Morgunblaðið - 05.12.2009, Side 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2009
ÞVÍ er spáð af
Rannsóknasetri
verslunarinnar
að jólaverslunin í
ár verði svipuð
að raunvirði og
fyrir ári. Reikn-
að er með að
veltan verði um
58 milljarðar
króna og aukist að nafnvirði um
8%, eða sem nemur um fjórum
milljörðum. Virðisaukaskattur er
þá ekki talinn með.
Í skýrslu um verslunina er bent á
að áhrif efnahagskreppunnar hafi
komið rækilega fram í jólaversl-
uninni í fyrra. Samdráttur varð um
18% frá árinu 2007, miðað við fast
verðlag, en árin þar áður hafði ver-
ið stöðug aukning. Nam samdrátt-
urinn 800 milljónum króna.
Meðal þeirra þátta sem skýrslu-
höfundar, þeir Emil B. Karlsson og
Kári Joensen, nefna að dragi úr
væntingum til aukinnar jólaversl-
unar eru minnkandi kaupmáttur,
óvissa í atvinnumálum, niður-
skurður hins opinbera, skatta-
hækkanir og minnkandi velta með
greiðslukort. Ýmis jákvæð áhrif
eru nefnd, eins og betri samkeppn-
isstaða íslenskra framleiðenda
gagnvart innflutningi, samdráttur í
verslunarferðum Íslendinga til út-
landa, minni verðbólga og aukin
bjartsýni neytenda samkvæmt
væntingarvísitölu Gallup.
bjb@mbl.is
Búist við
58 millj-
arða veltu
ÞÓ að mesta ver-
tíðin sé eftir finn-
um við þetta stig-
magnast með
hverjum deg-
inum. Það er
ekkert í kort-
unum sem segir
okkur að einhver
samdráttur verði
í sendingum með
pakka og bréf
fyrir þessi jól,“ segir Anna Katrín
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
markaðs- og sölusviðs Íslandspósts.
Hún segir aukningu hafa verið í
pakkasendingum til útlanda allt
þetta ár og aukning hafi einnig ver-
ið í jólakorta- og pakkasendingum
um síðustu jól. Anna Katrín sér
ekki fram á breytingu í ár og segir
viðbúnað Póstsins hinn sama.
Samdráttur
sést ekki í
kortunum
Pakkar Ekki færri
sendingar í ár.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SAMKVÆMT samtölum við kaup-
menn og talsmenn stærstu versl-
unarmiðstöðvanna á höfuðborg-
arsvæðinu virðist jólavertíðin fara
vel af stað. Fyrstu dagana í desem-
ber hafi verið meira að gera en á
sama tíma fyrir síðustu jól. Nú fer í
hönd fyrsta alvöru innkaupahelgin,
eftir að þorri landsmanna hefur
fengið launin sín greidd.
Henning Freyr Henningsson,
framkvæmdastjóri Smáralindar,
segir síðustu helgi hafa verið í ró-
legri kantinum en verslunin strax
tekið kipp eftir 1. desember. Jóla-
verslunin hefjist með heldur meiri
krafti en á sama tíma í fyrra. „Hér
hefur mikil stemning verið í vikunni
og við reiknum með mikilli verslun
um helgina og næstu helgar fram að
jólum. Jólaævintýrinu hefur verið
vel tekið hjá okkur,“ segir Henning
og vísar þar til ókeypis jólaskemmt-
unar fyrir fjölskylduna sem verður í
Smáralind um helgar fram að jólum.
„Við finnum fyrir breyttri kaup-
hegðun viðskiptavina, fólk spáir
meira í verðmiðann og leitar hag-
stæðustu tilboða hverju sinni.
Rekstraraðilar hafa skynjað þetta
og eru með breyttar áherslur í versl-
unum sínum,“ segir Henning.
Jákvæðni í miðbænum
Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi
verslunarinnar Kokku við Lauga-
veg, segir jólaverslunina fara vel af
stað og góð stemning sé bæði meðal
kaupmanna og viðskiptavina við
Laugaveginn. „Fólk velur frekar að
fara niður Laugaveginn en að fara til
útlanda. Við finnum minna stress,
fólk gefur sér meiri tíma í innkaupin
og vandar valið betur. Sýnir meiri
skynsemi og kaupir nytsamari jóla-
gjafir,“ segir Guðrún. Hjá henni var
strax byrjað að kaupa jólagjafir í
ágúst sl. Innkaupin hafi dreifst yfir
lengri tíma en í fyrra.
Guðrún segist einnig finna fyrir
meiri samtakamætti kaupmanna í
miðbænum en áður. Jákvæð stemn-
ing hafi skapast í kringum nýtt félag
um miðborgina. „Margt skemmti-
legt er í gangi, eins og jólamark-
aðurinn, og um helgina verður Nor-
ræna félagið með kakósölu og fleiri
uppákomur. Það er um að gera að
draga fram hið jákvæða í lífinu núna.
