Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 33

Morgunblaðið - 16.12.2009, Side 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009 Sudoku Frumstig 4 9 7 4 6 7 3 5 6 7 3 5 7 9 4 2 2 9 4 3 5 5 7 4 1 3 1 5 4 8 1 6 5 7 2 3 1 6 5 4 2 3 3 7 8 6 3 5 2 4 7 4 1 7 6 3 1 9 9 6 8 7 1 2 9 5 3 9 1 5 8 4 6 3 2 6 1 7 2 3 9 8 5 4 2 3 4 5 7 8 9 1 6 8 5 9 4 6 1 7 3 2 7 2 1 9 4 6 3 8 5 9 6 3 8 1 5 2 4 7 5 4 8 7 2 3 6 9 1 1 8 5 6 9 2 4 7 3 3 7 6 1 8 4 5 2 9 4 9 2 3 5 7 1 6 8 6 1 7 2 5 9 3 8 4 4 2 5 8 6 3 7 9 1 3 9 8 4 7 1 2 5 6 2 8 4 1 9 5 6 3 7 1 6 3 7 8 4 5 2 9 7 5 9 3 2 6 1 4 8 5 7 2 9 1 8 4 6 3 8 3 1 6 4 2 9 7 5 9 4 6 5 3 7 8 1 2 5 1 3 7 8 6 9 4 2 7 2 6 9 1 4 8 5 3 8 4 9 3 2 5 6 1 7 2 6 8 4 5 3 7 9 1 4 3 5 1 7 9 2 6 8 1 9 7 2 6 8 4 3 5 3 8 2 6 4 1 5 7 9 6 5 1 8 9 7 3 2 4 9 7 4 5 3 2 1 8 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 16. desember, 350. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Jesús horfði á þá og sagði: „Fyrir mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði. Guð megnar allt.“ (Mk. 10, 27.) Fáir gera jafn mörg mistök ívinnunni og knattspyrnumenn. Þeir sparka fram hjá markinu þegar þeir ætla að sparka í það. Þeir gefa á andstæðinga þegar þeir ætla að gefa á samherja. Í hvert skipti, sem öðru liðinu tekst vel upp, er víst að hitt lið- ið brást. Engu að síður eru atvinnu- menn í knattspyrnu margir hverjir með rífandi laun og urmull mistaka í vinnunni breytir þar engu. Virðist langlundargeð vinnuveitenda í þess- ari atvinnugrein vera meira en al- mennt gerist. x x x Víkverji hefur sjaldan séð jafn af-drifarík mistök hjá leikmönnum í knattspyrnu og í leik Borussia Mönchengladbach og Hannover 96 í þýsku knattspyrnunni um helgina. Leikmenn Hannover skoruðu sex mörk í leiknum, en töpuðu samt. Þrjú markanna voru sjálfsmörk. Það fyrsta var reyndar með slysalegri hætti því að boltanum var skotið í varnarmann og hrökk af honum í netið. Næstu tvö sjálfsmörkin voru hins vegar með ólíkindum því að í tví- gang hugðust varnarmenn koma boltanum á markmanninn, en voru ekki nákvæmari en svo að þeir sendu boltann í netið. Ekki var laust við að leikmenn Borussia Mönchenglad- bach hefðu samúð með andstæð- ingum sínum eftir leikinn. Þeir ættu hins vegar að senda þeim blóm og þakkarkort því að þeir þurftu bara að skora tvö mörk sjálfir til að vinna 5-3. x x x Liðsmenn Hannover hafa ugg-laust nagað sig í handarbökin, en það er spurning hvað leikmann Stuttgart hafa nagað eftir að mark- maður þeirra, Jens Lehmann, greip til þess ráðs að stíga á rist andstæð- ings síns og hrinda honum í eigin vítateig. Lehmann var umsvifalaust vísað af velli og vítaspyrna dæmd. Stuttgart missti unninn leik niður í jafntefli. Lehmann hefur alltaf valdið áhangendum þeirra liða, sem hann hefur spilað með, ótta og kvíðaköst- um með uppátækjum sínum. Það mun ekki breytast úr þessu. víkver- ji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 sparsemi, 4 rökkvar, 7 illmennin, 8 líkamshlutarnir, 9 mátt- ur, 11 skökk, 13 grenja, 14 kynið, 15 óhreinlyndi, 17 tanga, 20 ambátt, 22 kyrrt vatn, 23 starfið, 24 ránfugls, 25 glatar. Lóðrétt | 1 viðarbörkur, 2 verkfærin, 3 duglega, 4 trygg, 5 veggir, 6 stokk- ur, 10 káfa, 12 gála, 13 elska, 15 drukkna, 16 skrökin, 18 dugnaður- inn, 19 afkomendur, 20 skordýr, 21 valkyrja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kostulegt, 8 lómur, 9 telur, 10 tól, 11 tarfa, 13 ansar, 15 kýrin, 18 fanga, 21 afl, 22 sunnu, 23 æstan, 24 