Morgunblaðið - 16.12.2009, Page 36

Morgunblaðið - 16.12.2009, Page 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2009  Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen, sem notar eftirnafnið sem listamannsnafn, hefur sent frá sér breiðskífuna Lover in the Dark. Skífan sú er jafnframt sú síðasta sem útgáfan Borgin sendir frá sér fyrir jól, enda æði stutt til jóla. Berndsen ku sækja í fortíðina í tón- list sinni, þá er einkenndi 9. áratug síðustu aldar. Lover in the Dark var unnin í samstarfi við Hermi- gervil en á henni er að finna popp undir sterkum áhrifum frá syntha- popptónlist 9. áratugs síðustu ald- ar, m.a. O.M.D, Ultravox og Pet Shop Boys. Plata Berndsen bætist í jólaplatnaflóðið Fólk IMBINN.IS er nýr vefur Janusar Braga Jakobs- sonar heimildargerðarmanns. Janus útskrifaðist frá Danska kvikmyndaskólanum síðastliðið vor og fljótlega uppúr því kviknaði hugmyndin um Imbann. „Ég talaði mikið við Mugison og Rúnu konuna hans og konuna mína, Tinnu Ottesen. Rúnu og Mugison, sem búa hérna fyrir vestan, hefur lengi fundist vanta eitthvað fyrir fólk á dvalarheim- ilum. Það er útvarp og sjónvarp seinna á daginn, en það vantar einhverja meiri afþreyingu, en þetta hefur nú þróast aðeins og höfðar til allra,“ segir Janus. Vefsíðan sýnir stuttar heimildar- myndir Janusar þar sem hann talar við vest- firskt fólk. „Þetta er á sama tíma söfnun á sögum og heimildum um Vestfirði. Þessi staður hefur allt- af heillað mig, þetta er afskekkt og á mörgum stöðum er ekki mikið um byggð og er þar af leið- andi ósnert, maður býr öðruvísi hérna.“ Janus Bragi lýsir því hvernig orðatiltækið maður er manns gaman á vel við á Vestfjörðum. „Fólk þekkist mikið, það er ekki alltaf tækifæri til að fara í leikhús eða bíó þannig að það er því vant að skemmta sér og öðrum sjálft.“ -Stendur til að gera eitthvað líkt þessu í fleiri landshlutum? „Það kemur vel til greina, allir landshlutar hafa eitthvað upp á að bjóða, einhver einkenni. Það myndi gefa mér tækifæri til að kynnast nýju fólki og ferðast,“ segir hann að lokum. kristrun@mbl.is Vestfirðingar myndaðir Halldór Hermannsson Eldhress Vestfirðingur.  Hin geysiöfluga útgáfa Nýhil hefur nú sent frá sér ritgerðasafnið Af marxisma í ritstjórn Magnúsar Þórs Snæbjörnssonar og Viðars Þorsteinssonar. Verkið inniheldur fimm frumsamdar greinar og fjór- ar þýðingar sem fjalla um menn- ingu, hugmyndafræði og stjórnmál samtímans með hliðsjón af marx- ískri kenningahefð. Bókin er prýdd marxískum klippimyndum eftir rit- höfundinn Óttar M. Norðfjörð. Dæmi um slíka klippimynd má finna á nyhil.org, tvær léttklæddar konur að velta því fyrir sér hvort þær muni sjá útópíu Marx rísa upp úr rústum auðvaldskerfisins. Marxískar klippimyndir að hætti Óttars M. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is SYNIR Rúnars heitins Júlíussonar og Maríu Bald- ursdóttur, þeir Baldur og Júlíus, hafa unnið hörðum hönd- um að því að halda minningu föður síns á lofti í ár, með út- gáfu og tónleikahaldi auk þess að opna safn til minningar um hann. 2. maí sl. voru haldnir miklir minningartónleikar um Rúnar sem nú eru komnir út á tvöföldum diski. Auk þess hefur verið gefin út önnur tvöföld plata, Geimsteinn 33 1/3 ára, sem inniheldur öll bestu lög útgáfunnar. Rúnar og María stofnuðu hljómplötuútgáfuna Geimstein árið 1976 og sex árum síðar settu þau á laggirnar hljóðver á heimili sínu í Keflavík. Var það nefnt Upptökuheimilið Geimsteinn. Blaðamaður ræddi við Baldur í gær og spurði hvort ekki hefði verið erfitt að velja lög á Geimsteins-plötuna í ljósi þess hversu viðamikil útgáfan er orðin hjá þessari elstu hljómplötuútgáfu landsins. „Þetta er náttúrlega orðaleikur