Morgunblaðið - 28.11.2009, Page 23
Daglegt líf 23ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | Það var fullt út úr
dyrum í listasmiðjunni í Þórsmörk
þegar nemendur á hársnyrtibraut
Verkmenntaskóla Austurlands
héldu þar sýninguna „Hár og tíska í
50 ár“ í síðustu viku. Sýningin er af-
rakstur þriggja áfanga þar sem
nemendur kynntu sér mismunandi
tímabil tískusögunnar, æfðu
greiðslur sem einkenndu viðkom-
andi tímabil og settu upp stór-
skemmtilega sýningu þar sem
tíska, tónlist og andrúmsloft var
tvinnað saman.
Auk þess glæddu aðrir nemendur
og leikfélag skólans sýninguna lífi
með uppákomum að ýmsu tagi. Að-
standendur sýningarinnar voru af-
ar ánægðir með afraksturinn. Fullt
var út úr dyrum á stundum, en á
þriðja hundrað manns mættu til til
að skoða verk nemenda.
Hár og tíska í 50 ár
Morgunblaðið/Kristín
Uppákoma Á þriðja hundrað mætti.
Fullt var út úr dyrum á skemmtilegri
sýningu hársnyrtinema hjá VA
Staða og þróun í atvinnumálum er
áhyggjuefni margra í Borgar-
byggð. Fyrir nokkru var skipaður
sérstakur vinnuhópur um atvinnu-
mál í Borgarbyggð til vinna að
þessum málaflokki. Þessi vinnu-
hópur stóð fyrir opnum fundi í
Geirabakaríi í hádeginu á fimmtu-
daginn var. Þar sagði Hildur M.
Jónsdóttir frá Neðribæjarsamtök-
unum í Borgarnesi, Kjartan Ragn-
arsson fór yfir hugmynd um mið-
aldaböðin í Deildartungu og
Unnur Halldórsdóttir nýkjörinn
formaður Ferðamálasamtaka Ís-
lands fór yfir stöðuna í ferða-
málum og möguleikana í þeim efn-
um. Ólafur Sveinsson formaður
Atvinnuráðgjafar Vesturlands sáði
nokkrum fræjum um gildi nýsköp-
unar og sjálfsbjargarviðleitni.
Fundurinn var einnig hugsaður
sem vettvangur fyrir þá sem
„luma“ á góðum hugmyndum, og
líka fyrir þá sem vilja ná sér í hug-
mynd til að hrinda í framkvæmd.
Góður fundur og gott að líta upp
úr svartsýninni.
Í gærmorgun voru karlmenn í app-
elsínugulum göllum í óða önn að
reisa stærðarinnar jólatré í Borg-
arnesi. Vegna framkvæmda orku-
veitunnar verður jólatréð að þessu
sinni staðsett við Tónlistarskólann.
Á sunnudaginn næstkomandi kl.
17, á að tendra ljósin á trénu við
hátíðlega athöfn. Að venju mun
forseti sveitarstjórnar ávarpa við-
stadda, en síðan leikur hljóm-
sveitin Álfar nokkur lög, lesin
verður jólasaga og sungið. Til að
halda hita í gestum verður boðið
upp á heitt kakó, og grunur leikur
á að einhverjir jólasveinar sem eru
komnir snemma til byggða láti sjá
sig og ætli að gleðja börnin.
Talandi um jólatré þá hafa verið
haldin námskeið á vegum Sí-
menntunarmiðstöðvarinnar á Vest-
urlandi þar sem Erna Guðlaugs-
dóttir kennir að búa til þæfð
jólatré. Íslenska ullin sannar enn
og aftur notagildi sitt þar sem hún
væn og græn er þæfð í kóna og
skreytt með jólaseríu. Frumlegt
og flott. Ennfremur hefur Ólöf
Davíðsdóttir glerlistakona kennt
gerð mosaíklampa sem hún nefnir
„kærleiksljós“ og loga nú ljós kær-
leikans víða um Vesturland.
Þó var Borgnesingum brugðið eft-
ir sprengjuárás aðfaranótt föstu-
dagsins, en þá grýttu nokkir ungir
menn tveimur molotov-kokteilum
(bensínsprengjum) í hús lög-
reglustöðvarinnar. Þeir munu hafa
verið ósáttir við handtöku á einum
félaga þeirra fyrr um kvöldið og
létu skoðanir sínar í ljós með þess-
um hætti. Einhverjum datt í hug
að hér væri að hefjast borg-
arastyrjöld eða að blóð Egils
Skallagrímssonar rynni heitt í æð-
um ungmenna. Engan sakaði sem
betur fer og vona menn að svona
nokkuð gerist ekki aftur og að
deilumál verði leyst á frið-
samlegan hátt.
Ekki þarf að orðlengja það að
sparnaðartillögur í fræðslumálum í
Borgarbyggð fóru fyrir brjóstið á
mörgum. Haldnir voru gagnlegir
íbúafundir í sveitarfélaginu þar
sem fólk skiptist á skoðunum, m.a.
var stungið upp á því að loka Ráð-
húsinu eftir hádegi á föstudögum
frekar en leikskólunum í sparnað-
arskyni en það var ein tillagan.
Sem betur fer var ekki fallist á
þessa skerðingu í leikskólanum, en
eftir sem áður verður fræðslu-
málum þröngt skorinn stakkur.
Það kemur þó ekki í veg fyrir
gleði barnanna, en nemendur í
grunnskólanum héldu árshátíð ný-
lega. Allir bekkir skólans sungu,
léku eða sýndu atriði og var þema
skemmtunarinnar GLEÐI. Þessi
hátíð var ákaflega skemmtileg og
nemendum og skólafólki til mikils
sóma. Ekki veitir af gleðinni nú
sem ávallt.
BORGARNES
Guðrún Vala Elísdóttir fréttaritari
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ullartré Borgnesingar geta nú lært
að búa til þæfð jólatré.
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
UPPBOÐ
á lausafjármunum
verður haldið í Vörumiðstöð Samskipa
Kjalarvogi 7 - 15, hliði 33,
laugardaginn 28. nóvember kl. 12.00
Um er að ræða ótollafgreidda vöru þar sem aðflutningsgjöld eru fallin í gjalddaga. Meðal vara sem
boðnar verða upp eru bílar, útilegubúnaður, veiðigræjur, skór, marmari, prófílar, boltar, efnavörur,
gluggar, gler, innréttingar, húsbúnaður, dekk, kerrur, skrúfur, málningarsprey, myndarammar, timbur,
varahlutir í hjólhýsi, varahlutir í bíla, hurðar og margt fleira.
Tollstjórinn í Reykjavík tilkynnir:
Skútuv
ogur
Kjalarvogur
Sæbra
ut
B
rú
arvo
g
u
r
K
leppsm
ýrarvegur
H
o
ltaveg
u
rBarkarvo
gur
Uppbo
ð
hlið 33
Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem
greiðsla, einungis debetkort eða peningar.
Greiðsla við hamarshögg.
afsláttur
3.160 kr.
verð áður 4.480 kr.
afsláttur
3.840 kr.
verð áður 5.490 kr.
afsláttur
3.980 kr.
verð áður 5.690 kr.
„SPENNANDI,
SMELLIN,
FJÖRUG
OG FRÁBÆR“