Við þurfum á góðum jólaanda að
halda og vera góð hvert við annað,“
segir Guðrún hjá Kokku.
Sigurjón Örn Þórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, segir
kaupmenn þar á bæ almennt vera
bjartsýna. Fyrstu dagar desember
hafi farið mjög vel í gang miðað við
síðasta ár og vonandi viti það á gott.
„Neytandinn er sér meðvitandi
um verð og leitar að hagkvæmu
verði. Ég tel að jólaverslun verði
ekki undir 8% aukningu að nafn-
virði, jafnvel heldur meira,“ segir
Sigurjón en margt verður um að
vera í Kringlunni um helgina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólaverslunin Kaupmenn í miðborginni, Smáralind og Kringlunni virðast sáttir við hvernig jólaverslunin fer af stað þetta árið, borið saman við síðasta ár.
Jólaverslunin á fullt
Kaupmenn virðast sáttir við hvernig jólaverslunin fer af stað Finna breytta
kauphegðun þar sem meira er spáð í verðlag „Þurfum á jólaanda að halda“
Árleg breyting á veltu jólaverslunar
á breytilegu verðlagi í nóv. og des.
í smásölu frá árinu 2002 og spá um veltu 2009
Heimild: Hagstofa Íslands. Spá fyrir 2009 er gerð af Rannsóknarsetri verslunarinnar
0,15
0,1
0,05
0
-0,05
-0,1
-0,15
-0,2
%
2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
Hve miklu munu Íslendingar eyða
í jólagjafir í ár?
Rannsóknasetur verslunarinnar
reiknar með að velta sem eingöngu
tengist jólagjöfum eða öðrum jóla-
innkaupum verði um 13,4 milljarðar
króna, þar af 5,6 milljarðar í dagvöru
og 7,8 milljarðar í sérvöru. Miðað við
það mun landinn að meðaltali verja
um 42 þúsund krónum til innkaupa,
borið saman við 38 þúsund í fyrra.
Hvenær eru gjafirnar keyptar?
Þrátt fyrir efnahagskreppu virðast
Íslendingar ætla að halda í fastar
hefðir yfir hátíðirnar. Könnun Rann-
sóknasetursins sýnir m.a. að mun
fleiri en áður nota allt árið til jólainn-
kaupa, eða 43% aðspurðra sem
sögðust byrja innkaupin áður en
desember gengur í garð. Þó ætla
fleiri en áður, um 10%, að vera á
lokasprettinum rétt fyrir jól.
S&S
ÞAÐ virðist
stefna í að verða
álíka margir
ferðamenn hér
um jól og áramót
og voru í fyrra,“
segir Erna
Hauksdóttir,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónust-
unnar, spurð um
horfurnar fyrir þessi jól hjá veit-
ingahúsum og hótelum.
Undanfarin ár hefur fjöldi ferða-
manna eytt jólunum á Íslandi yfir
jól og áramót. Í fyrra er talið að um
1.200 erlendir ferðamenn hafi kom-
ið hingað til lands gagngert til að
eiga íslensk jól, sem var 20% aukn-
ing frá árinu áður. Um síðustu ára-
mót voru ferðamenn hér um 3.600,
sem var örlítil fækkun milli ára.
Erna bendir hins vegar á þá þró-
un að bókunartími fyrir flug og
gistingu hafi sífellt verið að stytt-
ast. Eftir efnahagshrun í heiminum
hafi sá tími styst enn frekar. Staðan
muni því skýrast betur eftir því sem
líður á mánuðinn. bjb@mbl.is
Svipaður fjöldi
ferðamanna
Erna
Hauksdóttir
HÖFUNDAR
skýrslu Rann-
sóknaseturs
verslunarinnar
vitna m.a. í
bandaríska
hagfræðiprófess-
orinn Joel
Waldfogel í bók-
inni Nísku-
hagfræði (e.
Scroogenomics),
sem sagði: „Jólagjafir eru mesta
bruðl sem hugsast getur. Ómældu
fé er varið til kaupa á jólagjöfum
sem móttakendur hafa engan
áhuga á og nota aldrei.“
Kaupmenn eru áreiðanlega flest-
ir hverjir ekki sammála þessu en
kreppan gæti getið af sér persónu-
legri og hagkvæmari gjafir en áð-
ur. Enda er jólagjöfin í ár, að mati
sérstakrar dómnefndar, sögð vera
„jákvæð upplifun“, allt eftir efnum
og aðstæðum hvers og eins.
Mesta bruðl sem
hugsast getur?
Jólin Styttist í jóla-
pakkaflóðið.
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda