Morgunblaðið - 06.03.2010, Side 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„VIÐ höfum skrifað sveit-
arstjórnum í Noregi, Danmörku,
Svíþjóð og Finnlandi bréf og til rík-
isstjórna sömu landa, segir Mette
Nord, talsmaður norsku verkalýðs-
samtakanna Fagforbundet, um þá
áskorun samtakanna að Norður-
löndin styðji lánafyrirgreiðslu til
handa Íslandi óháð afgreiðslu Ice-
save-málins.
„Það eru um 312.000 meðlimir í
samtökunum okkar. Ég held að
þeir séu nokkurn veginn jafn marg-
ir í Svíþjóð og um 150.000 í Dan-
mörku,“ sagði Nord sem var ekki
með töluna fyrir Finnland á tak-
teininum.
Bresk herferð í sjónmáli
Verkalýðsfélög í fleiri löndum
gætu bæst í hópinn á næstunni því
bresku baráttusamtökin Jubilee
hyggjast á næstu vikum snúa sér
að félagi í Bretlandi sem hefur um
6 milljón félagsmenn í sínum röð-
um.
Inntur eftir þessu átaki segir
Nick Dearden, formaður Jubilee, að
sökum mannfæðar hafi samtökin
ekki náð að beita sér í Icesave-
málinu sem skyldi. Þegar forgangs-
mál hafi verið afgreidd muni félagið
hefja leit að öflugum talsmanni til
að fara fyrir herferð þar sem þrýst
verður á bresk stjórnvöld að koma
til móts við óskir Íslendinga. Dear-
den bætir því við að evrópsk syst-
ursamtök hyggist leita eftir stuðn-
ingi verkalýðsfélaga í álfunni í
málinu en að þær viðræður séu á
viðkvæmu stigi.
Helene Bank hefur einnig sterka
skoðun á málinu en hún er þekkt
baráttukona fyrir borgararéttindum
í Noregi sem hefur unnið með Afr-
íkuríkjum og ýmsum þróunar-
löndum vegna skuldaaðlögunar.
Bank, sem er meðlimur í samtök-
unum, Campaign for the Welfare
State, telur að þrátt fyrir aðvaranir
hafi stjórnmálamenn haldið áfram á
sömu braut og svo látið skattgreið-
endur bera ábyrgðina að lokum.
Nýlenduveldi ráði ekki yfir auð-
æfum Íslendinga líkt og í mörgum
þróunarlöndum. Ef Ísland nær
sinni kröfu fram um að áætlun AGS
verði endurskoðuð geti það hvatt
önnur ríki til að gera slíkt hið sama.
Sænskir vinstrimenn í málið
Vinstriflokkurinn í Svíþjóð hefur
tekið upp hanskann fyrir Ísland í
deilunni og segir Ulla Andersson,
þingmaður flokksins, stöðuna á Ís-
landi munu verða tekna fyrir á
fundi fjárlaganefndar þingsins á
mánudag. Andersson kom til Ís-
lands fyrir skömmu til að setja sig í
málið.
Stuðningur úr ólíkum áttum
Morgunblaðið/Ómar
Fyrirmynd? Víða um heim er fylgst með mótmælaöldunni á Íslandi í kjölfar fjármálahrunsins. Baráttan gegn Icesave-skuldabyrðinni
þykir táknræn fyrir réttindabaráttu einstaklinga andspænis fjármálakerfinu. Hrunið er komið í kennslubækur.
Norskt verkalýðsfélag virkjar systurfélög sín á Norðurlöndum í Icesave-deilunni Evrópsk samtök
hyggjast beita sömu aðferð í Evrópu Baráttukona telur Ísland geta orðið öðrum ríkjum fyrirmynd
Verkalýðsfélög jafnt sem bar-
áttusamtök og aðgerðasinnar
víða um heim fylgjast grannt
með framvindu Icesave-málsins
sem þykir táknrænt fyrir rétt-
indabaráttu borgaranna.
Helene Bank
Nick DeardenMette Nord
Ulla Anderson
„Það sem er að gerast á Íslandi er
forsmekkurinn að því sem kann að
verða algengara í þróuðum ríkjum.
Stjórnvöld hafa sagt skattgreið-
endum að þeir þurfi að bera kostn-
aðinn af misráðnum ákvörðunum
einkafyrirtækja, hversu hár sem
hann kann að vera, ellegar sætta
sig við jafnvel enn hryllilegri af-
leiðingar í efnahagsmálum,“ skrif-
aði Sheldon Filger, róttækur að-
gerðasinni, í pistli í dagblaðinu
Huffington Post skömmu eftir
synjun forsetans í janúarbyrjun.
