SunnudagsMogginn - 09.05.2010, Síða 47
9. maí 2010 47
LÁRÉTT
1. Borgaði hljóm fyrir innihaldslausa. (6)
5. Það að setja róna í kór toppar margt. (7)
8. Finn varning ennþá hjá sjómönnum. (7)
10. Eldsúlfur er glæpamaður. (12)
11. Það augljóslega er jafn fallegt. (7)
13. Fylki í Vatnsmýrinni? (6)
14. Mælist 1 kA með kvarða. (9)
15. Verða ofurseldur Internetinu? (8)
17. Bálóð Lína notar strik sem notað er í flat-
armálsfræði. (7)
21. Húsgagn er góðir konungar sitja á? (11)
23. Blaðsíða sem er ekki hvít fjallar um spjót. (7)
24. Bæta bendur með vandamáli lögfræðinga.
(11)
25. Peningi snúið í hvamm. (9)
27. Vopn rekur minni til þessara hluta (9)
29. Kipptist sókn yfir matvæli. (10)
30. Greina sundur loftstraumaskil með tæki. (9)
31. Sjá verðlítinn hund og dýr með ópi. (8)
LÓÐRÉTT
1. Aflgjafi fyrir landnámsmann á Vesturlandi. (10)
2. Flanir að því að finna skordýrið (6)
3. Skrautsteinn frá tunglinu. (10)
4. Lausagrjót mölvað – mjög mölvað. (9)
5. Kringumstæður er snúa að konum eru ásta-
mál karla. (9)
6. Ósk apast fram og er með læti. (8)
7. Okkar tími sólarhringsins er bundinn árstíð. (7)
9. Karl frá Vega er verkamaður. (9)
12. Burnirót kodda. (6)
16. Stelpa sem líkist á? (10)
18. Æ æpa skepnur. (8)
19. Lyktin af fúlviðrinu. (6)
20. Hoppar inn í fjárréttina. (10)
21. Taka bylgjaðir við þótt fámennir séu. (9)
22. Kastvöllur fyrir fugla? (8)
26. Tími allra tilvikanna? (5)
27. Hellti úr keri fyrir danskar. (6)
28. Skapvondur og tilbúinn (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta
lausn krossgátunnar. Senda
skal þátttökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt úrlausn-
inni í umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 9. maí
rennur út fimmtudaginn 13. maí.
Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 16. maí. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í
vinning. Vinningshafi krossgátunnar 2. maí sl. er
Erla Ásmundsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Hyldýpi eftir Stefán Mána. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Sú spurning gerist áleitin hvort
örlaganornir séu nú farnar að
spinna sinn myrka vef og ætli
indverska heimsmeistaranum
Wisvanthan Anand eitthvað
annað en sigur í einvíginu við
Topalov. Anand hefur greinilega
teflt betur en þegar þetta er rit-
að eftir níu skákir er staðan
engu að síður jöfn og Topalov
hefur hvítt tvisvar af þeim þrem
skákum sem eftir eru. Í áttundu
og níundu skák hlaut Anand að-
eins ½ vinning en hefði allt eins
getað fengið vinningi meira
miðað við stöðurnar sem upp
komu. Lítum á tvö dæmi úr
þessum skákum:
8. einvígisskák: (Sjá Stöðumynd 1)
Topalov – Anand
Stöður með mislitum bisk-
upum er oft ranglega taldar
jafnteflislegar en í þessu tilviki
gat Anand þó tryggt jafnteflið
með 54. .. Bd3 og getur síðan
haft kónginn á e8 og d7. Þess í
stað lék hann: 54. …. Bc6?? og
eftir 55. Kh6 Kg8 56. g4! gafst
upp því hann á ekkert svar við
áætluninni: 59. g5 60. Bg7 og g6!
við tækifæri. Kóngurinn ryður
sér leið yfir á drottningarvæng-
inn og þá ræður d7-peðið úrslit-
um.
9. einvígisskák: (Sjá Stöðumynd 2)
Anand -Topalov
Maraþonskák þeirra á
fimmtudaginn sem lauk með
jafntefli eftir 83 leiki hlýtur að
hafa reynt á taugarnar. Anand
tefldi geysilega vel en missti af
ýmsum vænlegum leiðum og
baráttukraftur Topalovs í vörn-
inni var aðdáunarverður. En
þegar hér er komið sögu átti
Anand rakinn vinning sem
ýmsir spámenn hafa bent á og
forritin Rybka og Fritz sanna:
62. Hdd7! a3(ekki 62. … b2 63.
Hdf7 Dxf7 64. Hxf7 a3 65. Ha7 og
vinnur) 63. Kg3! Da1 64. Hc7+
Kb8 (eða 64. … Kd8 65. Ha7 og
vinnur ) 65. Hb7+ Ka8 66. Rxb3
De5+ 67. Kg4 og vinnur t.d. 67.
… a2 68. Ha7+ Kb8 69. Hae7! og
vinnur. En Anand lék öðru og
lét Topalov sleppa. Einvígið hef-
ur einkennst af geysilegri bar-
áttu, Anand hefur ekki nýtt
færin nægilega vel og á loka-
sprettinum eru möguleikar
Topalovs betri. Ellefta skákin er
á dagskrá á sunnudag og loka-
skákin á mánudag.
Guðmundur Gíslason fer
vel af stað í Sarajevo
Hannes Hlífar Stefánsson,
Bragi Þorfinnsson og Guð-
mundur Gíslason taka þessa
dagana þátt í geysiöflugu opnu
móti í Sarajevo í Bosníu. Kepp-
endur eru 169 talsins og verða
tefldar níu umferðir. Meðal
keppenda eru 44 stórmeistarar
en stigahæsti skákmaður móts-
ins er Kínverjinn Wang Hao.
Þremenningarnir unnu allir í
fyrstu umferð en í þeirri næstu
töpuðu Hannes og Bragi en
Guðmundur Gíslason gerði sér
lítið fyrir og vann hið 16 ára
gamla undrabarn frá Azerbad-
sjan, Nijat Abasov. Guðmundur
hefur því 2 vinninga og deilir
efsta sæti með 21 keppanda. Í
gær, föstudag, átti hann að tefla
með svörtu á borði nr. 11 við
Dragan Solak frá Serbíu. Skákir
á 20 efstu borðunum eru í beinni
útsendingu og slóðin er: http://
open2010.skbosna.ba/en.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Gífurleg spenna í HM-einvíginu þegar þrjár skákir eru eftir
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang