SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Page 43
9. maí 2010 43
H
jólað í vinnuna hvað? Hvaða bull er þetta að ætlast
til að fólk mæti pungsveitt til starfa eftir að hafa
hamast á reiðhjóli til að komast leiðar sinnar?
Rífi sig upp fyrir allar aldir bara til að geta eytt
ómældum tíma í að juðast upp brekkurnar?
Og taka svo upp á því að keppa um það á milli vinnustaða
hver hafi nú hjólað mest?!
Kom on!
Er ekki miklu nær að fólk hjóli hvað í annað?
Ég er ekki að hvetja til úlfúðar og mælast til þess að fólk
hendi sér á næsta mann og rífi hann í sig í vonsku eins og
hundar sem slást í réttum.
Ég er bara að mælast til þess að fólk riðlist frekar á lifandi
fólki en steindauðum reiðhjólum.
En eftir á að hyggja þá er reið á hjóli ágætis forleikur að ann-
ars konar reið.
Kannski er það bara heillaráð að fólk ríði sínum reiðhjólum
til og frá vinnu.
Mæli sér svo mót einhvers staðar á leiðinni heim, kannski í
laut eða runna, kasti þar frá sér fákunum og taki svo hvort
annað til kostanna (svona eins og knaparnir gera með gæð-
ingana á skeiðvellinum).
Nú eða fylli brjóstið af keppnisskapi, leggi af stað á sínum
reiðhjólum á sama tíma frá vinnustöð og sá sem er fljótari
heim fær kannski í verðlaun það sem honum finnst best
(makinn veit væntanlega hvar og hvernig honum eða henni
finnst best að láta gæla við sig).
Ég ætla rétt að vona að karlmenn þessa lands séu ekki svo
teprulegir að þeir nái honum ekki upp ef spúsur þeirra hjóla í
þá þegar þær koma heim löðursveittar og sjóðheitar eftir dá-
góðan núning við hnakkinn.
Alvöru karlmenn taka slíkum konum fagnandi.
Og njóta þess að taka þær í engum klæðum öðrum en reið-
hjálminum.
Svo geta konurnar keppt um það á sínum vinnustöðum
hversu oft þær hjóluðu í karlana sína þá vikuna, nú eða öfugt,
hversu oft karlarnir hjóluðu í þær.
Reiðhjól eru vænstu skinn eftir allt saman.
Hnakknúningur á reiðhjóli er kannski ekki það besta fyrir
kynfæri karlmanna en fyrir konur er þessi staða afar hentug til
örvunar.
Hjólgraðar konur eru þá bæði svo löngunarfullar að þær
hjóla í menn en ekki síður vegna þess að hjólreiðatúr getur
gert þær alveg spól.
Það er engin tilviljun að mörgum finnst þokkafullt að sjá
konu renna áfram á sínu reiðhjóli, þar sem hún hallar sér fram
á stýrið svo rassinn sveigist í yndisstöðu.
Þegar hún stígur petalana og lífbeinið nuddast taktfast við
hnakkinn, þá teiknar endurtekin hreyfingin iðandi kvenlegar
línur um allan skrokk:
Læri, mjaðmir, mitti, brjóst, axlir, handleggir, fótleggir,
ökklar, hár … allt tengist saman og vaknar til lífs.
Hún verður lifandi ess.
Mörg ess.
Og henni hitnar við átökin.
Og hún hitnar að innan.
Og hún hlakkar til að hitta sinn ástmann.
Hjólum og hjólum í allt sumar!
Hjólum í og úr vinnu.
Hjólum hvert í annað.
Verum hjólglöð og spólgröð í allt sumar.
Hjólað í
kallinn
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Gatan mín
K
jartansgata í Borgarnesi kúrir að hluta
til undir klettum svo þar er skjólsælt.
Gatan eru upp af Borgarvogi og á fjöru
er ekkert tiltölumál að ganga á hörðum
ísaldarleirnum yfir að Rauðanesi á Mýrum. „Það er
ævintýri líkast að fylgjast með fuglalífinu við vog-
inn og á vordögum eins og núna heyrir vetur sög-
unni til og sumarið gengur í garð. Úr garðinum
mínum á Kjartansgötunni er frábært útsýni til
dæmis vestur á Mýrar og á utanvert Nesið þar sem
Snæfellsjökull er glottandi í vestri,“ segir Indriði
Jósafatsson sem býr við Kjartansgötu.
