Morgunblaðið - 28.01.2010, Síða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
2 8 7
9 1 8 5
3
2 9 6
7 1 2
8 3 9
3 6 7 5 1
1 5 6
2 9 8 6
7
7 9
7 8 9 1 2
3 5 2 6
1 3 7
9 1 5
6 5
7 3
7 1
2 5
8 4 1
1 5 6 4 8 3
6 8 2 4 1
3 7 5
6 4
1 6 8 7 9 3 2 5 4
3 7 4 2 5 6 9 8 1
2 9 5 8 4 1 7 6 3
5 4 1 9 3 8 6 7 2
7 2 9 6 1 4 8 3 5
6 8 3 5 2 7 1 4 9
4 3 6 1 7 9 5 2 8
8 1 2 3 6 5 4 9 7
9 5 7 4 8 2 3 1 6
5 1 4 6 2 3 7 9 8
6 2 7 9 8 1 3 5 4
3 9 8 4 7 5 6 1 2
1 8 6 7 5 2 4 3 9
4 5 2 3 1 9 8 7 6
9 7 3 8 4 6 1 2 5
7 6 1 5 9 4 2 8 3
2 3 5 1 6 8 9 4 7
8 4 9 2 3 7 5 6 1
7 2 6 1 9 3 8 5 4
1 5 4 6 2 8 9 7 3
8 9 3 7 4 5 1 6 2
6 4 5 8 1 2 7 3 9
2 8 9 5 3 7 6 4 1
3 7 1 9 6 4 5 2 8
9 6 2 3 7 1 4 8 5
4 1 8 2 5 6 3 9 7
5 3 7 4 8 9 2 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 28. janúar,
28. dagur ársins 2010
Orð dagsins: En halt þú stöðuglega við
það, sem þú hefur numið og hefur fest
trú á, þar eð þú veist af hverjum þú
hefur numið það. (2. Tím. 3, 14.)
Starfshópur um heildarend-urskoðun á áfengislöggjöfinni
hefur lagt fram tillögur um breyt-
ingar. Áfengi er einhver mesti bölv-
aldur íslensks samfélags. Ekki er
hægt að meta tjónið, sem rekja má til
áfengra drykkja, en það er gríð-
arlegt. Áfengi kostar árlega nokkur
mannslíf í umferðinni. Um hverja
helgi eiga sér stað líkamsmeiðingar
og limlestingar, sem rekja má beint
til áfengisneyslu. Áfengissýki er erfið
viðureignar, tærir upp líkamann og
varpar skugga á líf margra fjöl-
skyldna. Breytingar á áfengislöggjöf-
inni eru því ekkert léttúðarmál.
x x x
Nefndin vill endurskoða áfeng-iskaupaaldur. Ljóst er að flestir
Íslendingar byrja að drekka á barns-
aldri. Einnig er ljóst að drykkja hefur
mikil áhrif á þroska barna og ung-
linga. Því þroskaðra sem ungt fólk er
þegar það byrjar að drekka, því
betra. Þess vegna er nauðsynlegt að
varast aðgerðir, sem gætu leitt til
þess að drykkjualdurinn færist niður.
x x x
Einnig er talað um að heimila aug-lýsingar á áfengi, en með mikl-
um takmörkunum. Þetta á að gera
eftirlit skilvirkara og eyða óvissu. Nú
þegar flæða áfengisauglýsingar yfir
allt og það er látið óátalið, en hvað
ætti að koma í veg fyrir að rýmkun
heimilda til að auglýsa áfengi skapi
ný vandamál og nýja óvissu?
x x x
Væri ekki nær að afnema inn-byggðan stéttahroka í álagningu
á áfengi? Nú er málum þannig háttað
að áfengisgjald er föst upphæð miðuð
við áfengismagn. Það þýðir að dýra,
fína vínið er jafnvel á hagstæðu verði
miðað við það sem gerist úti í heimi,
en ódýrt vín margfalt dýrara. Halda
mætti að yfirvöld treystu láglauna-
fólki ekki til að fara vel með áfengi og
vilji hafa vit fyrir því, en hinir tekju-
meiri, sem geta leyft sér meiri mun-
að, séu slíkt sómafólk að þeir þurfi
ekki á forsjárhyggjunni að halda. Er
þetta ekki úrelt hugsun? víkverji@m-
bl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 útgjöld, 8
þrautir, 9 vesæll, 10
óvild, 11 harma, 13 blóð-
sugan, 15 kjökra, 18
urga fram og aftur, 21
gagn, 22 gamansemi, 23
ávinningur, 24 leika á.
