Morgunblaðið - 28.01.2010, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Útsala
30-60%
afsláttur
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Útsalan
í fullum gangi
Str. 38-56
Nýjar peysur og bolir
40-70% afsláttur
Mörkinni 6, sími 588 5518
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-16
ÚTSALA
20-50% afsláttur
Úlpur - kápur - jakkar - peysur
Laugavegi 54,
sími 552 5201
ALGJÖRT
VERÐHRUN
TOPPAR, BOLIR O.M.FL. 1.000 KR.
PILS, KJÓLAR O.M.FL. 2.000 KR.
ALLIR STUTTIR KJÓLAR 4.990 KR.
ALLAR KÁPUR 9.990 KR.
ALLIR SÍÐIR KJÓLAR 9.990 KR.
(á útsöluvöru)
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
MÖGNUÐ ÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
FIMMTÍU ár eru liðin frá því varðskipið Óðinn kom til
landsins. Afmælinu var fagnað í gær um borð í Óðni, en
skipið liggur við festar við Sjóminjasafnið í Reykjavík
og er hluti af safninu. Að sjálfsögðu var bökuð afmæl-
isterta á afmælinu.
Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20.
öldinni. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa,
staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og ár-
angursríkasta vopnið í þorskastríðunum var þó togv-
íraklippurnar. Óðinn reyndist sérlega vel sem björg-
unarskip. Hann dró tæplega 200 skip til lands eða í
landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða
um borð. Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku ár-
ið 1959, 910 tonn að stærð, 63 m á lengd. egol@mbl.is
Fögnuðu 50 ára afmæli Óðins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óðinn Georg Lárusson, Guðmundur Hallvarðsson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gæddu sér á afmæliskökunni.
„VIÐ teljum að það vanti mál-
efnalega umræðu um áhrif aðildar
Íslands að Evrópusambandinu. Um-
ræðan er oft ansi einsleit,“ segir
Brynja Halldórsdóttir, en hún er í
forsvari fyrir hóp sem vinnur að því
að stofna hreyfingu ungs fólks sem
stendur gegn aðild Íslands að Evr-
ópusambandinu.
Starfandi er hreyfing ungra evr-
ópusinna og segir Brynja að full þörf
sé fyrir vettvang þar sem ungt fólk
sem er andsnúið aðild Íslands að
Evrópusambandinu geti sameinast
um að berjast gegn aðild. Brynja
segir að sett hafi verið upp Face-
book-síða og 800 manns hafi skráð
sig á hana á sex dögum. Um 300 séu
hins vegar á Facebook-síðu ungra
evrópusinna. Hún segir þessa miklu
þátttöku benda til þess að mikil and-
staða sé meðal ungs fólks við aðild
að ESB.
Brynja segir að 10-15 manna hóp-
ur hafi unnið að stofnun hreyfing-
arinnar. Í honum sé fólk úr VG,
Sjálfstæðisflokki og Framsókn-
arflokki og einnig fólk sem hafi ekki
Ungt fólk andsnúið aðild
að ESB stofnar félag
Fáni Hreyfing ungs fólks gegn aðild
Íslands að ESB er í undirbúningi.
tekið neinn þátt í stjórnmálum.
Fyrsta verkefni hreyfingarinnar
verði að taka á móti tveimur fulltrú-
um systursamtakanna í Noregi.
Brynja segir að hreyfingin ætli að
vinna að stefnumáli sínu m.a. með
kappræðum og með því að skrifa
greinar í fjölmiðla.
Stofnfundur hreyfingarinnar
verður haldinn laugardaginn 6. febr-
úar í sal Þjóðminjasafnsins kl. 13.00-
16.00 og er hann opinn öllum. Félag-
ið er opið öllum á aldrinum 16-36 ára
og nauðsynlegt er að skrá sig sem
stofnfélaga í gegnum heimasíðuna
http://centrum.is/gk/. egol@mbl.is
Ólafur mætti
á tvo fundi
ÞAU leiðu mistök urðu, er tafla var
birt yfir mætingu þeirra borgarfull-
trúa sem setið hafa í stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur á þessu kjör-
tímabili, að nafn Ólafs F.
Magnússonar féll niður. Sat Ólafur
tvo þeirra fjögurra funda sem haldn-
ir voru er hann sat í stjórn OR og
mælist mætingahlutfall hans því
50%. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Skrifaði ritgerð
við HR
MISRITAÐ var í frétt um rannsókn
sérstaks saksóknara á Exista í
blaðinu í gær, að Pétur Steinn Guð-
mundsson hafi ritað meistararitgerð
sína við lagadeild Háskóla Íslands.
Hann stundaði nám við Háskólann í
Reykjavík. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT