Morgunblaðið - 06.03.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MEIRI upplýsingar verða forskráðar á skattframtalið í ár
en áður. Breytingar á vefframtalinu miða að því að gera
framtalsgerðina sem auðveldasta. Flestir þurfa aðeins að
yfirfara framtalið áður en því er skilað.
Að öllu forfallalausu verður opnað fyrir skattframtal á
netinu nk. miðvikudag, að sögn Skúla Eggerts Þórðarson-
ar ríkisskattstjóra. Skilafrestur rennur út 26. mars en
hægt verður að sækja um frest fram yfir páska.
Nú forskrá skattyfirvöld allar upplýsingar frá fjármála-
fyrirtækjum, meðal annars allar skuldir, þar með taldar
skuldir á greiðslukortareikningum. Þá verða verktaka-
greiðslur undir 100 þúsund krónum skráðar og frádráttur
á móti ökutækjastyrk og ívilnun vegna náms barna.
Framtalsgerðin hefst nú á villuprófun sem vekur athygli
viðkomandi á hugsanlegum villum. Þeir sem þurfa að gera
breytingar geta farið inn í framtalið.
helgi@mbl.is
Flestir þurfa aðeins að
yfirfara framtalið og skila
Opnað fyrir vefframtal 10. mars
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjármálaráðherra
varpaði fram spurningu til blaða- og fréttamanna í
lok blaðamannafundar hans og forsætisráðherra,
að afloknum ríkisstjórnarfundi í gærmorgun, sem
var svohljóðandi: „Hvernig halda menn að gangi
að semja ef einhverjir eru í samningaliðinu sem
vilja ekki semja?“ Ráðherrann útskýrði orð sín
ekki frekar og gekk við svo búið af fundi.
Morgunblaðið náði tali af Lárusi Blöndal
hæstaréttarlögmanni, sem á
sæti í samninganefnd Íslands,
laust eftir að hann kom heim
frá Lundúnum í gær. Hann var
spurður hvort hann teldi að
fjármálaráðherra væri að
beina spjótum sínum að hon-
um, sem fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar í samninganefnd-
inni: „Það kæmi mér á óvart ef
fjármálaráðherra væri með
þessu að beina orðum sínum til
mín. Ég hef ekki litið á mig sem neitt vandamál í
samninganefndinni. Við í samninganefndinni höf-
um unnið mjög vel saman og í mikilli einurð. Það
er hins vegar rétt, að við erum ekki reiðubúin til
þess að semja um hvað sem er,“ sagði Lárus.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, sagði í gærkvöldi
þegar hann var spurður sömu
spurningar og Lárus: „Ég veit
ekki við hvern eða hverja fjár-
málaráðherra átti. Ég túlkaði
þessi orð hans sem skot á
stjórnarandstöðuna, en held
hins vegar að vandamálið sé á
hinn veginn. Steingrímur hefur
hvað eftir annað farið gegn
ráðleggingum samninganefndarinnar með því að
gera lítið úr þjóðaratkvæðagreiðslunni og tala um
að semja strax og að við séum ekki í aðstöðu til
annars, á meðan á viðræðum stendur. Þar liggur
vandinn.“
Semjum ekki um hvað sem er
Lárus Blöndal segir samninganefnd Íslands hafa unnið mjög vel saman Sig-
mundur Davíð segir vandann liggja hjá fjármálaráðherra, ekki stjórnarandstöðu
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Lárus
Blöndal
KARLMAÐUR sem leitað var að í
fyrrinótt og gærmorgun fannst lát-
inn rétt fyrir hádegi í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á Selfossi bendir allt til þess að
hann hafi orðið úti.
Maðurinn fannst i Ölfusi og voru
það björgunarsveitarmenn sem
fundu manninn, sem var á sextugs-
aldri. Maðurinn bjó á dvalarheim-
ilinu Ási í Hveragerði. Síðast spurð-
ist til hans um kl. 18 á fimmtudag.
Björgunarsveitir fyrir austan
fjall og af höfuðborgarsvæðinu
voru kallaðar út rétt eftir miðnætti
til leitar og tóku um 100 björg-
unarsveitamenn þátt í leitinni.
Karlmaður sem
leitað var að fannst
látinn í Ölfusi
Breytingar verða á skatt-
framkvæmdinni í ár. Starfsfólk
skattstofa fer ekki yfir framtöl
íbúa á viðkomandi svæði heldur
fær hver skattstofa framtöl með
ákveðnum einkennum.
Framtöl allra landsmanna fara í
eitt safn sem sérstök álagning-
arstjórn flokkar og úthlutar til
skattstofanna níu. „Við vonum að
afköst og gæði vinnunnar aukist
og meira samræmi verði,“ segir Skúli Eggert Þórð-
arson ríkisskattstjóri. Sama fólkið fer yfir öll land-
búnaðarframtöl og annar hópur fer yfir ívilnanir, svo
tvö dæmi séu nefnd.
