Morgunblaðið - 28.01.2010, Síða 20
20 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Ég fékk úthlutað plássi ííbúð með tveimur prýð-ismönnum, þeim PhilippeMeijers og Anthony Nol-
an, en það vill svo skemmtilega til að
Anthony er Breti og Philippe er Hol-
lendingur. Við vorum svo sem ekk-
ert að spá í það fyrr en örfáum dög-
um eftir að ég kom hingað út, þá
kom Philippe, sá hollenski, storm-
andi til mín með tölvuna sína og
skelfingarsvip á andlitinu. Hann
sýndi mér þar tölvupóst sem honum
hafði borist með þeim ógnartíð-
indum að forseti Íslands hefði neitað
að samþykkja Icesave-samninginn.
Hann frétti þetta á undan mér og
honum var verulega mikið niðri fyr-
ir, hann hafði miklar áhyggjur af því
hvernig þetta færi fyrir Hollend-
inga,“ segir Einar Kári Björg-
vinsson sem nú er staddur í Skot-
landi á sex vikna köfunarnámskeiði.
Táknræn friðarþrenna
„Ég stóð þarna sem fulltrúi minn-
ar neitandi þjóðar og tjáði Philippe
mína hlið á málinu. Sagði honum að
ég gæti alveg skilið hans viðhorf en
ég væri óbreyttur Íslendingur sem
hefði engan áhuga á að borga klúður
einhverra manna sem höfðu verið að
reka einkafyrirtæki, og að ég kærði
mig ekki um að þessar skuldir lentu
líka á börnunum mínum. Ég út-
skýrði fyrir honum hvernig málið liti
út frá mínum bæjardyrum séð og
hann tók það gott og gilt. Við rifumst
ekki eða neitt slíkt en þetta hefur
ekki verið rætt síðan. Þetta var
óneitanlega svolítið skondin uppá-
koma og eftir á að hyggja er ótrúleg
tilviljun að við þrír, fulltrúar þessara
deilandi þjóða, skulum hafa lent
saman í íbúð sem við eigum að deila í
sex vikur. En þessir íbúðarfélagar
mínir eru yndislegir menn, báðir
tveir, alveg frábærir félagar. Við,
þetta kostulega þríeyki, erum þá
kannski ágæt fyrirmynd, táknræn
friðarþrenna, því það fer svo vel á
með okkur. Þetta snýst kannski allt-
af um að tala saman og koma hreint
fram og virða sjónarmið allra aðila.“
Hafdjúpin eru vinnustaðurinn
Einar Kári hefur verið í fullri
vinnu hér heima á Íslandi sem at-
vinnukafari undanfarin 12 ár. Hann
segir atvinnukafara sinna fjöl-
breyttum störfum, nánast öllu sem
viðkemur köfun.
„Þetta er mjög fjölbreytt starf og
engir tveir dagar eins. Við sinnum
hafnarviðgerðum, skipaviðgerðum,
losum til dæmis netadræsur úr
skrúfum skipa og gerum við skips-
skrúfur. Við sinnum líka viðgerðum
fyrir raforkuverin og þá þurfum við
meðal annars að kafa ofan í lón, þrífa
til dæmis ísgrindur sem eru skadd-
aðar þar sem inntökin eru. Núna
vinn ég hjá fyrirtæki sem heitir Köf-
unarþjónustan en hún er með marga
kafara á sínum snærum sem sendir
eru í þau verkefni sem til falla. Áður
en ég hóf störf hjá Köfunarþjónust-
unni tók ég líka þátt í því að leita að
fólki sem hafði drukknað í sjó eða
vötnum, en ég geri það ekki lengur.“
Draumurinn að komast á
olíuborpall í Noregi
Einar hefur oft farið á hin ýmsu
námskeið að tileinka sér sérþekk-
ingu í starfi. „Á námskeiðinu hér í
Skotlandi er ég núna að næla mér í
þekkingu til að geta unnið sem kaf-
ari við olíuborpalla. Alls konar tæki
og tól eru neðansjávar á þessum
pöllum, til dæmis eru akkeri sem
halda pöllunum föstum og það þarf
að vera stöðugt eftirlit með þeim.
Svo sest þari og gróður á allt sem er
neðansjávar og það þarf að þrífa
reglulega. Borholan sjálf þarf líka
viðhald og eftirlit, við þurfum að
setja upp lagnir úti um allt í sjónum
og ýmislegt fleira. En hér í Skotlandi
er mikil áhersla lögð á að kenna okk-
ur að bjarga öðrum kafara í háska af
því að það getur alltaf komið upp á,“
segir Einar og bætir við að kaf-
ararnir vinni ekki á pöllunum sjálf-
um, heldur hjá ákveðnum fyr-
irtækjum sem eru með kafara á
sínum snærum sem hafa sérhæft sig
í borpöllum. Þessi fyrirtæki eru með
báta þar sem öll tæki og búnaður er
til staðar og selja sína þjónustu til
pallafyrirtækjanna.
„Ég fór á þetta námskeið til að
geta fengið vinnu við olíuborpalla og
draumurinn er að komast til Nor-
egs.“
Ekkert vesen og ekkert stress
Þó að námskeiðið standi yfir alla
virka daga frá fimm til níu, segir
Einar að þetta sé á vissan hátt eins
og frí fyrir hann.
