Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 19

Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 verk Norðanbálið hamast svo hvorki heyrist spunahljóð né spjall. Húsbændur loka að sér í rekkjunni. Engin leið að vita hvort það er ástin eða óveðrið sem lætur allt leika á skjálfi. Heimasætan grúfir sig yfir askinn, slafrar í sig lambi og laumast til að góna á nýfermdan niðursetninginn. Það sem menn stælast af dúntekju og dagróðrum! Svo er bitinn búinn en meira bíður inni í eldhúsi. Göngin fyllast af forvitnum draugum (aðallega fyrri ábúendur og stöku útburður). Stúlkan olnbogar sig að hlóðunum og lyftir upp lokinu. Þá berst brölt af sperru, spyrnt er í háfinn. Krókur sígur niður úr kófinu, glampandi öngull í myrkurhyl. Sterklegar greipar ljúkast um færið. Stúlkan bregst skjótt við, handtökin snör eftir spuna og gegningar. Hún grípur krókinn og festir við klukku og kot. ,,Hirtu ekki um kjötið! Steldu mér! Ég er steini léttari!“ Gerður Kristný. Morgunblaðið/Sverrir Greppitrýni Kjötkrókur er hrekkjalómur sem stundum nær sér í heimasætu og hann á sér mörg andlit. Ketkrókur kemst í feitt Morgunblaðið/Ásdís Frostbitinn Hér er heldur meiri harðindasvipur á karlinum. Ljóð með jólaóróa Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Setjið kerti aldrei nálægt tækjum sem gefa frá sér hita s.s. sjónvarpi. Hiti frá tæki veldur aukinni hættu á óhappi. Munið að slökkva á kertunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.