eins og Rúnari var mjög tamur,“ segir Baldur um titil plöt- unnar, vísað þar í snúningshraða LP-platna. „Við hefðum alveg getað farið út í þrefaldan, fjórfaldan disk,“ svaraði Baldur en benti á að afmæli útgáfunnar hefði áður verið fagnað með plötuútgáfu. Þeir bræður völdu lögin á diskana tvo en nutu einnig aðstoðar sonar Baldurs, Björgvins Ív- ars. Nokkur ný lög má finna á plötunni, m.a. „Ég sá ljósið“ flutt af Sigurði Guðmundssyni og lög með hljómsveitinni Lifun sem Björgvin stýrir, en þau hafa ekki hafa komið út áður á plötu. Gekk frá öllu Rúnar gerði það aldrei endasleppt og á dánarárinu 2008 var hann á fullu stími. „Hann hélt yfirlitstónleika í Laug- ardalshöll, hann gifti sig, það kom út ævisaga hans, hann fékk heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna, var útnefndur Listamaður Reykjanesbæjar og tók saman safndisk,“ rifjar Baldur upp, en safndiskurinn Söngvar um lífið kom út í fyrra. „Við erum farin að halda það,“ svarar Baldur, spurður að því hvort haldi að faðir hans hafi fundið það á sér að hann ætti stutt eftir. „Það var gengið frá öllu, einhvern veginn. Það eina sem klikkaði var að Keflvíkingar urðu ekki Íslandsmeistarar í knattspyrnu,“ bætir hann við. Fjölsnærður Rúni Júl Uppáhaldsgítarinn Rúnar með uppáhaldsgítarinn sinn. Ljósmyndarinn segir í bók sinni að Rúnar hafi minnt sig á Johnny Cash, hokinn af lífsreynslu. Margir kóngar Elvis Presley á vegg, Rúnar í eldhúsinu og Hljómar á mynd fyrir ofan eldhúsdyrnar. Kveðja Í bók sinni segir Þorfinnur að engu líkara sé en Rúnar gangi til móts við ljósið, kvaddur með krossmarki. Rokkgoðsins Rúnars Júlíussonar er minnst með veglegri jólaútgáfu Ljósmynd/Þorfinnur Sigurgeirsson Þorfinnur Sigurgeirsson heim- sótti Rúnar laugardaginn 30. ágúst í fyrra í þeim tilgangi að taka ljósmyndir af honum fyrir diskasafnið Söngva um lífið. Þorfinnur og Baldur, sonur Rún- ars, eru æskuvinir og eftir að Þorfinnur hóf störf sem auglýs- ingateiknari leitaði Rúnar til hans með hönnun á geisla- diskaumslögum og fleiru tengdu tónlistinni. Rúnar lést 5. desember í fyrra og segir Þorfinnur þessa skrásetningu sína af degi í lífi rokkgoðsins hafa öðlast dýpri merkingu fyr- ir vikið. „Þá fór maður að sjá líka alls konar tákn og forboða í myndunum,“ segir hann. „Þó að hann væri kannski ekkert að flíka því sjálfur þá hafði maður á tilfinningunni að hann vissi meira en aðrir í hvað stefndi.“ – Þó alltaf sami töffarinn … „Hann hét því þegar hann kom úr hjartaaðgerð að hann myndi gera a.m.k. eina plötu á ári,“ segir Þorfinnur. Þegar Rúnar hafi komið með diska- safnið Söngva um lífið til hans hafi hann sagst vera búinn að gera upp þetta tímabil og svo myndu þeir gera eitthvað skemmtilegt á næsta ári, nýtt efni. „Þá sagði ég við hann: Við skulum vona það, ef Guð lofar. Nokkrum dögum síðar hringir Baldur í mig og segir að hann sé dáinn.“ Ljósmyndirnar sem Þorfinnur tók eru nú komnar út á bók sem ber titilinn Dagur með Rúnari – laugardagur 30. ágúst 2008. Tákn og forboðar  Þeir gera það ekki endasleppt, félagarnir í rokksveitinni Nögl, en á dögunum tóku þeir upp mynd- band við jólalag uppi á Turninum við Smáratorg. Um er að ræða rokkaða útgáfu af slagaranum „Snjókorn falla“. Það gekk ekki skammlaust að komast á toppinn, en húsvörðurinn víldi fá skriflegt loforð um að liðsmenn myndu ekki „klikkast og stökkva framaf“! Til að auka á dramatíkina fór svo að sjálfsögðu að snjóa þegar upptökur voru nýhafnar – og myndbandið og lagið bera því nafn með rentu. Myndbandið er hægt að nálgast á Youtube og Tonlist.is en einnig er það í spilun á Nova TV. Hljómsveitin Nögl í hæstu jólahæðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.