„Þetta er búinn að vera alveg frá-
bær tími og það er gott að vera hér í
Skotlandi og allir mjög almennilegir.
Ég hef ofboðslega gaman af þessu,
hér er ekkert vesen og ekkert stress.
Og það er gaman að læra nýja hluti
og kynnast nýju fólki. Við erum tólf
saman í mínum bekk og allt strákar,
en oftast eru tvær til þrjár stelpur á
kafaranámskeiðum. Þetta er frábær
hópur og enginn áberandi leið-
inlegur eða erfiður eins og oft vill
vera í svona hóp. Ég er eini Íslend-
ingurinn en mest eru þetta Skotar,
Írar og Bretar og svo Hollending-
urinn, vinur minn.“
Þeir vilja íslenska ull
Flestir á námskeiðinu eru um þrí-
tugt en þó eru nokkrir um tvítugt, en
á þeim aldri má byrja að stunda köf-
un í Bretlandi. „Við erum tveir sem
deilum því að vera þeir elstu, 37
ára,“ segir Einar og bætir við að vin-
ir hans tveir, Hollendingurinn og
Bretinn sem hann deilir íbúð með,
séu aðaldriffjaðrirnar í hópnum.
„Það er allt að gerast í kringum þá,
þeir eru alltaf að bjóða mönnum í
mat og partí. Þeir eru félagslega
virkastir allra í hópnum.“
Einar segir heldur hafa verið kalt
í Skotlandi, frost yfir tíu gráðum en
hann er að sjálfsögðu með íslenska
lopapeysu, sokka og vettlinga með
sér.
„Og nú eru félagar mínir þeir Phil-
ippe og Anthony búnir að sannfær-
ast um ágæti íslensku ullarinnar og
þeir eru svo hrifnir af lopaplöggum
mínum að þeir hafa beðið mömmu
mína um að prjóna á þá lopapeysur
og sokka.“
Icesave-deila hamlar ekki vinskap
Íslendingur, Breti og Hollendingur
kafa saman í undirdjúpunum
Á tímum óleystra Icesave-mála getur verið skondin
staða fyrir Íslending að deila íbúð með Breta og Hol-
lendingi í sex vikur. Einar Kári kafari lét það ekki á
sig fá og varði stöðu hins íslenska almúgamanns.
Þríeykið góða Saman á borpallanámskeiðinu í Skotlandi. Einar Kári situr á milli Anthonys og Philippes.
Atvinnukafari Einar Kári að störfum neðansjávar við viðgerðir.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FRÆ ársins, verðlaun Háskólans í Reykjavík
(HR) fyrir lífvænleg nýsköpunarverkefni, voru
veitt í fyrsta sinn í gær. Verðlaunin Fræ ársins
2010 hlutu þeir Ingólfur Harðarson, flugvirki
og rafeindavirki, og Jóhannes Loftsson, efna-
verkfræðingur og byggingarverkfræðingur.
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR og formaður
dómnefndar, afhenti verðlaunin við hátíðlega
athöfn í nýbyggingu HR. Verðlaunin eru fjár-
hagslegur stuðningur og aðstoð við að koma
verðlaunaverkefnunum áfram.
Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a. að
verkefni þeirra Jóhannesar og Ingólfs séu
metnaðarfullar tækninýjungar og að þau geti
leitt til verulegra umbóta í samfélaginu, sér í
lagi varðandi orkunotkun, kostnað og um-
hverfi.
Uppfinning Jóhannesar er mjög þunnur loft-
ræstibúnaður fyrir hús. Búnaðurinn var þróað-
ur í samvinnu við bandarískan samstarfsaðila.
Þessi búnaður er allt að því tíu sinnum þynnri
en tæki sem eru sambærileg að afköstum og
eru nú á markaði. Gert er ráð fyrir að búnaður-
inn verði aðeins tveggja til sex sentimetra
þykkur. Hægt verður að hengja hann upp í loft
eða setja inn í veggi og jafnvel gluggakarma.
Búnaðurinn á að veita fersku lofti inn í bygg-
ingar, leysa rakavandamál og auka heilnæmi
húsnæðis. Hann sparar einnig orku miðað við
nútíma loftræstitæki. Einkaleyfishugmynd
fyrir vöruna er þegar tilbúin.
„Ég er að hugsa um að nota verðlaunaféð til
að stofna íslenskt fyrirtæki um hugmyndina,“
sagði Jóhannes. „Næsta skref er að byggja
frumgerð með einstaka eiginleika. Við höfum
þegar smíðað hluta búnaðarins. Þegar frum-
gerð er tilbúin kemur til greina að selja notk-
unarleyfi á tilteknum svæðum. Einnig að halda
vöruþróun áfram og fara síðan út í eigin fram-
leiðslu og er ég að leita að fjársterkum sam-
starfsaðila sem sér tækifæri í þessu.“
Uppfinning Ingólfs, „Nuevo Vehicles“, er ný
tegund af undirvagni fyrir rafknúna bíla. Und-
„Ég held að
þetta breyti öllu“
Morgunblaðið/Heiddi
Fræ ársins 2010 Ingólfur Harðarson (t.v.) og Jóhannes Loftsson við verðlaunaafhendinguna.
Verðlaun veitt fyrir nýsköpunarverkefni