Morgunblaðið - 28.01.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞETTA er mjög óvenjulegt tilvik.
Áhugi okkar þýðir ekki að við séum
hætt að horfa til meginhlutverks
okkar, sem varðar þróunarríkin og
fátækt í heim-
inum, heldur er
ástæðan sú að á
Íslandi sjáum við
gott dæmi sem
breskur almenn-
ingur getur vel
samsamað sig við
[…]. Þetta er
táknrænt dæmi
um hvers vegna
við þurfum á að
halda sanngjarnara
kerfi til að meðhöndla skuldir,“ segir
Nick Dearden, formaður Jubilee,
breskra baráttusamtaka sem beita
sér fyrir niðurfellingu skulda.
„Málið er okkur skylt því bresk
stjórnvöld eru því nátengd. Vegna
líkra lífsskilyrða eru líkur á að Bret-
ar geti gert sér í hugarlund hvernig
það væri ef þeim væri réttur slíkur
risareikningur vegna hruns sem þeir
bæru ekki persónulega ábyrgð á.“
Fjöldi samtaka með í för
Aðspurður um viðbrögðin við bar-
áttu samtakanna í Icesave-málinu
fram að þessu segir Dearden deiluna
hafa verið á dagskrá á fundi um 30
samtaka í Brussel fyrr í mánuðinum,
þar með talið samtaka sem berjist
fyrir niðurfellingu skulda.
Hann lýsir stofnun Jubilee svo:
„Samtökin voru stofnuð af hjálpar-
stofnunum, þróunarsamtökum og
verkalýðs- og trúfélögum seint á ní-
unda áratugnum til að berjast á móti
skuldaklafa þriðja heimsins, einkum
fátækustu ríkjanna sem vörðu gífur-
legu fé í afborganir af lánum frá al-
þjóðlegum stofnunum […] í stað þess
að verja því til samfélagsmála.“
Dearden segir Jubilee jafnframt
berjast fyrir kerfislægum breyt-
ingum þannig að samband lánveit-
enda og lántaka einkennist ekki af
því að ábyrgðin liggi nær eingöngu
hjá lántakanda.
„Við teljum að slík breyting myndi
gera fjármálakerfið síður viðkvæmt
fyrir niðursveiflum.“
Staðan minnir á eldri tilvik
– Hvað dró athygli ykkar hjá Jubi-
lee að Icesave-deilunni?
„Við litum svo á að staðan sem
komin væri upp á Íslandi væri mjög
svipuð og í málum sem við höfum
unnið að og barist fyrir í þróunar-
ríkjum, þar sem fólki sem ber ekki
ábyrgð á lántökum og áhættutöku er
gert að borga fyrir óábyrga fjármála-
starfsemi. Annað atriði er að Íslend-
ingum var gert að gera þetta, ella
yrði skorið á samband þeirra við al-
þjóðasamfélagið […]. Þróunarríki
hafa í gegnum tíðina gengið í gegn-
um það sama […]. Lánveitendur
kúguðu ríki til að fara að kröfum sín-
um.“
Stjórnvöld valda vonbrigðum
– Hvaða skoðun hafið þið á stefnu
breskra stjórnvalda í málinu?
„Við erum mjög vonsvikin í ljósi
þess að það orðspor fer af breskum
stjórnvöldum að þau hafi skilning á
mikilvægi skuldaniðurfellingar […]
og nauðsyn þess að fara sanngjarnari
leið þegar þörf krefur […]. Beiting
hryðjuverkalaga var algerlega úti í
hött og sýndi hversu langt stjórnin
væri tilbúin að ganga til að þvinga
fram greiðslu,“ segir Dearden og
bætir við að Bretar hafi vikist undan
ábyrgð á því alþjóðlega fjármálakerfi
sem þeir hafi mótað ásamt öðrum
ríkjum.
„Við erum afar vonsvikin með að
ríkin sem voru í forsvari einkavæð-
ingar og beittu sér fyrir því að dregið
skyldi úr regluverkinu um fjár-
málamarkaði skuli ekki sýna meiri
ábyrgð eftir fjármálahrunið.“
Bresk baráttusamtök taka
málstað Íslands í Icesave
Jubilee-samtökin undirbúa herferð gegn samningnum Fleiri samtök með í för
Barátta Úr einni af mörgum kröfugöngum Jubilee-samtakanna.
Ljósmynd/Jubilee
Nick Dearden
Ýmis þekkt andlit, þar með talið úr
skemmtanabransanum, hafa tekið
þátt í herferðum Jubilee.
Þeirra þekktust eru líklega
Bono, öðru nafni Paul Hewson,
söngvari írsku rokkhljómsveitar-
innar U2, og Bob Geldof, söngvari
The Boomtown Rats, en báðir voru
í forsvari fyrir herferð samtakanna
fyrir niðurfellingu skulda í Afríku.
Aðspurður hvort tvímenning-
arnir komi til greina í fyrirhugaðri herferð vegna Icesave-samningsins segir
Dearden þá ekki henta að þessu sinni. Þess í stað séu samtökin að leita að
þekktum menntamanni, jafnvel rithöfundi, til að verða andlit herferðar-
innar. Harmleikurinn á Haítí hafi sett strik í reikninginn og seinkað und-
irbúningnum. Leitin að hentugum talsmanni sé því nýhafin.
Inntur eftir því hvenær herferðin fari í fullan gang segir Dearden miðað
við að hún hefjist fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 6. mars en hann kveðst
jafnframt líta svo á að verði útkoman nei muni Bretar verða undir miklum
þrýstingi um að semja á ný, meðal annars fyrir tilstuðlan herferðarinnar.
Bono kemur ekki til greina
Bob GeldofBono
STJÓRN Lands-
sambands
slökkviliðs- og
sjúkraflutninga-
manna, LSS, hef-
ur samþykkt
ályktun þar sem
segir að öryggi
allra sem fara
um flugvelli og
nágrenni þeirra sé best tryggt með
því að löggiltir slökkviliðsmenn
sinni þar slökkvistörfum. Ályktunin
kemur í kjölfar sameiginlegs fund-
ar LSS, slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins og deildar LSS á Kefla-
víkurflugvelli. Á þeim fundi var
tekið undir túlkun brunamálastjóra
um lágmarksviðbúnað á flugvöllum
landsins en deilur hafa verið uppi
um viðbúnað slökkviliðsmanna á
Reykjavíkurflugvelli.
Samningur SHS og Flugstoða um
sólarhringsvakt slökkviliðsmanna á
Reykjavíkurflugvelli rennur út 1.
mars nk. Flugstoðir munu þá taka
við viðbúnaðarþjónustu á vellinum.
Vegna fyrirhugaðrar sameiningar
Flugstoða og Keflavíkurflugvallar
ohf. hafa fyrirtækin gert með sér
samning vegna þjónustu á Reykja-
víkurflugvelli. Í því samkomulagi
felst að tveir slökkviliðsmenn frá
Keflavíkurflugvelli munu sinna við-
búnaðarþjónustu á flugvellinum,
undir stjórn Flugstoða, en slökkvi-
liðsmenn gera kröfu um minnst
fjóra menn á vakt hverju sinni.
Slökkviliðsmenn
taka undir með
brunamálastjóra
NICK Dearde segist aðspurður um
hvaða samtök hyggist leggja her-
ferð Jubilee lið að á þessu stigi geti
hann aðeins staðfest að baráttu-
samtökin BothENDS muni slást í lið
með þeim. Hins vegar hafi fulltrúar
um 30 samtaka sem hittust á fundi
Eurodad (European Network on
Debt and Development) í Brussel
nýverið sýnt málinu áhuga. Því
megi reikna með að mörg þeirra
gangi til liðs við herferðina.
„Ég bind vonir við að á næstu
tveimur vikum muni listinn verða
tekinn að skýrast. Samtökin sem ég
vísa til sýndu þessu áhuga en hafa
ekki formlega skráð sig til þátttöku
í herferðinni framundan.“
– Hvernig brugðust fundarmenn
við umræðum um málið?
„Þeir voru mjög áhugasamir um
þann möguleika sem þetta mál fær-
ir okkur á að draga athyglina að
því ójafnræði sem ríkir í skulda-
málum í alþjóðahagkerfinu.“
Berjast gegn fátækt
Samtökin BothEnds sem Dear-
den vísar til hafa aðsetur í Amster-
dam en þau beita sér gegn fátækt í
þróunarríkjum og fyrir sjálfbærni í
umhverfismálum, baráttumál sem
endurspeglast í síðari hluta nafns-
ins en ENDS stendur fyrir „Envi-
ronment and Development Ser-
vice“. Fram kemur á vef
samtakanna að þau hafi stutt
hundruð umhverfisverndar-
samtaka frá stofnun 1986.
Hollensk
samtök
beita sér
Hreyfingar úr
ýmsum áttum