Morgunblaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
5 6 9
2 8
1 9 4 6 7
7 5
6 4 9 2
1 4
7 2 5 1
8 1
5
7 3 8
5 1 3
4 8 9
6 1
4
3 9
4 1 5
6 5 9 8
7 6
2 5 3
6 2 4
2 4 9 7
2 6
7 1 9
3
6 1 5
3 4 7 2
4 1
2 8 5 7 1 6 9 4 3
4 9 1 3 8 2 5 6 7
3 6 7 5 9 4 2 8 1
5 2 3 9 4 7 8 1 6
6 7 9 1 5 8 4 3 2
8 1 4 2 6 3 7 5 9
9 3 8 6 7 5 1 2 4
1 5 6 4 2 9 3 7 8
7 4 2 8 3 1 6 9 5
8 7 6 2 3 1 9 4 5
4 2 3 9 5 8 1 6 7
5 9 1 4 6 7 2 8 3
2 1 8 3 7 6 4 5 9
6 4 7 8 9 5 3 1 2
9 3 5 1 4 2 6 7 8
1 5 2 6 8 3 7 9 4
3 8 9 7 1 4 5 2 6
7 6 4 5 2 9 8 3 1
4 8 9 2 5 1 7 3 6
5 7 1 6 3 8 4 2 9
3 6 2 4 7 9 8 1 5
8 2 4 1 9 3 6 5 7
9 3 7 5 8 6 1 4 2
1 5 6 7 4 2 9 8 3
6 9 5 8 2 4 3 7 1
2 4 3 9 1 7 5 6 8
7 1 8 3 6 5 2 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 29. janúar, 29. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: „Sá
sem trúir á mig, trúir ekki á mig, held-
ur þann sem sendi mig.“ (Jh. 12, 44.)
Ísland hefur aldrei átt sterkarilandsliðshóp í handbolta en um
þessar mundir, að mati Víkverja,
sem hefur fylgst vel með handbolt-
anum frá því á tímum Hálogalands.
Silfurdrengirnir frá Peking eru
sannkallaðir ráðherrar Íslands.
x x x
Það hefur verið hrein unun aðfylgjast með landsliðinu í Evr-
ópukeppninni í Austurríki und-
anfarna daga. Þjóðin hefur fengið
tækifæri til þess að gleðjast dag eftir
dag og jafnvel krónan styrktist þeg-
ar Ísland sigraði Noreg í gær. Samt
er ekkert öruggt í handboltanum og
hafa verður í huga að bestu liðin eru
ótrúlega jöfn og því er það ekki endi-
lega betra liðið sem sigrar hverju
sinni heldur það lið sem er heppn-
ara. Serbar, Austurríkismenn og
Króatar voru til dæmis heppnir að
ná jafntefli við Íslendinga nú á EM.
x x x
Sigurinn á móti Noregi kom Ís-landi í undanúrslit á öðru stór-
mótinu í röð. Fyrir utan sviðsljósið
um helgina eru sterk lið eins og frá
Noregi, Rússlandi, Tékklandi og
Þýskalandi. Þessi staða segir meira
en mörg orð um stöðu Íslands.
Árangurinn er ekki sjálfgefinn.
Hann er fyrst og fremst árangur
þrotlausrar vinnu. HSÍ hefur unnið
þrekvirki en í sigrunum vill gleym-
ast að þessi vinna kostar mikla pen-
inga og þeir hafa ekki verið til hjá
HSÍ um árabil. Menn, sem standa á
bak við liðið, borga jafnvel úr eigin
vasa til þess að auka ekki skuldir
sambandsins.
x x x
Enn einu sinni hefur handbolta-landsliðið sameinað þjóðina.
Ríkisstjórnin þarf að átta sig á því
að það eru fyrst og fremst íþrótt-
irnar sem halda þessari þjóð á floti.
HSÍ á skilið að fá mun meiri stuðn-
ing en raun ber vitni og Víkverji
leggur til að til að byrja með leggi
hvert ráðuneyti til HSÍ þá upphæð
sem það kostar að halda úti ráðherra
á ári. Að HSÍ fái árlega styrk sem
samsvarar launakostnaði ráð-
herranna tólf. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 salerni, 4 ný, 7
föl, 8 lystarleysi, 9 spott,
11 tölustafur, 13 spil, 14
mjög gott, 15 naut, 17
hey, 20 á húsi, 22 aka, 23
hljóðfæri, 24 talaði um,
25 gálur.