Indriði er fæddur og uppalinn á bænum Húsey í
Skagafirði en hefur búið samfleytt í 21 ár í Borg-
arnesi. „Ætli ég geti ekki í dag talið mig vera orð-
inn alvöru Borgfirðing. Ég hef verið lengur hér í
árum talið en fyrir norðan og hér höfum við Hrönn
Helgadóttir eiginkona mín alið upp dæturnar okk-
ar þrjár og eigum eitt barnabarn. Mér leið strax vel
hér í Borgarnesi þegar ég kom hingað fyrst í nám.
Gerðist svo íþróttakennari á Blönduósi í nokkur ár
en svo sneri fjölskyldan aftur hingað árið 1989 og
við höfum verið hér síðan,“ segir Indriði sem er
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Borgarbyggðar.
Eins og gjarnan gerist í bæjum landsins eru
götunöfnin gjarnan sótt í hinn sögulega arf. Göt-
urnar í gamla bænum í Borgarnesi eru nefndar eft-
ir söguhetjum Eglu og má til dæmis nefna Böðv-
arsgötu, Þórólfsgötu, Egilsgötu, Brákarbraut,
Þorsteinsgötu og svo Kjartansgötuna. Kjartansgata
heitir eftir Kjartani Ólafssyni syni Helgu fögru
þannig að Egill Skallagrímsson var því afi hans.
„Húsin hér við Kjartansgötu eru um það bil 30
talsins, sem mynda gott samfélag og nágranna-
vörslu án þess að vera á neinn hátt skipulögð. Fólk
lætur sig einfaldlega hvað annað miklu varða eins
og gjarnan gerist úti á landi. Mér líkar sömuleiðis
mjög vel við nágranna mína sem eru flestir af-
skaplega þægilegt rólegheitafólk. Hefð er fyrir því
að fólkið sem býr hér við götuna haldi samkomu
einu sinni á ári, þar sem við grillum og krakkarnir
fara saman í leiki á leikvellinum neðst í götunni.“
Starf Indriða sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
sveitarfélagsins tekur til margra þátta. Stærsta
viðfangsefni Indriða og raunar bæjarbúa allra nú er
undirbúningur fyrir Ungmennalandsmót UMFÍ,
sem í sumar verður haldið í Borgarnesi. „Bæj-
arstæðið hér í Borgarnesi er eitt það fallegasta á
landi. Nú er að mínu mati tækifæri til að íbúarnir
taki höndum saman til að hér verði einn fallegasti
bær landsins þegar að mótinu kemur.“
sbs@mbl.is
Ljósm/Úr einkasafni
Með Snæfellsjökul
glottandi í vestri
1
2
Kjartansgata
Bo
rg
ar
br
au
t
Brá
kar
bra
ut
Hel
gug
ata
Bj
ar
na
br
au
t
Sæunnargata
Bo
rg
ar
br
au
t
Þor
ste
ins
gat
a
Borgarnes
1. Sundlaugin okkar hér í Borgarnesi er nánast flagg-
skip okkar og ég er stoltur af því að hafa lagt mitt af
mörkum við uppbyggingu hennar á sínum tíma. Laug-
in sjálf er 25 metrar á lengd með góðri rennibraut og
einnig eru á svæðinu góðir heitir pottar. Hver veit svo
nema við komum upp enn betri aðstöðu þarna í fram-
tíðinni, við eigum að minnsta kosti til teikningar að
slíku þó framkvæmdir séu í biðstöðu.
2. Landnámssetrið er mjög fjölsótt meðal ferðamanna
og leiksýningar þar hafa slegið í gegn. Eftir nokkar
vikur verða svo opnaðir hér Brúðuheimar, þar sem er
brúðusafn sem ég trúi að eigi eftir að slá í gegn með-
al fjölskyldufólks. Annars er þetta sem ég nefni,
sundlaug og brúðusafn, allt til merkis um hvernig
Borgarnes er að breytast. Þjónusta við ferðafólk
skiptir stöðugt meira máli á meðan landbúnaður og
þjónusta við hann verða veigaminni póstar.
Uppáhaldsstaðirnir