 40 ára
saga sem að baki er sýnir að enginn
alvarlegur skaði hefur orðið á lífríki
eða útliti landsins vegna virkj-
unarframkvæmda og engin meng-
unarslys heldur vegna virkjana eða
stóriðju.
Með þeirri stefnu sem hér er
mörkuð verður áframhaldandi orku-
uppbygging á Íslandi ekki háð er-
lendum lánum með ríkisábyrgð,
heldur öruggri framkvæmd vel af-
markaðrar stefnu. Það væri rangt af
ríkisstjórninni að nota ríkjandi láns-
fjárkreppu eða lagakróka sem afsök-
un fyrir því að stöðva stóriðjufram-
kvæmdir á landinu og þá eru
netþjónabúin ekki undanskilin.
Möguleikar orkuiðnaðarins eru mikl-
ir, nú á að efla þá uppbyggingu sem
mest má til að vinna þjóðina út úr
kreppu. Þetta er sú leið sem liggur
beinast við.
Ný stefna í raforkumálum – lækkum
raforkuverð með nýrri stefnu
Eftir Jónas Elíasson » Áframhaldandi upp-
bygging orkuiðn-
aðar ásamt stefnubreyt-
ingu í raforkumálum
getur lækkað orkuverð
og unnið okkur út úr
kreppunni.
Jónas Elíasson
Höfundur er prófessor.
FRAMTAKSSEMI
frumkvöðla leynir víða
á sér um landið og úti á
landsbyggðinni er
margt stórkostlegt að
gerast í uppbyggingu
aðstöðu mennta, fé-
lagsstarfs og athafna
og atvinnusköpunar.
Fæst af þessum góðu
og gagnmerku málum
rata í fjölmiðla landsins
vegna þess að samband
þeirra nær lítt út fyrir höfuðborg-
arsvæðið þrátt fyrir alla tæknivæð-
ingu í tjáskiptamöguleikum. Á bæn-
um Stokkalæk undir Heklurótum í
Rangárþingi ytra er risið menning-
arhús í útbýli á jörðinni, Selinu. Húsi
sem á sínum tíma hýsti búfénað, en
hefur verið breytt í nýtísku hótel og
gott betur. Það var uppselt á tón-
leika Víkings Heiðars Ólafssonar pí-
anóleikara í Selinu fyrir skömmu, 70
manns, þar sem fram fór vígsla nýs
Steinway-flygils sem pínóleikarinn
valdi til setursins fyrir eigendur
Stokkalækjar, Ingu Ástu og Pétur
Hafstein. Á síðari tónleikunum
næsta kvöld var fullskipað hús. Vík-
ingur Heiðar hafði orð á því við
vígsluna að Stokkalækjarflygillinn
væri einn allra besti flygill Evrópu
og líklega sá besti í
Skandinavíu. Það fór
ekkert á milli mála að
hann hafði lög að
mæla; hljómur flygils-
ins, svörun og útgeisl-
un var svo undrum
sætti. Framtak þeirra
Stokkalækjarhjóna er
stórkostlegt, magnað
og metnaðarfullt og
stækkar Ísland og áru
þess.
Menningarhúsið í
Selinu á Stokkalæk er
allt í senn tónlistarsetur, ráð-
stefnuhús og samkomuhús, glæsi-
lega búið og vandað í alla staði með
átta tveggja manna herbergjum og
píanó í hverju herbergi, nær hundr-
að manna samkomusal og allt gert
með stíl. Hvert landsvæði sem á slíkt
fólk að, sem hefur til vegs og virð-
ingar möguleika sveita og byggða og
rímar við náttúru landsins með því
að velja það besta, á mikinn heiður
og þökk skilið.
Á vígslutónleikunum flutti Vík-
ingur Heiðar verk eftir Bach, Bar-
tók, Debussy og Chopin auk útsetn-
inga eftir sig og Snorra Sigfús
Birgisson á íslenskum þjóðlögum og
sönglögum. Listamanninum unga
var listavel tekið, enda fimi hans slík
að menn gleymdu stund og stað.
Stokkalækjarflygillinn er vissulega
góður en það var líka upplifun að sjá
hvernig þeir spiluðu hvor á annan og
hvor með öðrum, píanóleikarinn og
Steinway-flygillinn. Mátti oft ekki á
milli sjá.
Fyrsta verkefni í Selinu eftir
vígslutónleikana var viku námskeið
hóps píanóleikara með Víkingi
Heiðari.
Hafi þau Stokkalækjarhjón Inga
Ásta og Pétur Hafstein stórkostleg-
ar þakkir fyrir glæsilegt og hvetj-
andi framtak Íslandi til heilla. Menn
munu slá margar flugur í einu höggi
í framtíðinni með því að bregða sér
að náttúruundrunum við rætur
Heklu, á þröskuld hálendisins, og
njóta lista í kyrrð fjallanna.
Menningarsetur á
Stokkalæk undir Heklurótum
Eftir Árni Johnsen »Menningarhúsið í
Selinu á Stokkalæk
er allt í senn; tónlistar-
setur, ráðstefnuhús og
samkomuhús, glæsilega
búið og vandað í alla
staði með átta her-
bergjum.
Árni Johnsen
Höfundur er alþingismaður.
ÁGÆTU vinnuveitendur Ég skrifa
þessar fáu línur til að vekja athygli
ykkar á máli sem varðar fjölmörg
fyrirtæki og ætti að vera auðvelt að
ráða bót á.
Þannig háttar að maðurinn minn
er atvinnulaus og hefur sótt um ótal
störf sem auglýst hafa verið á
heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Fyrst vorum við bara spennt og bið-
um í ofvæni eftir að fá svar við um-
sókninni.
Núna, eftir nokkurra mánaða at-
vinnuleysi, er enn farið daglega inn á
vef Vinnumálastofnunar og ef eitt-
hvað starf er auglýst sem hugsan-
lega gæti verið fyrir minn mann þá
er umsókn send, meðfylgjandi
starfsferilsskrá og persónuupplýs-
ingar og ítrekað að umsækjandi sé
tilbúinn til að koma í viðtal. Við bíð-
um þó ekki lengur spennt eftir við-
brögðum. Þetta er að verða meira
formsatriði en raunveruleg starfs-
umsókn. Aldrei hefur borist svar til-
baka. Aldrei, aldrei, aldrei! Ég geri
mér fulla grein fyrir að eflaust berst
fjöldinn allur af umsóknum um hvert
auglýst starf en af hverju er ekki
svarað. Hafa fyrirtækin ekki mann-
afla til að sýna fólki lágmarkskurt-
eisi. Það að svara töluvpósti með
stöðluðum texta tekur ekki langan
tíma þó póstarnir séu margir, það
þarf bara vilja til að fara í verkið.
Vinnuveitendur vita eflaust að það
er ókurteisi að svara ekki starfs-
umsókn og þakka fyrir auðsýndan
áhuga en láta sér það bara í léttu
rúmi liggja, en ætli þeir geri sér
grein fyrir hversu mikila lítilsvirð-
ingu þeir sýna umsækjendum? Það
að vera fullfrískur, á besta aldri,
með fjölskyldu á framfæri en at-
vinnulaus er ömurlegt hlutskipti.
Fylgifiskar langvarandi atvinnuleys-
is eru auðvitað fyrst fjárhags-
áhyggjur en svo fylgir þunglyndi, fé-
lagsfælni, lélegt sjálfsmat, stór-
skemmd sjálfsímynd og jafnvel
líkamleg veikindi tilkomin af and-
legu álagi. Atvinnuleysi er gífurlegt
áfall og mikið álag á þann atvinnu-
lausa en ekki síður á aðra fjölskyldu-
meðlimi. Því beini ég þeim tilmælum
til vinnuveitenda að auka ekki á van-
líðan fólks, hún er nóg fyrir. Sýnið
okkur lágmarkskurteisi og sendið
svar.
HRAFNHILDUR
THEÓDÓRSDÓTTIR,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
leikara.
Svar óskast!
Frá Hrafnhildi Theodórsdóttur
RÁÐGJAFARSTOFA
FLYTUR!
!" ## # $%&& '%&&
(
)
Slökkvibifreið til sölu
til afhendingar strax
Sigurjón Magnússon ehf.
Námuvegi 2 - 625 Ólafsfirði
www.smagnusson.is - s. 466-3939
MAN 8 / 153
nýbyggður ónotaður - árgerð 1996
Tankur: 1.600L - Dælugeta: hámark 2.000L
Farþegafjöldi: 9 - Reykköfunarstólar: 2 í ökuhúsi
160 hestöfl - beinskiptur - afturhjóladrifinn
Rafdrifin slöngurúlla - 60 m slanga með stút
Verð: 7 milljónir + vsk