Lóðrétt | 1 smábýlin, 2
stór, 3 jaðar, 4 í fjósi, 5
prófað, 6 lítið herbergi,
10 þor, 12 rimlakassi, 13
stefna,15 hnikar til, 16
afkáraleg vera, 18
hryggð, 19 með tölu, 20
heimskingi, 21 harmur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kostnaður, 8 gátur, 9 aumur, 10 fæð, 11 syrgi,
13 iglan, 15 gráta, 18 sarga, 21 not, 22 spaug, 23 akkur,
24 hlunnfara.
Lóðrétt: 2 ostur, 3 tarfi, 4 ataði, 5 urmul, 6 Ægis, 7
hrun, 12 get, 14 góa, 15 gust, 16 áfall, 17 angan, 18
starf, 19 ríkur, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. g3 d5 2. c4 c6 3. cxd5 cxd5 4. d4 Rf6
5. Bg2 Bf5 6. Rc3 e6 7. Rf3 Rc6 8. 0-0
Bb4 9. Bd2 0-0 10. Hc1 Bxc3 11. Bxc3
Re4 12. e3 h6 13. Rd2 Rxc3 14. bxc3
Da5 15. Db3 Bd3 16. Hfe1 b5 17. e4 Bc4
18. Rxc4 bxc4 19. Dc2 Hab8 20. exd5
exd5 21. Df5 Hfd8 22. He3 g6 23. Df6
Db6 24. Hce1 Ra5 25. Df4 Kg7 26. He7
Df6 27. Dc7 Hb2
Staðan kom upp á alþjóðlegu ung-
lingamóti sem Taflfélagið Hellir hélt
fyrir skömmu í Kópavogi. Frans Dahl-
stedt (1.871) frá Svíþjóð hafði hvítt
gegn Páli Andrasyni (1.587). 28.
Hxf7+! Dxf7 29. He7 Hf8 30. De5+
Kh7 31. Bxd5 Hxf2 32. Hxf7+ H8xf7
33. Bxf7 Hxf7 34. Dxa5 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gosaparið.
Norður
♠K5
♥82
♦Á93
♣ÁD10953
Vestur Austur
♠1097 ♠DG64
♥G74 ♥Á65
♦842 ♦10765
♣G862 ♣74
Suður
♠Á832
♥KD1093
♦KDG
♣K
Suður spilar 6G.
„Ertu með penna?“ Sá sem spyr
hefur veitt upp úr vasa sínum gamla
kvittun, en vantar nú penna til að
skrifa herlegheitin á autt bakið –
snúin varnarþraut reynist vera í upp-
siglingu. Útspilið er ♠10 og spurt er:
Hvaða tvo slagi fær vörnin?
„Við skulum sjá,“ segir þú:
„Hjartaásinn er alla vega einn,
en …“
Pennasníkir hefur ekki þolinmæði
til að bíða: „Útspilið er drepið í borði
og hjarta spilað á kóng. Svo er ♣K
tekinn, farið inn í borð á ♦Á og
♣Á-D spilað. Ekki fellur gosinn, en í
hjartanu leynist von: sagnhafi spilar
á drottninguna, svo aftur í bláinn og
austur lendir inni …“
„Aha,“ segir þú: „Austur hendir
hjartaás í þriðja laufið og þá fær
vestur tvo slagi á ♥G og ♣G.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er mannlegt eðli að leita að
göllum hjá öðrum til að líða betur í eigin
skinni. Mundu að það er ekki til neins að
hafa betur í rökræðum ef það kostar vin-
slit.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur mjög ákveðnar skoðanir á
viðkvæmu vandamáli. Slúðrið sem þú
heyrir reynist rangt. Láttu fjölskylduna
ganga fyrir öllu öðru.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sumir lofa gulli og grænum
skógum án þess að meina hið minnsta
með því. Matarboð hressir upp á sálina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú skuldar góðum vini bréf og
ættir að endurgjalda það fyrr en síðar.
Sýndu viljann í verki.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er óþarfi að láta hugfallast þótt
aðrir hafi ekki alltaf þann tíma fyrir þig
sem þú vilt. Njóttu augnabliksins betur
og hugsaðu betur um heilsuna.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Finnist þér þú verða að skipta um
skoðun á einhverju máli, skaltu ekki hika.
Sterkir persónuleikar vekja athygli.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú horfir til vina þinna sem ganga í
gegnum það sama og þú. Reyndu að vera
sannur vinur. Láttu ekki draga þig inn í
tilgangslausar þrætur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fleygðu frá þér öllum nei-
kvæðum hugsunum þess efnis að þú ráðir
ekki við þau verkefni sem þér eru falin.
Farðu vel með þig, hvíldu þig nóg og
borðaðu hollt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Notaðu tímann í samninga,
kaup og sölu, og viðræður af því tagi.
Gættu þess bara að halda utan um þína
nánustu. Hvernig væri að fara í leikhús?
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Samstarfsmenn þínir eru
hvorki hjálplegir né koma með upp-
byggilegar hugmyndir. Gakktu fram fyrir
skjöldu og sjáðu til þess að ykkur sé sýnd
tilhlýðileg virðing.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur. Stattu fastur/föst á þínu
uns rykið eftir hina hefur sest aftur.
Dragðu þig síðan í hlé, hvíldu þig og safn-
aðu kröftum fyrir næstu daga.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú berð hjartað utan á þér, farðu
varlega. Dekur ætti að vera á dagskrá af
og til hjá öllum. Hvað er betra en fara í
nudd?
Stjörnuspá
29. janúar 1905
Jarðskjálfti fannst víða um
sunnanvert og vestanvert
landið. Verulegt tjón varð á
tveimur bæjum nálægt Krýsu-
vík. Upptökin voru við
Kleifarvatn og áætluð stærð
skjálftans 5,5 stig.
29. janúar 1928
Slysavarnafélag Íslands,
SVFÍ, var stofnað. Fyrsti for-
seti þess var Guðmundur
Björnsson landlæknir. Haustið
1999 var félagið sameinað
Landsbjörgu undir nafninu
Slysavarnafélagið Lands-
björg.
29. janúar 2000
Innsigli var rofið á kassa sem
hafði verið afhentur Lands-
bókasafni til varðveislu árið
1967 en áskilið að yrði ekki
opnaður fyrr en árið 2000. Í
kassanum voru bréf til Erlend-
ar Guðmundssonar í Unuhúsi
frá Halldóri Laxness, Þór-
bergi Þórðarsyni, Stefáni frá
Hvítadal og fleirum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Vigdís Björnsdóttir, Klara Sól
Ómarsdóttir og Melkorka Ýr Jó-
hannsdóttir gengu í hús í neðra
Breiðholti og söfnuðu 5.007 kr. sem
þær færðu Rauða krossinum til
styrktar Haítí.
Söfnun
„ÞAÐ ættu allir að reyna þetta,“ segir Anna Pálm-
ey Hjartardóttir, sem er við hestaheilsu og nær
áfanganum í dag. Hún segist alltaf hafa verið mik-
ið afmælisbarn og njóti þess að halda upp á dag-
inn. „Maður fær þá gesti sem tala við mann,“ segir
hún. Anna segir að hún hafi ekki nennt að horfa á
handboltann í gær en hún tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Kópavogskirkju klukkan 16 á
morgun, laugardag. Eins og gefur að skilja hefur
Anna Pálmey upplifað margt á langri ævi og segir
margt eftirminnilegt. Hún fæddist á Litla-Fjalli í
Borgarfirði og ólst þar upp. Hún byrjaði snemma
að vinna og eftir að hún flutti til Reykjavíkur vann hún meðal annars
á saumastofu Árna og Bjarna og þótti slyng saumakona. Þaðan fór
hún til Stokkseyrar til að vera ráðskona hjá Sæmundi Friðrikssyni,
ekkli með fimm börn. Hann var 25 árum eldri en hún en þau giftust og
eignuðust tvö börn. Áður átti Anna Pálmey eina dóttur. Eftir að Sæ-
mundur dó giftist hún Frímanni Sigurðssyni fangaverði. Hún var alla
tíð mjög virk í félagsstarfi og tók að sér börn, bæði til skemmri dvalar
og eins til þess að ala þau upp, auk þess sem hún tók að sér gamalt
fólk sem átti engan samastað. steinthor@mbl.is
Anna Pálmey Hjartardóttir 100 ára
Það ættu allir að reyna þetta
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjanesbær Kristófer
Orri fæddist 25. nóvember
kl. 2.49. Hann vó 4.835 g
og var 54 cm langur. For-
eldrar hans eru Grétar
Már Garðarsson og Sonja
Kjartansdóttir.
Reykjavík Róbert Örn
fæddist 30 ágúst kl. 6.48.
Hann vó 17,5 merkur og
var 52 cm langur. For-
eldra hans eru Karitas
Ósk Þorsteindóttir og
Davíð Már Jóhannsson.