Blaðamaður sló þá á þráðinn til
Filgers sem býr í Kanada en hann
heldur úti vefsíðunni Global-
Economic-
Crisis.com,
ásamt því að
hafa gefið út
bók þar sem
vikið er sér-
staklega að Ís-
landi. Filger
fjallar þar um
bankakerfið og
má merkja að
hann er í talsverðri fjarlægð frá
viðfangsefninu.
Nathan Lewis, sjóðsstjóri og
pistlahöfundur á sama blaði, hefur
tekið í sama streng og harðlega
gagnrýnt framkomu AGS í málinu.
Forsmekkurinn að því sem koma skal?
Sheldon Filger
Norsku baráttusamtökin Attac
hyggjast sýna stuðning sinn
við Íslendinga í deilunni í verki
með því að safnast saman fyr-
ir utan sendiráð Íslands í Ósló.
Aðspurð hvort hún eigi von
á mörgum segir Emilie Eke-
berg, formaður félagsins í
Noregi, að hún búist við
minnst 30 manns, enda hafi
fjölmiðlar fjallað talsvert um
Icesave.
Hún telur aðgerðirnar munu
verða lið í að setja þrýsting á
norsku stjórnina í málinu.
Sýna stuðning við
sendiráðið í Ósló
Eftir Ingunni Eyþórsdóttur
NÝKJÖRINN formaður Samtaka
ungra bænda, Helgi Haukur Hauks-
son, kom frá Brussel í gær þar sem
hann var í kynningarferð á vegum
Evrópusambandsins, ESB.
„Tilgangurinn var kynning á Evr-
ópusambandinu. Áþreifanlegt var
hvað þeir reyndu markvisst að
skauta framhjá göllum sambandsins
í landbúnaðarmálum,“ sagði Helgi í
samtali við Morgunblaðið. „ESB
eyðir töluverðum fjárhæðum í kynn-
ingar af þessu tagi. Umræðan um
landbúnaðarþáttinn að þessu sinni
var sáralítil og fátækleg.“
Hann telur að almennt séu fé-
lagsmenn í Samtökum ungra bænda
á móti aðild Íslendinga að ESB og að
andstaða sín gegn sambandinu hafi
styrkst til muna í ferðinni. „Land-
búnaðarstefna ESB er ekki farsæl
fyrir íslenskan landbúnað.“
Hann bendir jafnframt á hversu
mikil áhrif hugsanleg innganga Ís-
lendinga í Evrópusambandið myndi
hafa á landbúnað í landinu, til að
mynda með óheftum innflutningi á
landbúnaðarvörum og algerri um-
breytingu á styrkjakerfinu. „Ég álít
að þjóð af okkar stærðargráðu eigi
lítið erindi inn í Evrópusambandið,
áhrif okkar yrðu afar takmörkuð á
þeim vettvangi.
Ég skora á
stjórnvöld að
hefja ekki aðild-
arviðræður,“ seg-
ir hann.
Ungum bænd-
um innan Evr-
ópusambandsins
fækkaði um 1% á
milli áranna 2008
og 2009. Þetta
segir Helgi að sé mikið áhyggjuefni.
„Verið er að skoða hvort sambærileg
fækkun hafi átt sér stað á milli ára
hjá ungum bændum hér á landi,“
segir Helgi en bætir við að samtökin
finni fyrir verulegum áhuga hjá
ungu fólki á landbúnaði hérlendis.
Til marks um það hefur aðsókn í
nám í búfræði og búvísindum í
Landbúnaðarháskóla Íslands aldrei
verið meiri en síðastliðið haust.
Aðspurður segir Helgi að eitt af
baráttumálum Samtaka ungra
bænda sé að efla nýliðun í greininni.
Einnig berjast samtökin fyrir bættu
lánaumhverfi ungs fólks sem vill
hefja búskap. Samtök ungra bænda
eru ætluð ungu fólki á aldrinum 18-
35 ára sem hefur áhuga á landbúnaði
og málefnum landsbyggðarinnar.
Félagsmenn eru um tvö hundruð og
koma víðs vegar af landinu.
„Andstaðan við
ESB styrktist“
Helgi Haukur
Hauksson
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði Sigrúnar Ástrósar
Sigurðardóttur og Haraldar Sigurðssonar. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir
á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita
um þau efni. Úthlutun miðast við faglegt mat á gæðum rannsóknarverkefnis, færni
og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna
verkefninu. Sjóðurinn er í vörslu Rannsóknamiðstöðvar Íslands - Rannís.
Reglur og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís, www.rannis.is.
Rannsóknasjóður
Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2010
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis
vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt
sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og
tæknisamfélagsins.
Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur
og Haraldar Sigurðssonar