SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Síða 29
9. maí 2010 29
É
g var umfram allt þakklátur guði fyrir það hversu falleg og dugleg hún var,“
segir Kristinn Björnsson, faðir Melkorku Kristinsdóttur, sem fæddist á 34. viku
meðgöngu.
Það er fróðlegt að fá tækifæri til að skyggnast inn í heim vökudeildar Land-
spítalans í einlægri og fallega skrifaðri grein Ingunnar Eyþórsdóttur í Sunnudagsmogg-
anum í dag.
Ingunn deilir þar reynslu sinni með lesendum, en hún er sjálf fyrirburamóðir, auk þess
sem hún lýsir þeirri starfsemi sem fram fer á vökudeild.
Þar kemur fram að á árunum 1999-2007 lifðu 92% barna, sem lögðust inn á vökudeild
Barnaspítala Hringsins, sem voru á bilinu 1000-1500 grömm að fæðingarþyngd. Þá lifðu
88,2% þeirra barna sem vógu minna en 1000 grömm við fæðingu.
„Yngsta barn sem lifað hefur hérlendis sem um er vitað fæddist etir 23 vikna og fimm
daga meðgöngu og það léttasta vó rétt innan við 500 grömm. Nú er svo komið að meirihluti
minnstu fyrirburanna lifir, eftir allt að 23-24 vikna meðgöngulengd.“
Og niðurlagið er hjartnæmt: „Einstaka meðganga eða fæðing getur reynst lífshættuleg.
Öflugt mæðraeftirlit og góð fæðingarhjálp eru hornsteinn að velferð nýburans. Ávallt þarf
að gera ráð fyrir að nýfætt barn geti þurft á hjálp að halda á fyrstu mínútum lífsins. Þrátt
fyrir að tíðni burðarmálsdauða á Íslandi sé með því lægsta sem þekkist í heiminum verður
aldrei hægt að bjarga öllum börnum. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst lífið á vökudeild
um að lifa af. Þar gerast kraftaverk á hverjum degi.“
Þrátt fyrir fámennið getum við Íslendingar verið stoltir af því heilbrigðiskerfi sem byggt
hefur verið upp hér á landi. Mikilvægt er að hafa það í huga í þeim niðurskurði sem fram-
undan er í ríkisfjármálum og þegar stjórnvöld semja fyrir hönd þjóðarinnar um greiðslu á
skuldum, sem stofnað var til af einkafyrirtækjum.
Það er við hæfi að gera mæðrum hátt undir höfði í Sunnudagsmogganum á mæðradag-
inn. Í tilefni af því skrifar Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, pistil sem
birtist í blaðinu í dag, þar sem hann bendir á að margar konur hafi fyllstu ástæðu til að ótt-
ast afleiðingar þess að verða móðir.
„Þegar kona deyr af barnsförum í ríkum löndum er gengið út frá því sem vísu að eitthvað
hafi farið úrskeiðis. Í þróunarríkjum er það hins vegar talið gangur lífsins að kona lifi ekki af
fæðingu barns. Í sumum löndum deyr áttunda hver kona við að fæða barn. Þungun og fæð-
ing eru helsta dánarorsök stúlkna á aldrinum 15 til 19 ára í heiminum.
Í fátækum ríkjum verða ófrískar konur oft að sjá alveg um sig sjálfar; þar er engri heilsu-
gæslu til að dreifa og þær eiga ekki í neitt skjól að leita. Þær eiga oft í vandræðum með að
næra sig sómasamlega og vinna langan vinnudag í verksmiðjum eða úti á ökrum, þar til þær
eru komnar á steypirinn. Þær fæða oftast heima, og njóta í mesta lagi aðstoðar ófaglærðrar
ljósmóður.“
Og auðvitað er það rétt sem hann segir, að engin kona ætti að gjalda fyrir það með lífi
sínu að gefa líf:
„Við vitum hvernig hægt er að bjarga lífi mæðra. Einfaldar blóðprufur, mæðraskoðun og
lágmarkshjálp fagfólks við fæðingu skipta sköpum. Ef bætt er við einföldum fúkkalyfjum,
blóðgjöf og öruggum aðstæðum eru verðandi mæður nánast ekki lengur í neinni lífshættu.“
Kraftaverk á hverjum degi
„Við erum búin að skapa íslenskt
sumarveður í skálanum sem þykir
mjög þægilegt.“
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, kynningarstjóri
framlags Íslands á heimssýningunni Expo
2010 í Sjanghæ.
