Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009
EGILL Egilsson, rit-
höfundur og kennari,
er látinn, 67 ára að
aldri.
Egill fæddist á
Grenivík 15. október
1942. Foreldrar hans
voru Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir húsmóðir
og Egill Áskelsson
bóndi.
Egill lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri
1962 og prófi í eðlis-
fræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla 1971. Hann kenndi
við Kaupmannahafnarháskóla og
danska menntaskóla 1969-1972 og
gegndi rannsóknarstöðu við Niels-
Bohr-stofnunina 1972 til 1975. Þá
flutti hann heim og kenndi eðl-
isfræði við MR og Há-
skóla Íslands frá árinu
1976.
Egill Egilsson var
rithöfundur frá árinu
1976. Eftir hann liggja
skáldsögurnar Karl-
menn tveggja tíma,
1977, Sveindómur,
1979, Pabbadrengir,
1982, Spillvirkjar,
1991, og Sendiboð úr
djúpunum, 1995. Þá
skrifaði hann nokkur
rit um eðlisfræði og
skrifaði og þýddi
greinar um vísindi og tækni í Morg-
unblaðið frá 1988.
Eftirlifandi eiginkona Egils er
Guðfinna Inga Eydal sálfræðingur.
Þau eignuðust þrjú börn, Hildi
Björgu, Ara og Bessa.
Andlát
Egill Egilsson
Á ALÞINGI í gær var Katrín Jak-
obsdóttir menntamálaráðherra m.a.
spurð hvort hún hygðist láta rann-
saka svokallaðar „bullundirskriftir“
á undirskriftalista gegn Icesave-
frumvarpinu og hvort uppruni
þeirra væri í ríkum mæli m.a. úr
tölvukerfi Ríkisútvarpsins, að því er
fram kemur í tilkynningu frá RÚV.
„Í dag kallar svo leiðarahöfundur
Morgunblaðsins eftir tafarlausri
„...opinberri lögreglurannsókn...“ á
málinu.
Af þessu tilefni spurði Ríkis-
útvarpið skipuleggjendur undir-
skriftasöfnunarinnar hversu marg-
ar „bullundirskriftir“ hefðu komið
frá IP-tölum RÚV og svarið var
„þrjár eða fjórar“. Í ljósi þessara
upplýsinga sér RÚV ekki tilefni til
frekari aðgerða í málinu,“ að því er
segir í tilkynningu frá RÚV.
RÚV telur ekki til-
efni til aðgerða
FASTEIGNASALAN Eignamiðlun
auglýsir í dag nýuppgert hús við
Grandagarð 8 í Örfirisey til sölu.
Sverrir Kristinsson, framkvæmda-
stjóri fasteignasölunnar, segir ekki
mikið af góðu atvinnuhúsnæði á
lausu á höfuðborgarsvæðinu og því
sé þetta svolítið sérstakt.
Eignin er um 4.000 fermetrar á
fjórum hæðum og er Eignamiðlun
með um 80% hennar til sölu eða þann
hluta sem fyrirtækið CCP hf. er með
á langtímaleigu. Sverrir segir það
ekki hafa breyst að gott verð fáist
fyrir góðar eignir á góðum stað, góð
sala hafi verið í atvinnuhúsnæði hjá
Eignamiðlun að undanförnu og ósk-
að sé eftir tilboðum í Grandagarð 8.
Hús við höfn til sölu
Segir ekki mikið af góðu atvinnuhús-
næði á lausu á höfuðborgarsvæðinu
Til sölu Húsið við Grandagarð 8 er
nýuppgert og rétt við Kaffivagninn.
ALLS kusu 5.876
Reykvíkingar í
netkosningu um
forgangsröðun
fjármuna til ný-
framkvæmda og
viðhaldsverkefna
í hverfum
Reykjavík-
urborgar. Kosn-
ingunni er nú lokið og 6,2% kosn-
ingabærra Reykvíkinga tóku þátt í
henni.
Íbúar í átta hverfum af tíu settu
verkefni í flokknum Umhverfi og
útivist efst í forgangsröð. Aðrir
flokkar voru Leikur og afþreying
og Samgöngur.
Alls verður 100 milljónum króna
varið til þeirra verkefna sem kosið
var um og fjármunum skipt á milli
hverfa í samræmi við fjölda íbúa.
Verkefnin tóku mið af ábendingum
íbúa, hverfaráða og íbúasamtaka,
en flestar óskir og ábendingar sem
Reykjavíkurborg berast snerta
smærri nýframkvæmdir og við-
haldsverkefni í hverfum.
Umhverfið efst í
huga Reykvíkinga
www.noatun.is
GRILLAÐUR
KJÚKLINGUR
KR./STK.
998
MEÐ HEIM
HEITT
Ódýrt,
fljótlegt
og gott!
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
20% afsláttur
af öllum buxum
Minkapelsar
Stuttir og síðir
Neyðarkall
frá Fjölskylduhjálp Íslands
Hátt í 16000 einstaklingar eru nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem
minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á að-
stoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar.
Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti
haldið gleðileg jól.
Tekið er á móti matföngum að Eskihlíð 2-4
í Reykjavík þriðjudaga kl. 9-13, miðviku-
daga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar
Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892
9603. Einnig er tekið á móti framlögum á
reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr.
101-26-66090, kt. 660903-2590. Netfang:
fjolskylduhjalp@simnet.is
Mjódd, sími 557 5900
Verið velkomnar
Erum að
taka upp
nýja skokka