SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Blaðsíða 9
9. maí 2010 9
Aðeins fáir einstaklingar ráða
við að gera marga hluti sam-
tímis án þess að það komi niður
á frammistöðu þeirra. Heilinn á
í öllu falli erfitt með fleiri en tvö
verkefni á sama tíma. Þetta sýna
tvær rannsóknir sem vefsíðan
forskning.no greinir frá.
Flest höfum við heyrt af fólki
sem virðist geta horft á sjón-
varp, prjónað heilu peysurnar,
eldað mat, skrifað tölvupóst,
straujað skyrtur og lesið blaðið -
og það allt í einu. Við köllum
þetta fólk stundum „múltítask-
ara“.
Allar líkur eru þó á að þetta
fjölhæfa fólk komist í hann
krappan við þessa fjölbreyttu
iðju hvort sem það birtist í
lykkjufalli, ofsteiktum fiski,
brenndum skyrtum eða erótísk-
um tölvupósti sem sendur er á
vitlausan viðtakanda.
Aðeins 2,5 prósent ofurfólk
Eldri rannsóknir hafa sýnt að
þeir sem skipta stöðugt á milli
sjónvarpsrása ráða ekki við fjöl-
miðlaflakkið. Þvert á móti
gengur þeim æ ver að fylgjast
með því sem er á skjánum.
Sennilega ofmetum við hæfi-
leika okkar, t.a. mynda við
akstur. Sálfræðingar við Há-
skólann í Utah í Bandaríkjunum
fundu út að aðeins 2,5 prósent af
200 manna úrtaki réðu við að
aka og tala í farsíma í einu, án
þess að það kæmi niður á akstr-
inum eða að það leiddi til lélegri
niðurstaðna á prófum sem lögð
voru fyrir þá í gegnum farsím-
ann. Fyrst óku þátttakendur í
aksturshermi án þess að verða
fyrir truflandi áhrifum á meðan.
Síðan áttu þeir að tala í farsím-
ann í gegnum handfrjálsan bún-
að á meðan vísindamenn mældu
viðbragðsflýti og minni þátttak-
enda.
Þeir örfáu sem réðu við að-
stæðurnar að fullu hafa vísinda-
mennirnir í Utah nefnt „super-
taskers“ eða ofurfólkið. Hinir,
sem ekki náðu þeirri nafnbót,
notuðu t.d. um 20 prósent
lengri tíma til að hemla á meðan
þeir töluðu í símann og minnið
versnaði um 11 prósent. Of-
urfólkið var hins vegar jafn fljótt
að hemla og bætti beinlínis
minni sitt örlítið.
Skiptir það svo einhverju máli
hvort ökumaðurinn notar
handfrjálsan búnað við akstur
eða ekki? Ekki ef marka má fyrri
rannsóknir sömu vísinda-
manna. Í raun veldur samtalið
sjálft truflunum hjá ökumann-
inum. Þetta styðja aðrar rann-
sóknir.
Þriðja verkefnið of mikið
Jason Watson, sálfræðingur við
Utah-háskóla, segir að í raun
eigi ofurfólkið ekki að vera til.
Akstur sé í sjálfu sér margþætt
verkefni, þótt ekki sé nema að
setjast á bak við stýrið. Þegar
símtal sem felur í sér að leysa
verkefni bætist við verði það of
mikið fyrir flesta.
Í raun kemur í ljós að fleiri en
tvö verkefni í einu geta verið of
mikið fyrir flesta, ef markmiðið
er að leysa þau með nákvæmni.
Þetta kemur fram í annarri
rannsókn sem nýlega var birt í
tímaritinu Science. Þar komast
franskir vísindamenn að því að
þegar reynt er að leysa tvö
verkefni samtímis skiptir heila-
svæði sem kallast „medial pref-
rontal cortex“ með sér verkum.
Helmingur svæðisins tekur
annað verkefnið að sér og hinn
helmingurinn hitt. Sé þriðja
verkefnið inni í myndinni flækj-
ast málin um of; heilinn erfiðar
of mikið sem kemur niður á ná-
kvæmninni við að leysa verk-
efnið. Þannig sé t.a.m. mögulegt
að elda mat og tala í síma sam-
tímis en í raun gangi ekki að
leysa þriðja verkefnið um leið,
eins og að lesa blaðið.
Norskir vísindamenn segja
bandarísku könnunina renna
styrkari stoðum undir fyrri
staðhæfingar um að réttast væri
að banna farsímasamtöl meðan
ekið er, óháð því hvort notast sé
við handfrjálsan búnað eða ekki.
Handfrjálsi búnaðurinn gefi í
raun falskt öryggi en hins vegar
geti verið erfitt að snúa við þró-
uninni.
„Múltítaskarinn“ dauður
Akstur og símaspjall er meira en flestir dauðlegir ráða við í senn.
Morgunblaðið/Þorkell
Náðu utan
um verkefnin!
Kynntu þér MPM, meistaranám í verkefnastjórnun
Spennandi kostur fyrir þá sem hafa áhuga á mjög
hagnýtu stjórnunarnámi.
Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun í umboði
alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
Skemmtilegir nemendur og heimsþekktir kennarar.
Opnar starfsvettvang víða í íslensku samfélagi og
um allan heim.
Tveggja ára nám samhliða starfi.
Umsóknarfrestur er til 17. maí
Inntökuskilyrði:
B.A./B.S./B.Ed. eða sambærilegt.
Minnst þriggja ára reynsla úr atvinnulífinu.
Reynsla við verkefnavinnu æskileg.
Vor í íslenskri verkefnastjórnun
Við vekjum einnig athygli á ráðstefnu um verkefna-
stjórnun sem fram fer á Hótel Sögu föstudaginn
21. maí kl. 13–17.
Nánari upplýsingar um MPM-námið færðu á mpm.is
www.mpm.is
PI
PA
R
\T
B
W
A
\
SÍ
A
1
0
1
2
2
1