Morgunblaðið - 28.01.2010, Page 44

Morgunblaðið - 28.01.2010, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2010 Það er margt lífið sem lifaðer. Það er mörg listin í líf-inu. Og Kleppur er víða. Þetta eru þrjú af mörgum þeim spakmælum sem vert er að hafa í huga í dagsins amstri. Við erum sífellt að óskapast yf- ir einhverju sem aðrir gera öðru- vísi en okkur hugnast. Hvort sem það er hvernig þeir kjósa að lifa sínu lífi eða hvernig þeir koma fram í list sinni. Við erum líka fljót að dæma marga listina sem eitthvert ómerkilegt rugl af því að hún rúmast ekki innan þess sem er opinberlega samþykkt sem list. Og stundum er þetta alveg á hinn veginn. Hver hefur ekki lent í því að standa fyrir framan myndlistarverk eða sitja úti í sal og horfa á leikrit og hugsa: Nú er verið að hafa mig að fífli. En þora ekki að segja það upphátt, af því að allir hinir (og líka hin háæruverðuga elíta) segir: Þetta er frábært meist- arastykki. Listin í grjóninu og plastinu AF LÍFSLISTINNI Kristín Heiða Kristinsdóttir »Hver hefur ekki lentí því að standa fyrir framan myndlistarverk eða sitja úti í sal og horfa á leikrit og hugsa: Nú er verið að hafa mig að fífli. Reuters List Fagurlega uppraðaðir grjónasekkir og drengur með plast.    Stundum er svo ágætt að fáhvíld frá því sem hefur fengið stimpilinn LIST og opna augun, heilann og hjartað fyrir listinni á ólíklegustu stöðum. Listinni í drullunni í kjallara- tröppunum, formfögrum frost- rósunum á bílrúðunni á morgn- ana, listinni í ruslinu sem fýkur um með þokka á bílastæðinu, í uppröðun gámanna á höfninni, hreyfingum handar sem fiktar í hári einhvers á næsta borði, sí- breytilegri birtunni á himn- inum …það er endalaus lista- veisla allt í kringum okkur alla daga.    Það er gott að vera minnturreglulega á að horfa betur í kringum sig. Nota nefið bet- ur. Góður vinur minni hringdi í mig um daginn og minnti mig á að gleyma nú ekki að finna ilm- inn af andartakinu. Hann var staddur á Mokka, því listakaffi- húsi sem er einn af þeim fáu stöðum sem hafa fengið að halda sér nokkuð óbreyttir. Hann bað hógværlega um að- eins eina og hálfa mínútu af mínum dýrmæta tíma til að spjalla við mig. Eins og við manninn mælt tókst honum að láta mig gleyma mér í miklu lengra en mjög ánægjulegu samtali. Ævinlega þegar ég á sam- skipti við fólk af þessari sjald- gæfu tegund, fólk sem talar hægt og virðist hafa allan tím- ann í heiminum á sínu valdi, fer ég að velta fyrir mér hvað tímaleysið sem flest okkar glíma við daglega, rænir okkur mikilli upplifun. Það er full ástæða til að minna fólk sem oftast á að gefa sér tíma til að staldra við augnablikið, af því að: „Life is what happens.....w- hile your making other plans,“ eins og Lennon komst svo ágætlega að orði. khk@mbl.is Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG MUN spila plötuna í heild, frá fyrsta lagi til þess síðasta og aukalög ef salurinn óskar þess,“ segir tónlist- amaðurinn Jón Tryggvi sem heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld í tilefni útkomu plötunnar Silkimjúk er syndin. Platan, sem er fyrsta sólóplata Jóns Tryggva, kom út í byrjun des- ember og eru öll lögin á henni eftir hann. „Ég hafði alltaf í huga að gefa út plötu með tónsmíðum mínum og er meira að segja með aðra í maganum núna,“ segir Jón Tryggvi. Hann á einnig textana við tíu lög af tólf á plötunni, tveir þeirra eru ljóð eftir Davíð Stefánsson og Stein Steinarr. „Davíð Stefánsson er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ég sæki mikinn innblástur í hann. Ég var síðan beð- inn um að semja lag við ljóð Steins Steinarr, „Í draumi sérhvers manns“, og fannst það heppnast svo vel að ég ákvað að hafa það með á plötunni,“ segir Jón Tryggvi sem kemur vana- lega fram einn með kassagítarinn en er með heila hljómsveit sér til full- tingis á plötunni. Sama hljómsveit kemur fram með honum á tónleik- unum í kvöld. Í tónsmíðum sínum segist Jón Tryggvi aðallega vera undir áhrifum bandarískrar þjóðlagatónlistar en sæki líka í þá íslensku. „Ég hlusta mikið á Johnny Cash, Neil Young og aðra slíka. Blúsgítarleikarar eru hetjurnar.“ Tónlistin hefur átt hug og hjarta Jóns Tryggva lengi, eða frá því hann byrjaði að læra á fiðlu sjö ára gamall. „Ég lagði fiðluna á hilluna þegar ég var þrettán ára og fékk raf- magnsgítar. Síðan fór ég yfir í kassa- gítarinn um tvítugt og byrjaði um svipað leyti að skrifa texta og setja melódíu við.“ Útgáfutónleikar Jóns Tryggva hefjast kl. 20.30 í Salnum í kvöld. Miðaverð er 1.500 kr. og hægt er að nálgast miða á midi.is og salurinn.is. Blúsgítarleikarar eru hetjurnar  Jón Tryggvi heldur útgáfutónleika í kvöld í Salnum  Undir áhrifum bandarískrar þjóðlagatónlistar Jón Tryggvi Hetjurnar hans eru Johnny Cash og Neil Young. www.jontryggvi.bandcamp.com TILNEFNINGAR til NME-tónlistar- verðlaunanna voru nýlega kynntar. Það er hljómsveitin Arctic Monkeys sem fer fremst í flokki með flestar tilnefningar, eða sex talsins. Kasabi- an fylgir þeim fast eftir með fimm tilnefningar. Hljómsveitirnar tvær eigast við í flokkunum besta breska hljómsveitin, besta tónleikabandið, besta platan, besta myndbandið og í nýjum flokki þar sem veitt eru verð- laun fyrir þá hljómsveit sem er í bestum tengslum við aðdáendur sína. Arctic Monkeys eru einnig til- nefndir fyrir besta lagið, „Crying Lightning“. Þrátt fyrir að hljómsveitin hafi hætt á síðasta ári er Oasis tilnefnd til þrennra verðlauna. Oasis var valin besta hljómsveitin á verðlaununum í fyrra, kosin af lesendum tónlistar- tímaritsins. Muse er tilnefnd til fernra verðlauna en ásamt Kasabi- an, Arctic Monkeys, Oasis og Biffy Clyro er Muse tilnefnd í flokknum besta hljómsveitin. Green Day, Kings of Leon, Para- more, Vampire Weekend og Yeah Yeah Yeahs eru tilnefndar sem besta alþjóðlega hljómsveitin. Í flokki bestu sólólistamannana eru m.a. tilnefndar Florence and the Machine og Lady GaGa. NME- verðlaunin fara fram í Brixton Aca- demy í London 24. febrúar. Tónlistartímarit tilnefnir Arctic Monkeys Alex Turner. Reuters Kasabian Tom Meighan. VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ! SÝND Í ÁLFABAKKA FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI ELLEN PAGE úr JUNO er stórkost- leg í þessari frábæru mynd Vertu þín eigin hetja HHHH “ELLEN PAGE ER STÓRKOSTLEG” - NEW YORK DAILY NEWS HHH “MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ” - ROGER EBERT SÝND Í ÁLFABAKKA BEST PICTURE BROADCAST FILM CRITICS BEST PICTURE NEW YORK FILM CRITICS BEST DIRECTOR LOS ANGELES FILM CRITICS "PERFECT CASTING, BRILLIANT WRITING, FLAWLESS TONE. A TIMELESS MOVIE OF HUMOR, HEART AND MIND." - THE WASHINGTON POST "GEORGE CLOONEY GIVES THE PERFORMANCE OF HIS CAREER." - NEW YORK POST WINNER! BEST PICTURE NATIONAL BOARD OF REVIEW BEST ACTOR George Clooney BEST SUPORTING ACTRESS Anna Kendrick BEST ADAPTED SCREENPLAY YFIR 50 HHHH DÓMAR STÓRKOSTLEG MYND SEM SLEGIÐ HEFUR RÆKILEGA Í GEGN GEORGE CLOONEY, VERA FARMIGA OG ANNA KENDRICK FARA Á KOSTUM Í ÞESSARI FRÁBÆRU MYND TILNEFND TIL 6 GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA TILNEFND TIL 6 BAFTA VERÐLAUNA SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIDI.IS HHHH „IT’S PROBABLY THE MOST PURELY FUN FILM EXPERIENCE I’VE HAD ALL YEAR. SEE IT AS SOON AS YOU CAN“ - WWW.JOBLO.COM HHH „BÍÓMYND SEM UNDIRRITAÐUR GETUR MÆLT MEÐ...“ „SENNILEGA EINHVER ÖFLUGASTA BYRJUN SEM ÉG HEF SÉÐ...“ - KVIKMYNDIR.IS – T.V. HHHH -NEW YORK DAILY NEWS FRÁ LEIKSTJÓRA ROCK‘NROLLA & SNATCH – GUY RITCHIE Robert Downey Jr. og Jude Law eru stórkostlegir í hlutverki Sherlock Holmes og Dr. Watson HHH „FYNDIN OG VEL LEIKIN“ - S.V. – MBL. Besti leikarinn, Robert Downey Jr. SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI HHHH „REITMAN HEFUR TEKIST Í ÞRIÐJA SINN AÐ GERA EINA BESTU, SKEMMTILEGUSTU OG FERSKUSTU MYND ÁRSINS. ÉG HVET ALLA SEM HAFA ÁNÆGJU AF BÍÓFERÐUM AÐ SETJA UP IN THE AIR EFST Á ÓSKALISTANN.“ - S.V.,MBL HHHH „HITTIR Á ALLAR RÉTTU NÓTURNAR... HÚN ER FYNDIN, SNJÖLL, HRÍF- ANDI, ÓFYRIRSJÁANLEG OG BLESSUNARLEGA KLISJULAUS.” - T.V. - KVIKMYNDIR.IS / KRINGLUNNI SHERLOCK HOLMES kl. 6D - 8D - 9D - 10:10 - 10:40D 12 PLANET 51 m. ísl. tali kl. 5:50D L BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 8 L / ÁLFABAKKA UP IN THE AIR kl. 5:40 - 8 - 10:20 L WHIPIT kl. 8:20 10 PLANET 51 m. ísl. tali kl. 5:50D L DIGITAL SORORITYROW kl. 10:40 16 SHERLOCK HOLMES kl. 6 - 8D - 10:40D 12 DIGITAL THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:50 (Síðustu sýningar) 12 SHERLOCK HOLMES kl. 5:20-8-10:40 LÚXUS VIP BJARNFREÐARSON kl. 6 - 8:20 - 9 - 10:40 L

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.