ráðsvinna. Lóðrétt: 2 ormur, 3 terta, 4 litla, 5 gulls, 6 flot, 7 frár, 12 fúi, 14 nía, 15 kots, 16 Rangá, 17 nauts, 18 flæsi, 19 nót- in, 20 anna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 g6 4. Rf3 Bg7 5. O-O O-O 6. c4 d6 7. Rc3 c6 8. d5 e5 9. dxe6 Bxe6 10. b3 Ra6 11. Rg5 De7 12. Rxe6 Dxe6 13. Bb2 Had8 14. e3 Rc5 15. Dc2 Hfe8 16. Had1 Rg4 17. Hfe1 Df7 18. h3 Rf6 19. b4 Rce4 20. Rxe4 Rxe4 21. Bxg7 Dxg7 22. b5 De5 23. bxc6 bxc6 24. Hd4 Hd7 25. Hed1 h5 26. h4 Kh7 27. Da4 Dc5 28. Hd5 Db6 Staðan kom upp á hraðskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Osló í Nor- egi. Norski ofurstórmeistarinn Magnus Carlsen (2801) hafði hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Vikt- oriu Cmilyte (2480) frá Litháen. 29. c5! Rxc5 30. Hxc5! Dxc5 31. Bxc6 og svartur gafst upp enda liðstap óumflýjanlegt. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þrjár svíningar. Norður ♠K62 ♥ÁD54 ♦Á43 ♣K86 Vestur Austur ♠G1093 ♠D8754 ♥8 ♥K2 ♦K875 ♦1096 ♣9743 ♣D52 Suður ♠Á ♥G109763 ♦DG2 ♣ÁG10 Suður spilar 6♥. Spaðagosinn kemur út og sagnhafi horfir fram á þrjár svíningar – í trompi, tígli og laufi. Alla vega tvær virðast þurfa að heppnast. Hverjar eru líkurnar á því? Líkja má svíningum við krónukast. Sé kastað þrisvar upp eru mögulegar útkomur: (1) bergrisi, bergrisi, berg- risi; (2) bergrisi, bergrisi, þorskur; (3) bergrisi, þorskur, þorskur; (4) þorskur, þorskur, þorskur. Líkur á tveimur eða þremur risum eru því 50%. Og hið sama gildir um svíningar. Nokkuð gott, en sagnhafi getur gert betur. Hann á að byrja á tígulsvíning- unni. Þegar hún heppnast er best að taka ♥Á, henda tígli í ♠K, trompa út tígul og spaða, senda loks vörnina loks inn á ♥K. Svíningin í laufi er þá óþörf, því austur verður að spila spaða í tvö- falda eyðu eða finna ♣D. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er ekki nóg að fá hugmyndir ef þú hrindir þeim ekki í framkvæmd. Stattu af þér storminn – það lygnir aftur fyrr en varir. Skemmtilegt jólaball er framundan. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ekki er allt sem sýnist og það er þitt verk að komast að hinu sanna. Ef þú dreifir athygli þinni of mikið áttu á hættu að ekkert gangi upp. Nú er góður tími til að taka geymsluna í gegn. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Leggðu áherslu á jákvæða styrk- ingu á vinnustað, þannig fer sem minnst- ur tími til spillis. Hafðu það í huga að vel unnin verk vekja athygli. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Notaðu tækifærið og gerðu áætl- anir í tengslum við vinnu eða starfsframa. Félagslífið gengur vel í dag. Þú færð heimboð. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert vinsæl/l meðal vina og stend- ur þig frábærlega í vinnunni. Þú ert kvíð- in/n vegna peningamála, hugsaðu jákvætt og vandamálunum fækkar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Fólk í kringum þig er ofurvið- kvæmt í dag. Mundu samt að dramb er falli næst og að ekki eru allir viðhlæj- endur vinir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú þykist vita hvernig breyta á ein- hverjum nákomnum til hins betra. Þú ert beðin/n um álit, hugsaðu þig vel um. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Hjálpaðu öðrum í neyð. Njóttu þess að vera með ástvinum þínum og þakkaðu fyrir það sem þú átt. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú vinnur sífellt fleiri persónu- lega sigra, það fleytir þér áfram í átt að því að uppfylla drauma þína. Grænn er lit- ur þinn þessa dagana. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur fyllstu ástæðu til þess að vera ánægður með framlag þitt í vinnunni. Vertu augu og eyru þeirra sem ekki fylgjast með. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Hver er sinnar gæfu smiður segir máltækið og það á við þig sem aðra. Gefðu þér því nægan tíma til að undirbúa hlutina. Gamall vinur hefur samband. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Einhverjir möguleikar virðast á ferðalagi en ljóst að þú þarft að hafa öll spjót úti til þess að af því verði. Líkams- ræktin hefur setið á hakanum undanfarið, breyttu því. Stjörnuspá 16. desember 1879 Ingibjörg Einarsdóttir, kona Jóns Sigurðssonar, lést í Kaupmannahöfn, 75 ára, að- eins níu dögum eftir að Jón lést. Þau voru jarðsungin í Reykjavík 4. maí 1880. 16. desember 1916 Átta þingmenn, aðallega úr hópi bænda, stofnuðu Fram- sóknarflokkinn. Fyrsti for- maður hans var Ólafur Briem. 16. desember 1922 „Nonni, brot úr æskusögu Íslendings“ eftir Jón Sveinsson kom út í þýðingu Freysteins Gunn- arssonar, níu árum eftir út- gáfu bókarinnar í Þýskalandi. Þetta var upphaf ritsafns Nonna. 16. desember 1967 Hafin var sala á mjólk í fern- um. Áður voru hyrnur og flöskur helstu umbúðirnar og höfðu tekið við af mjólkur- brúsum. 16. desember 1993 Guðlaugur Pálsson kaup- maður lést, 97 ára. Hann stofnaði verslun á Eyrarbakka árið 1917 og rak hana til dauðadags eða í 76 ár, öllum öðrum lengur hérlendis. 16. desember 2008 Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda framan við Ráðherrabústaðinn við Tjarn- argötu áður en ríkisstjórn- arfundur hófst þar. Ráðherr- arnir fóru flestir inn um bakdyr. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ég ætla að hitta nánustu fjölskyldu, systkini mín og systkini konu minnar koma í heimsókn í léttan kvöldverð,“ segir afmælisbarnið Kjartan K. Stein- bach, sem fyllir sjötta tuginn í dag. Hann kveðst ekki vanur að gera stórmál úr afmælisdeginum, þótt nokkurs konar opið hús sé oft fyrir þá sem vilji líta inn. Stórveislan var afgreidd á fertugs- afmælinu. Kjartan er rafmagnstæknifræðingur að mennt og rekur verkfræðistofuna Afl og orku ásamt nokkrum öðrum. Stofan heldur áfram í kreppunni en þó hefur þurft að grípa til sársaukafullra að- gerða svo sem að fækka starfsfólki. „En það eru ennþá nokkrir kallar að vinna þarna hjá okkur,“ segir hann í léttum dúr. Hann og eigin- kona hans, Marta Guðmundsdóttir, eiga þrjú börn. Yngsti sonurinn er sextán ára en hin börnin flutt að heiman. Meira að segja hafa tvö barnabörn bæst í hópinn. Kjartan er ekki síst þekktur í íþróttaheiminum. Hann er reyndur handknattleiksdómari, situr í stjórn Handknattleikssambands Íslands og var meðal annars formaður dómaranefndar Alþjóðahandknatt- leikssambandsins á árunum 1996 til 2004. onundur@mbl.is Kjartan K. Steinbach er sextugur í dag Aflið, orkan og handboltinn Nýirborgarar Reykjavík Steinar Ingi fæddist 13. febrúar kl. 4.05. Hann vó 3.685 g og var 51 cm langur. For- eldrar hans eru Guðrún Erla Sigfúsdóttir og Vil- mundur Theodórsson. Reykjavík Ólafur Marel fæddist 18. október kl. 19.59. Hann vó 4.455 g og 53 cm langur. Foreldrar hans eru Anna Dóra Ólafsdóttir og Halldór Hlíðar Bergmundsson. Reykjavík Gunnar Freyr fæddist 3. febrúar kl. 18.27. Hann vó 2.385 g og var 47 cm langur. For- eldrar hans eru Ingibjörg Fönn Einarsdóttir og Runólfur B. Elíasson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.