„Hann er sá leikmaður í
deildinni sem ég tel að verði
sá besti í sögunni.“
Larry Bird um LeBron James, leikmann
Cleveland Cavaliers í bandaríska körfu-
boltanum.
„Engar fjárfestingar
skila jafn miklum arði og
framlög til stjórnmála-
manna.“
William K. Black, fræðimaður við há-
skólann í Missouri, í fyrirlestri í Há-
skóla Íslands.
„Ef ég gerði það ekki
færi eflaust að styttast
í að ég yrði tilbúinn
fyrir tréverkið og ég
gæti farið að velja
sálmana.“
Pétur Þorsteinsson, prestur hjá Óháða söfn-
uðinum, spurður hvort hann myndi halda upp á 55
ára afmælið sitt sl. miðvikudag.
„Ef ég væri samkynhneigður, þá
held ég að Woody Allen yrði einn
þeirra sem ég myndi vilja vera
með.“
Bandaríski leikarinn David Duchovny.
„Ég mun ekki koma til með
að líta út eins og Barbie í
nánustu framtíð.“
Breska söngkonan Susan
Boyle.
„Konur [munu] allt-
af þurfa að kaupa sér
föt.“
Eyrún Ösp Hauksdóttir versl-
unareigandi.
„Ég man að mér
var boðin vinna í
kortér.“
Stefán Bjarnason verkamað-
ur man tímana tvenna en
hann varð 100 ára á föstu-
dag.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal
einnig fram um að líkjast forvera sínum, enda virð-
ist markmið þeirrra Steingríms og Jóhönnu vera að
færa gömlu svindlurunum Ísland aftur á silfurfati
og það sem allra fyrst.
Þessir forystumenn hafa nú eytt heilu ári í það að
sannfæra annars vegar Breta og Hollendinga og
hins vegar Alþingi Íslendinga um að íslenskir
skattgreiðendur beri ábyrgð á „tærri snilld“ stjórn-
enda gamla LÍ. Augljóst er að nefnd Alþingis sem
fjalla á um hugsanlega ákvörðun um að senda mál
ótilgreindra ráðherra til Landsdóms kemst ekki hjá
því að kanna framgöngu og heimildarlausar undir-
skriftir þessara tveggja ráðherra í tengslum við Ice-
save. Virðist það mál vera miklu upplagðara til ein-
faldrar niðurstöðu en önnur þau álitaefni sem
fjallað verður um. Sá kafli rannsóknarskýrslu
nefndar Alþingis sem fyrir liggur og snýr að Icesave
og um ábyrgð ríkisins vegna þess reiknings er
næsta ótvíræður og framganga þeirra Steingríms og
Jóhönnu með sama hætti því væntanlega næsta
óumdeilt brot gegn almannahagsmunum þeim sem
Landsdómi ber að lögum að fjalla um. Ósannindi
forsætisráðherrans á Alþingi um launamál seðla-
bankastjóra eru örmál hjá þessu, þótt vont sé.
Talsmenn íslenska ríkisins hafa hins vegar lýst
það ábyrgt fyrir öðrum mikilvægum þætti. Þeir
hafa sagt það ábyrgjast allar innistæður í íslenskum
bönkum. Á sama tíma og hamast hefur verið við að
fá Alþingi til að samþykkja í atkvæðagreiðslu rík-
isábyrgð á Icesave fyrir Breta og Hollendinga hefur
ekkert verið gert til að tryggja lagagrundvöll fyrr-
nefndu yfirlýsingarinnar. Sú yfirlýsing er þar með
því miður harla marklítil og mun enginn maður
geta heimt sitt frá ríkinu á grundvelli hennar fari
hið nýja bankakerfi þessa lands illa í næstu bylgju
alþjóðlegra efnahagslegra hörmunga, sem vaxandi
líkur eru nú á að yfir dynji. Allir góðir menn vona
heitt að þau óefni verði ekki. Gerist það, gagnstætt
þeim vonum, mun koma á daginn að sú stjórn sem
enn tórir hefur ekki aðeins nýtt sinn tíma illa,
heldur skilið þjóðina eftir berskjaldaða fyrir áföll-
um.
Ármann Höskuldsson frá Jarðvís-
indastofnun á Eyjafjallajökli tæpum tveim
kílómetrum frá gosstöðvunum. Dúkur er
yfir framrúðunni til að verja hann gjósku-
fallinu og gosmökkurinn yfir.
Morgunblaðið/Kristinn