Öll framtölin í eitt safn
Skúli Eggert
Þórðarson
ENGIN niður-
staða varð af
stuttum fundi
samninga-
nefnda Flug-
virkjafélags Ís-
lands og Sam-
taka atvinnu-
lífsins fyrir hönd Icelandair hjá
ríkissáttasemjara í gærmorgun.
Næsti fundur er boðaður á mánudag.
Kristján Kristinsson, formaður
samninganefndar Flugvirkja, sagði
menn hafa kynnt sína hlið málsins og
ákveðið að skoða stöðuna yfir
helgina. Sem kunnugt er kolfelldu
flugvirkjar samning sem gerður var
í síðustu viku, eftir átta tíma verk-
fall. Verkfall hefur verið boðað að
nýju mánudaginn 22. mars.
Engin niðurstaða
hjá flugvirkjum
STEINGRÍMUR
J. Sigfússon fjár-
málaráðherra
sagði í Kastljósi
Sjónvarpsins í
gærkvöldi, að
hann hefði feng-
ið staðfest svör
frá starfsbræðr-
um sínum í Bret-
landi og Hollandi
í gær. Segjast
ráðherrarnir vera reiðubúnir til
frekari viðræðna um Icesave-málið
eftir helgina. Spurður út í lokaorð
sín á ríkisstjórnarfundi í gærmorg-
un sagði Steingrímur að sér hefði
brugðið þegar fulltrúar stjórnar-
andstöðunnar, m.a. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, hefðu allt í
einu farið að tala um það að kalla
ætti samninganefndina heim frá
London.
Viðræður halda
áfram eftir helgi
Steingrímur J.
Sigfússon
SVEITARSTJÓRN Flóahrepps
hefur ákveðið að auglýsa að nýju til-
lögu að aðalskipulagi sem gerir ráð
fyrir Urriðafossvirkjun í Þjórsá.
Jafnframt hefur sveitarstjórnin
ákveðið að höfða mál til ógildingar
ákvörðunar umhverfisráðherra sem
neitaði að staðfesta virkjunarhluta
skipulagsins.
Umhverfisráðherra staðfesti ekki
aðalskipulagið á þeirri forsendu að
Landsvirkjun hafði greitt Flóa-
hreppi kostnað við skipulagsferlið.
Raunar hafði féð verið endurgreitt.
„Við teljum að það sé margt í þess-
um úrskurði ráðherra sem orkar tví-
mælis. Samkvæmt honum gilda önn-
ur lög um Flóahrepp og íbúa hans en
aðra landsmenn. Það er nauðsynlegt
að fá úr þessu skorið,“ segir Aðal-
steinn Sveinsson oddviti.
Unnið samkvæmt reglum
Krafan í dómsmálinu verður að
skipulagið taki gildi, enda segir odd-
vitinn nauðsynlegt að hafa aðal-
skipulag. „Við teljum að það hafi ver-
ið unnið samkvæmt lögum og réttum
reglum. Búið er að leggja í það mikla
vinnu og kostnað,“ segir hann.
Skipulagstillagan sem nú verður
auglýst er efnislega samhljóða tillög-
unni sem ráðherra hafnaði.
helgi@mbl.is
Krefjast ógild-
ingar úrskurðar
Urriðafossvirkjun á nýrri skipulagstillögu
„ÞETTA er frábær heiður fyrir mig
og alla í Latabæ,“ sagði Íþróttaálf-
urinn Magnús Scheving í samtali við
mbl.is Sjónvarp eftir fund hans með
Michelle Obama, forsetafrú Banda-
ríkjanna, í Washington í gærdag.
Magnús, í hlutverki Íþróttaálfsins,
lék sér í fótbolta með forsetafrúnni
auk þess að gefa henni íþrótta-
nammi, þ.e. epli.
Fundur þeirra Obama og Magn-
úsar var í tilefni af því að Latibær
mun leggja herferð fyrir aukinni
hreyfingu bandarískra barna lið, en
forsetafrúin er verndari átaksins
sem ber heitið Hreyfum okkur (e.
Let’s move). Obama kom að Bruce
Monroe-barnaskólanum í Wash-
ington þar sem Íþróttaálfurinn
stýrði upphitun barna.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir
okkur því heiti átaksins er eiginlega
slagorð Latabæjar. Þau sýndu einnig
mikinn áhuga á því í Hvíta húsinu að
vinna með okkur, enda erum við eig-
inlega eina skemmtiefnið sem gerir
út á heilsu barna,“ sagði Magnús.
Næst á dagskrá er að fara með
Latabæ til 23 bandarískra borga og
kynna þar knattspyrnu, í samstarfi
við bandaríska knattspyrnu-
sambandið.
Forsetafrú Bandaríkjanna lýsti yfir áhuga á samstarfi við Latabæ
Tilþrif Ekki er að sjá annað en Michelle Obama, bandaríska forsetafrúin, eigi í fullu tré við Íþróttaálfinn.
Lék sér í
fótbolta
við álfinn
Íþróttaálfurinn gaf Michelle epli
mbl.is | SJÓNVARP