Lóðrétt | 2 mjólkuraf-
urð, 3 nauti, 4 óhreink-
aði, 5 mergð, 6 guðs, 7
fall, 12 megna, 14 mán-
uður, 15 næðing,16
dögg, 17 ilmur, 18 vinna,
19 fjáður, 20 forar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fegin, 4 kelda, 7 lemur, 8 múgur, 9 núa, 11
ræna, 13 barr, 14 fossa, 15 hagl, 17 krók, 20 ann, 22 káf-
ar, 23 aftur, 24 rýrar, 25 tærar.
Lóðrétt: 1 fælir, 2 gaman, 3 norn, 4 káma, 5 lygna, 6
akrar, 10 únsan, 12 afl, 13 bak,15 hákur, 16 gæfur, 18
ritar, 19 kórar, 20 arar, 21 naut.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
e6 5. Bf4 a6 6. Be2 Df6 7. Be3 Bc5 8.
c3 Dg6 9. Bf3 Rf6 10. Rd2 Re5 11. 0-0
Rxf3+ 12. Dxf3 d5 13. exd5 Rxd5 14.
Hfe1 b5 15. Re4 Bxd4 16. Bxd4 0-0
17. h4 f5 18. Rc5 He8 19. He5 Hb8 20.
Hae1 Hb6
Staðan kom upp á alþjóðlegu ung-
lingamóti sem Taflfélagið Hellir hélt
fyrir skömmu í Kópavogi. Jón Krist-
inn Þorgeirsson (1.647) hafði hvítt
gegn Brynjari Steingrímssyni
(1.437). 21. Dxd5! Bb7 svartur hefði
orðið mát eftir 21. … exd5 22. Hxe8+
Kf7 23. H1e7#. Framhald skák-
arinnar varð eftirfarandi: 22. Rxb7
exd5 23. Hxe8+ Dxe8 24. Hxe8+ Kf7
25. Bxb6 Kxe8 26. f4 Kd7 27. Bd4 g6
28. Rc5+ Kc6 29. Rxa6 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Loðin svör.
Norður
♠K1053
♥G652
♦K64
♣K6
Vestur Austur
♠D72 ♠6
♥ÁKD109 ♥74
♦G10 ♦D9873
♣D85 ♣109742
Suður
♠ÁG984
♥83
♦Á52
♣ÁG3
Suður spilar 4♠.
Á að taka trompin strax eða bíða með
það? Byrjendur vilja afdráttarlaust svar,
en því miður er svarið við þessari spurn-
ingu bæði loðið og teygjanlegt. Stundum
á að aftrompa mótherjana strax, stund-
um ekki. Hvað segja menn til dæmis um
spil dagsins – á að taka trompin strax?
Vestur hefur sagt frá hjartalitnum og
hefur vörnina með ♥Á-K-D.
Suður var reyndur spilari. Hann
trompaði þriðja hjartað, toppaði spaðann
og svínaði svo ♣G í von um niðurkast
fyrir tígulinn. Ekkert gekk og samning-
urinn fór einn niður. Var þetta illa spil-
að?
Ekki svo. En þó er til nokkuð skotheld
leið sem byggist á því að hreyfa ekki
spaðann. Sagnhafi trompar fjórða hjart-
að og ♣G í borði, sendir svo vörnina inn á
þriðja tígulinn og þá mun ♠D koma sjálf-
krafa í leitirnar.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Sá sem alltaf er tilbúinn til átaka
við aðra verður að reikna með misjöfnu
gengi. Innst inni leiðist þér fyrirsjáanleg
rútínan og þú leitar eftir spennu og ein-
hverju óvenjulegu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur allt sem til þarf til að fram-
kvæma stóra hluti og margir sækjast eftir
að fá að taka þátt í þeim með þér. Not-
færðu þér það skynsamlega. Hvaðeina
sem þú snertir verður að gulli.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur afskaplega gaman af
því að leika þér með börnum og full-
orðnum. Gefðu sjálfum/sjálfri þér tíma til
að sinna áhugamálunum og fjölskyldunni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ábyrgð þín á börnum liggur þungt
á þér enda er einhver svartsýni að angra
þig. Ekki gleyma að sýna sjálfri/sjálfum
þér mildi. Ekki draga að leita læknis ef þú
hefur áhyggjur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er tími til kominn að setja vélar
og tæki í viðgerð í dag. Ættingi reynir á
þolrifin, settu þig í hans spor, sýndu þol-
inmæði.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú umgengst fólk sem er erfitt að
ná til tilfinningalega en þú getur það ef þú
reynir. Haltu ótrauð/ur áfram á sömu
braut.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er orðið tímabært að þú hafir
samband við vini þína þótt þeir hafi látið
vera að hafa samband við þig. Afgreiddu
deilumál strax og á heiðarlegan hátt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú færð tækifæri til að læra
sitthvað um þig með því að gaumgæfa
samskipti þín við aðra. Áhugi þinn á
náunganum á eftir að gagnast þér vel.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú átt aldrei eftir að sjá eftir
þeim tíma sem þú verð til menntunar.
