Morgunblaðið - 28.11.2009, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2009
Kvikmyndin Ástin gerirekki boð á undan sér,sem nú er til sýningarhérlendis, gefur sig út
fyrir að vera rómantísk gam-
anmynd en er í raun án mikils til-
hugalífs og sprellandi gríns. Hún
er frekar létt drama en þessi tví-
skinnungur sem kristallast í titl-
inum er svolítið stuðandi fyrir
áhorfendur og ekki bætir úr skák
að auglýsingarnar eru afar vill-
andi. Myndin fylgir samt fastmót-
uðum formgerðum út í gegn og
áhorfinu er stýrt til að hámarka
tilfinningalega upplifun eða ka-
þarsis áhorfenda, eins og venjan
er í rómantískum gamanmyndum.
Upplifunin er í anda sykurhúð-
aðrar sáluhjálpar líkt og umfjöll-
unarefni myndarinnar. Sagan segir
af sálfræðingnum og sjálfshjálp-
arfrömuðinum Burke Ryan (Aaron
Eckhart) sem hjálpar öðrum að
komast yfir missi ástvina en hefur
sjálfur ekki jafnað sig á sviplegu
fráfalli konu sinnar. Hann er upp-
rennandi Dr. Phil og fundar með
viðskiptafræðilegum stengjabrúðu-
meisturum og stórlöxum sem
hyggjast markaðssetja vörur eins
og fæðubótarefni og bumbubana
með ásjónu hans fyrir neysluóða,
ginnkeypta áhangendur. Þessir
áhangendur fylgja í blindni – eins
og margir áhorfendur – vélun kap-
ítalismans. Gangverk vélunarinnar
er afhjúpað í myndinni og það sýnt
í spaugilegu ljósi án þess þó að í
því felist bein gagnrýni. Burke er
hræsnari sem fylgir ekki eigin ráð-
um, hann er að tapa áttum í skin-
helginni milli frægðar og frama og
leitarinnar að nærandi einkalífi
fjarri flassleiftrum. Með mann-
gæskuna sér til halds og trausts
ratar hann á rétta braut en sú
vegferð kjarnar framvindu mynd-
arinnar.
Þetta er ekki mynd fyrir alvöru-
gefna né menningarsnobbara held-
ur rómantískar sálir sem heillast
af myndum með Jennifer Aniston í
aðalhlutverki. Þó má segja að hún
gegni í raun aukahlutverki í þess-
ari mynd og persóna hennar sé að-
eins samsuða af fyrri hlutverkum
leikkonunnar. Frammistaða leik-
ara er í heildina sannfærandi og
einlæg en segja má að John Car-
roll Lynch sem fer með auka-
hlutverk syrgjandi föður steli sen-
unni og auðveldi áhorfendum að
samsama sig við frásögnina. Klipp-
ingin er svolítið ruglingsleg á köfl-
um því stundum er eins og eitt-
hvað vanti og í einu atriði er
notast við stuðandi stökkklippinigu
sem hæfir ekki mynd sem er svo
fastheldin í formgerðir og klass-
íska, ósýnilega, flæðandi framvind-
uklippingu. Allir þættir mynd-
arinnar vinna þó að því að veita
áhorfendum hámarkað kaþarsis og
sykurhúðaða sáluhjálp í neyslu-
vænum umbúðum og sem slík
stendur hún fyllilega fyrir sínu.
hjordst@hi.is
Smárabíó, Regnboginn
Ástin gerir ekki boð á undan sér /
Love Happens bbbnn
Leikstjórn: Brandon Camp. Handrit:
Brandon Camp og Mike Thompson. Að-
alhlutverk: Aaron Eckhart, Jennifer An-
iston, Judy Greer, Martin Sheen, Dan
Fogler, John Carroll Lynch og Francis
Conroy. 109 mín. Bandaríkin, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Gott kaþarsis
Love Happens Ekki mynd fyrir alvörugefna eða menningarsnobbara.
Gríski heimspekingurinn Aristó-
teles var fyrstur til að skilgreina
hugtakið kaþarsis sem tilfinn-
ingalega útrás, í verki sínu Um
skáldskaparlistina. Hugtakið vísar
bæði til tilfinningalegra átaka per-
sóna í leikverki og upplifunar
áhorfenda sem fá útrás fyrir upp-
safnaða spennu við áhorfið.
Til þess að áhorfendur geti not-
ið kaþarsis verða þeir að geta
samsamað sig persónum og að-
stæðum þeirra eða borið kennsl á
formgerð frásagnarinnar og því
eru kvikmyndir sem stíla inn á
slíka tilfinningaútrás gjarnan með
afar fastmótaða framvindu. Upp-
haflega spyrti Aristóteles kaþarsis
einungis við harmleiki en í seinni
tíð getur það einnig átt við gam-
anleiki og flestar tegundir drama-
tíkur.
Kaþarsis
Nia Vardalos, stelpan úr "My big fat greek wedding" er
loksins komin til Grikklands í frábærri rómantískri gamanmynd.
HVERNIG STÖÐVARÐU
MORÐINGJA SEM ER NÚ
ÞEGAR Í FANGELSI?
SÝND Í KRINGLUNNI
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
ÞRIÐJA STÆRSTA
FRUMSÝNINGARHELGI
ALLRA TÍMA Í USA
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
ÞETTA SÖGÐU LESENDUR Á
KVIKMYNDIR.IS
„ÆÐISLEG“
„HÚN VAR ÆÐI“
„ÉG VILDI SJÁ MEIRA“
„HÚN VAR ÓLÝSANLEGA
GEGGJUГ
„GEÐVEIKT SKEMMTILEG“
Robert Pattinson og
Kristen Stewart eru
mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu
allra tíma!
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í USA Í ÁR!
„ÞEIR SEM DÝRKUÐU
FYRSTU MYNDINA...
MUNU ÁBYGGILEGA
ELSKA ÞESSA ÚTAF
LÍFINU.“
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁBÆR MYND UM UPPVAXTARÁR EINS
ÁSTSÆLASTA KÖRFUBOLTAMANN
SAMTÍMANS, LEBRON JAMES.
á allar 3D sýningar merktar með grænu850 krrSPARBÍÓ
/ KRINGLUNNI
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl.2:50D -5:20D -8D -10:10D -10:50D 12 DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.1:303D -3:403D 7 3D-DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D -83D ótextuð 7 3D-DIGITAL
MY LIFE IN RUINS kl.3:40-5:50-8 L
LAW ABIDING CITIZEN kl.10:10 16
TOY STORY 1 m. ísl. tali kl.13D L 3D-DIGITAL
UPP (UP) kl.1:30 L
/ ÁLFABAKKA
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 12 - 3 - 6 - 8 - 8:50 - 10:50 - 11:30 12 DIGITAL PANDORUM kl. 8 - 10:20 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 12 - 2:50 - 5:20 - 8 - 10:50 LÚXUS VIP LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:20 16
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 1:303D -3:403D 7 3D DIGITAL MORE THAN A GAME kl. 5:50 7
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 5:503D ótextuð 7 3D DIGITAL COUPLES RETREAT kl. 8 12
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 12 - 2 - 4 - 6 Síð. sýn. L
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 - 10:10 7 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L