Morgunblaðið - 28.11.2009, Side 26
26 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
MAÐURINN er
orðinn allsmáttugur,
a.m.k. milliríkjanefnd
Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreyt-
ingar (IPCC) og Evr-
ópusambandið (ESB)
sem ætla nú að stjórna
loftslaginu á jörðinni.
Þau hafa boðað leið-
toga heimsins á lofts-
lagssirkus í Kaup-
mannahöfn fyrir jól. Síðast sýndi
sirkusinn á Balí og voru sýningar vel
sóttar af skriffinnum og umhverf-
istrúarsöfnuðum. Flugfélögin og ol-
íufélögin græddu vel.
Mörg góð sýningaratriði
Í sirkus eru trúðarnir skemmti-
legastir og má reikna með að þeir
keppi hver við annan í Köben:
Stjórnmálamenn munu keppa um
hver býður hæst í að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda og að setja á
kolefnisskatta. Umhverfisvernd-
ararnir munu keppa í krassandi
heimsendaspám. Vísindamennirnir
svo kölluðu munu keppa í spám um
bráðnun íss og hækkun sjávar. Þeir
eru margir og búnir að eyða nærri
100 milljörðum dala í gagnslaus
tölvulíkön og vantar því meira fé í
„rannsóknirnar“. Fastur liður á
þessum sirkusum er að kynntar
verða sérpantaðar „vísindanið-
urstöður“ um bráðnun Grænlands-
jökuls og Suðurskautsins. Skriffinn-
arnir munu svo keppa í að koma sem
mestum kvöðum og skrifræði á
heimsbyggðina. Og kvótabrask-
ararnir munu keppa í að fá sem
flesta starfsemi undir losunar-
kvótakerfi.
Alheimsstjórn
Á sýningunni munu IPCC og ESB
reyna að láta leiðtogana samþykkja
að koma alheimsstjórn og kvótakerfi
á koltvísýringslosun svo iðnaður vaxi
ekki út um allar koppagrundir þar
sem engin yfirstjórn er á hlutunum.
Borið verður fé á þróunarlöndin,
beitt hótunum og svo þrýstingi um-
hverfistískunnar sem fjölmiðlar hafa
tekið að sér að sjá um. Hver heilvita
maður skilur að ekkert vit er í að
láta hvern sem er reisa iðjuver þeg-
ar hinn iðnvæddi, siðmenntaði heim-
ur eins og ESB er að hætta því. Það
er ekki hægt að láta alla vera að
byggja upp velsæld á kostnað um-
hverfisins. Þessi uppbyggingaróðu
lönd keppa við hin vel skipulögðu og
sífellt grænni iðnríki sem vita hvern-
ig á að stjórna heiminum enda göm-
ul og reynd heimsveldi.
Kvótakaup góð fjárfesting
Mörg fyrirtæki hafa verið stofnuð
í helstu fjárglæframiðstöðvum
heims, eins og London og New York,
af forsvarsmönnum
„loftslagssamninganna“
til þess að kaupa los-
unarkvóta og selja
áfram til auðmanna. Í
þessum nýju kvótamiðl-
unarfyrirtækjum er
kominn góður fjárfest-
ingarkostur og veitir
ekki af eftir að fjár-
plógsgeirinn hrundi í
fyrra. Ýkt sniðug fyr-
irtæki hafa sprottið upp
til að versla með kvóta,
t.d. Enron sem var því miður af-
hjúpað áður en kvótakerfið komst í
gagnið. Helstu heimsendaspámenn-
irnir eru stórhluthafar í kvótamiðl-
unarfyrirtækjunum. Kominn tími til
að þeir græði, sumir eru búnir að
basla við þetta eins lengi og Maurice
Strong, Al Gore fer líka að komast
til ára sinna og þarf að fara að græða
á einhverju öðru en glærusýningum.
Ríkisstjórn Íslands með
skemmtiatriði
Ríkisstjórn Íslands leggur sitt af
mörkum til þess að sirkusinn megi
takast sem best. Hún ætlar að lofa
að minnka losun um 25% sem sam-
svarar því að bílaflotanum sé lagt –
kominn tími til, bílarnir eru orðnir
allt of margir. Hún ætlar ekki heldur
að framlengja íslenska ákvæðið sem
leyfði Íslendingum að byggja iðjuver
með reyklausri orku. Enda óþarfi,
það á ekki að byggja nein fleiri iðju-
ver, bara græna atvinnu. Rík-
isstjórnin ætlar að fá losunarkvóta
hjá sjálfu ESB sem ætlar að draga
saman losun um 30%. Það tryggir
enn frekar að engin iðjuver verða
byggð.
Raunveruleikinn fúll
Því miður hefur ekki verið hægt
að bjóða til Köben þeim sem stjórna
loftslagi á jörðinni enda óhægt um
vik, langt að fara og engir stjórn-
málamenn til að taka við boðs-
bréfum. Þetta eru Sólin, geislagjafar
í geimnum, rykið í spunahölum Vetr-
arbrautarinnar og svo auðvitað
Jörðin á sinni sveiflukenndu braut
um sjálfa sig og Sólu. Og loftslagið
hunsar alla loftslagssamninga og
heldur áfram að kólna. En það gerir
ekkert til, á sirkusnum í Köben verð-
ur hvort sem er ekki talað um raun-
veruleikann.
Loftslagssirkusinn
kemur til Köben
Eftir Friðrik
Daníelsson
Friðrik Daníelsson
»Reynt verður að
koma alheimsstjórn
og kvótakerfi á koltví-
sýringslosun svo iðn-
aður vaxi ekki út um all-
ar koppagrundir
Höfundur er verkfræðingur.
FÉLAGSMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ stóð
fyrir stefnumörkun í
málefnum geðfatlaðra
árið 2006 og hefur
unnið eftir þeirri
áætlun með verkefn-
inu Straumhvörfum.
Ný búsetuúrræði hafa
verið fundin og byggð
upp og virkni efld.
Jafnframt hefur verið
unnið að upplýs-
ingaöflun frá þeim sem njóta þjón-
ustunnar, um mat þeirra á gagn-
semi ýmissa þátta. Starfsfólk
Hlutverkaseturs, með not-
endaþekkingu, hefur á skipulagð-
an hátt í samstarfi við fagaðila séð
um þá upplýsingasöfnun.
Gerðar eru þær kröfur til fé-
lags- og heilbrigðisþjónustunnar
að hún sé byggð á rannsóknum.
Þetta er kallað sannreynd eða
gagnreynd þjónusta. Krafan er
sanngjörn og veitir notendum
þjónustunnar, sem og þeim sem
veita fjármagn, ákveðið öryggi.
Rannsóknir hafa það að markmiði
að finna bestu lausnina fyrir sér-
hvert vandamál. Væntingar til
rannsókna eru að þær gefi einföld
og skýr svör um bestu leiðir í
hverju tilviki. Rannsóknarnið-
urstöður t.d. innan geðheilbrigð-
ismála eru hins vegar oft mót-
sagnakenndar. Nýrri rannsóknir
kollvarpa oft niðurstöðum þeirra
eldri. Þó lifa rótgróin viðhorf og
staðalímyndir góðu lífi. Nið-
urstöður margra rannsókna eru
aldrei birtar, njóta ekki sömu
virðingar eða fá ekki verðskuldaða
athygli. Þrátt fyrir sömu einkenni,
sjúkdómsgreiningu eða færn-
iskerðingu hefur komið í ljós að
mismunandi nálgun hentar.
Ein tegund þekkingar er sprott-
in frá samanburðarrannsóknum.
Þær eru þannig gerðar að þátttak-
endur eru valdir af handahófi og
skipt í a.m.k. tvo hópa. Annar
hópurinn fær t.d. nýja meðferð
eða lyf sem á að rannsaka og hinn
fær lyfin eða meðferðina sem not-
uð hefur verið eða lyfleysu eða
enga meðferð. Hvorki þátttak-
endur né rannsóknarfólk veit hvað
hver hópur fær. Þetta er gert til
að tryggja gæði og trúverðugleika
rannsóknarinnar. Önnur þekking
er sprottin frá reynslu fagfólksins.