Settu þér markmið og fórnaðu öllu fyrir
þau, þá stendur þú uppi sem sigurvegari.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í essinu sínu í félagsskap
annarra. Skrepptu í bústað með vinum og
njóttu lífsins.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú verður að sætta þig við að
allt gengur ekki í dag eins og þú vilt að
það gangi. Kannski er það fyrir bestu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þig langar mest til að gera upp-
reisn og brjóta allar brýr að baki þér.
Taktu þér tíma því að flas er ekki til fagn-
aðar.
Stjörnuspá
28. janúar 1815
Innsigli Reykjavíkur (Sigillum
civitatis Reikiavicae) var sam-
þykkt af stjórnarráðsskrifstof-
unni í Kaupmannahöfn.
28. janúar 1907
Sláturfélag Suðurlands, SS,
var stofnað sem samvinnu-
félag bænda. Það hét fyrst
Sláturfélag Árnesinga og
Rangæinga.
28. janúar 1912
Íþróttasamband Íslands,
„bandalag íslenskra íþrótta-
og fimleikafélaga“, var stofn-
að í Bárubúð (á þeim stað er
nú Ráðhús Reykjavíkur). Tólf
félög stóðu að stofnun ÍSÍ, sem
nú ber heitið Íþrótta- og ól-
ympíusamband Íslands.
28. janúar 2009
Lögregla beitti piparúða og
handtók sex mótmælendur
framan við Nordica-hótelið í
Reykjavík, en þar var haldinn
fundur á vegum Atlantshafs-
bandalagsins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Margrét Marý, Agla Jóna og Auð-
ur sem eru í 4. bekk í Kópavogs-
skóla héldu tombólu við verslunina
Nóatún í Hamraborg og gáfu af-
raksturinn til Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Hlutavelta
„ÞAÐ er umfram allt að nota öll tækifæri sem
bjóðast til þess að gera eitthvað óvenjulegt eða
skemmtilegt, ferðast og annað þess háttar, bæði í
vinnu og tómstundum.“ sagði Þóroddur F. Þór-
oddsson, jarðfræðingur og söngmaður, sem fagn-
ar 60 ára afmæli í dag. Hann hefur sungið mikið
um ævina og verið í mörgum kórum. Nú hittir
hann nokkra gamla kunningja vikulega til að taka
lagið. Eins syngur hann með Kammerkór Reykja-
víkur sem æfir nú perlur úr kirkjutónlist sem ætl-
unin er að flytja í vor hér heima og í júní á Ítalíu.
Þóroddur er búinn að bjóða vinum og ættingjum
í gleðskap á laugardagskvöldið kemur. En má þá ekki eiga von á að
það verði mikið sungið í afmælinu? „Jú, vonandi. Það er engin
skemmtun án söngs,“ sagði Þóroddur.
Auk söngsins hefur Þóroddur lagt mikla stund á útivist. „Ég hefði
viljað byrja miklu fyrr að ganga á fjöll og að fara á skíði,“ sagði Þór-
oddur. „Ég keypti mér raunar gönguskíði 1971 en notaði þau ekkert
svipað þá og ég hef gert undanfarin fimm ár. Fyrst þekkti maður ekki
það að ganga á skíðum í spori og minna var um að lögð væru spor.
Það er firnagaman líka að fara í ferðalög á skíðum.“ gudni@mbl.is
Þóroddur F. Þóroddsson jarðfræðingur 60 ára
Engin skemmtun án söngs
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is