Fagmenn læra hvað gefur bestan
árangur og safna þannig þekkingu
með starfsreynslu. Eðli þekkingar
sem verður til er háð vinnuum-
hverfi, samstarfsfólki og tíð-
aranda; þar sem bæði tækifæri og
hindranir liggja. Starfsfólk spítala
eða stofnana sem skipt hefur um
starfsvettvang og farið að vinna
t.d. í nærumhverfi skjólstæðinga
segist hafa fengið allt
aðra sýn á vandamál
þess fólks sem það
aðstoðar og uppgötv-
ar að það eru ekki
endilega sömu lögmál
sem gilda inni á stofn-
unum og utan þeirra.
Þriðja forsendan í
gagnreyndri þjónustu
er að safna upplýs-
ingum frá þeim sem
nýta þjónustuna; not-
endunum sjálfum. Fé-
lags- og trygginga-
málaráðuneytið hefur
með stefnumótun sinni, frá árinu
2006, nýtt sér notendaþekkingu.
Sú þekking hefur síðan verið
kynnt og gerð sýnilegri með mál-
þingum sem nefnd hafa verið
„Valdefling í verki“ og haldin hafa
verið víðsvegar um land.
Lífssagan og umhverfið sem
viðkomandi notandi hrærist í er
hluti vandans og lausnarinnar.
Fagstéttir hafa sína hug-
myndafræði og vinnureglur. Ef
hver stétt rígheldur í sína hug-
myndafræði og er ekki opin fyrir
annarri nálgun eða rannsóknar-
aðferð verður ágreiningur um
gildi aðferða. Þá er hætt við að
þeir sem þegar hafa skapað sér
sess hafi vinninginn. Skilgreining
gagnreyndrar þjónustu veltur því
oft á völdum, fjármagni og þegar
viðurkenndum aðferðum. Það er
ekki endilega sú meðferðaraðferð
sem notuð er sem stuðlað hefur að
árangri, heldur geta tengsl hlut-
aðeigandi skipt höfuðmáli. Þegar
komið er að því að þiggja aðstoð
geðheilbrigðisþjónustu hefur fólk
oft farið langan veg og býr því yf-
ir heilmikilli reynslu. Því miður er
ekki hefð fyrir því að starfsfólk
sýni áhuga á að nýta sér þá
reynslu við meðferð. Það má ekki
gleymast að líf þeirra sem stríða
við geðheilsubrest snýst ekki bara
um sjúkdómseinkenni og vanda-
mál. Þeir hafa styrkleika, bæði
hinn innri og í félags- og stuðn-
ingsneti sínu, sem geta verið bata-
hvetjandi.
Þeir sem starfa innan stjórn-
sýslunnar, geðheilbrigðisþjónust-
unnar, aðstandendur og notendur
eiga að vera vel upplýstir um mis-
munandi rannsóknaraðferðir og
niðurstöður. Ef dæmi er tekið um
þunglyndi þá leiða mismunandi að-
ferðir til árangurs en munur á
milli aðferða er oft lítill. Hugræn
atferlismeðferð, samtalsmeðferð
og hreyfing hefur jafn góð áhrif
og stundum betri en lyfin. Nýju
þunglyndislyfin verka ekki endi-
lega betur en þau gömlu. Not-
endarannsóknir hafa sýnt fram á
að hafi fólk eitthvert val um að-
ferð getur það eitt orðið helsti
hvatinn í bata. Gagnreynd þjón-
usta byggist því á fleiri en einni
tegund rannsókna. Hagsmuna-
samtök hafa víða um heim barist
fyrir auknum valmöguleikum í
meðferð fyrir þá sem kljást við
geðrænar truflanir. Margir þættir
hafa áhrif á líðan og geðheilsu.
Þjónustan verður því alltaf að
hluta til að vera klæðskerasniðin
fyrir hvern og einn.
Gagnreynd geðheil-
brigðisþjónusta
Eftir Elínu Ebbu
Ásmundsdóttur »Rannsóknir hafa það
að markmiði að
finna bestu lausnina fyr-
ir sérhvert vandamál.
Væntingar til rann-
sókna eru að þær gefi
einföld og skýr svör.
Elín Ebba
Ásmundsdóttir
Höfundur er iðjuþjálfi/dósent við HA
og framkvæmdastjóri Hlutverka-
seturs.
Í DAG fer fram prófkjör Fram-
sóknarflokksins vegna
borgarstjórnarkosninga í Reykja-
vík. Einar
Skúlason sækist
eftir 1. sætinu á
lista flokksins.
Einar er vel
þekktur úr
flokksstarfinu og
hefur unnið öt-
ullega að þeim
breytingum sem
flokkurinn hefur
gengið í gegn
um á und-
anförnum misserum ásamt nýrri
forystu flokksins.
Nýir tímar eru runnir upp í
flokksstarfinu. Ný forysta var
kjörin í Framsóknarflokknum á
landsþingi flokksins í janúar og er
flokkurinn sá eini sem hefur geng-
ið í gegn um algjöra endurnýjun á
forystu eftir hrunið haustið 2008.
Jafnframt þessari endurnýjun á
forystunni fór fram gagnger end-
urskoðun á stefnu flokksins. Í
þeirri stefnumörkun færðist flokk-
urinn nær rótum sínum og grunn-
gildum sem samvinnu- og fé-
lagshyggjuflokkur.
Það voru ekki eingöngu bank-
arnir sem hrundu fyrir ári síðan.
Skipulagsstefna alls höfuðborg-
arsvæðisins bauð líka afhroð. Því
þurfa nýir tímar einnig að renna
upp í sveitarstjórnum á svæðinu
og það þarf ekki að koma neinum
á óvart, ekki heldur sitjandi
fulltrúum Framsóknarflokksins.
Sú stefna sem mótuð var á lands-
þingi flokksins nær nefnilega einn-
ig til sveitarstjórnarstigsins. Nú
verður fólkið sem byggir sveitar-
félögin í forgangi og einkum þeir
sem eiga undir högg að sækja á
þessum tímum. Umhverfismál og
skipulagsmál þar sem fólk er í
fyrirrúmi verða ráðandi í stefnu-
mörkun flokksins og Einari Skúla-
syni er best treystandi til að ná
þessum málum fram. Einar var
framkvæmdastjóri Alþjóðahúss til
2008 og undir góðri forystu hans
varð Alþjóðahúsið stefnumarkandi
í samskiptum við erlenda rík-
isborgara sem fluttu til landsins.
Erlendir nemendur mínir í ís-
lenskunámi hafa enda ítrekað tjáð
sig um framsýni hans og hjálp-
semi í þeirra garð. Frá 2008 hefur
Einar verið skrifstofustjóri þing-
flokksins og það hefur hinn al-
menni flokksmaður orðið var við
með auknu upplýsingaflæði til
flokksmanna.
Ég hef þekkt Einar Skúlason og
verk hans, bæði innan flokks sem
utan, í fjölda ára, og treysti hon-
um best til að leiða flokkinn í
borgarstjórn Reykjavikur og
framfylgja þeirri stefnu sem mót-
uð var á síðasta landsþingi flokks-
ins. Ennfremur tel ég að hann
muni best koma fram stefnu-
málum flokksins á öllum sviðum
borgarmálanna í borgarstjórn. Því
set ég Einar Skúlason í 1. sætið.
REYNIR ÞÓR EGGERTSSON,
fv. stjórnarmaður í FUF í Rvík.
Kjósum Einar Skúlason
til forystu í borginni
Frá Reyni Þór Eggertssyni
Reynir Þór
Eggertsson
BRÉF TIL BLAÐSINS
ATVINNUHÚSNÆÐI – TIL LEIGU
SMIÐJUVEGUR 3, KÓPAVOGI (á móti Orkunni, Bónus og BYKO)
1257 fm atvinnuhúsnæði. Allt að 5,5 m lofthæð og góð bílastæði.
Nánari upplýsingar í síma 892 1529 og 892 1519