Morgunblaðið - 06.03.2010, Side 21
Fréttir 21VIÐSKIPTI /ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
FÍTON fékk flest verðlaun þegar
íslensku auglýsingaverðlaunin, Lúð-
urinn, voru afhent í gær. Stofan
hlaut fimm verðlaun, meðal annars
fyrir bestu auglýsingaherferðina,
sem valin var „Essasú?“-herferð
Vodafone. Sama herferð, sem Fíton
vann í samvinnu við Miðstræti, bar
sigur úr býtum í vefkosningu á
mbl.is.
Að auki hlaut Fíton verðlaunin
fyrir besta markpóstinn, „Taktu
dolluna – Golfmót VÍS“, í opnum
flokki, „Essasú í World Class“ og
umhverfisgrafík, „Risafrelsi –
Sorrý að ég steig á bílinn þinn“ fyr-
ir Vodafone.
Fjórar stofur með tvenn verðlaun
Íslenska auglýsingastofan hlaut
Lúðurinn fyrir bestu dagblaða-
auglýsinguna, sem stofan vann fyr-
ir Sölufélag garðyrkjumanna og
bar titilinn „Blómið sem heldur að
það sé grænmeti“. Stofan sigraði
einnig í flokki tímaritaauglýsinga,
með „Ofurlaun“ fyrir Nathan og Ol-
sen.
ENNEMM fékk tvenn verðlaun,
í flokki útvarps- og sjónvarps-
auglýsinga. Útvarpsauglýsingin var
fyrir Skjáinn og auglýsti Skjábíó,
en sjónvarpsauglýsingin var fyrir
Netvara Símans.
Jónsson & Le’macks fengu einn-
ig tvenn verðlaun, í flokki vegg-
spjalda og vefauglýsinga. Vegg-
spjaldið bar heitið „Heimskort
Jóna“ og var unnið fyrir Jóna
Transport, en vefauglýsingin var
„Glæpafaraldur“ sem unninn var
fyrir Pennann Eymundsson.
Í flokki vörumerkja bar Örn Smári
sigur úr býtum með merki Metro-
hamborgarakeðjunnar.
Hvíta húsið sigraði í báðum
flokkum fyrir almannaheillaauglýs-
ingar, fyrir ljósvakamiðla og aðra
miðla. Besta almannaheillaauglýs-
ingin fyrir ljósvakamiðla var fyrir
Samtök iðnaðarins og fjallaði um
svarta atvinnustarfsemi og sjúkra-
hús, en sú besta fyrir aðra miðla
var vefborðinn „Notaðu beltin –
alltaf“, sem unninn var fyrir Um-
ferðarstofu og VÍS.
Fangavaktarleikur besti
viðburðurinn
Þá hlaut Sagafilm Lúðurinn fyrir
besta viðburðinn, sem var fanga-
vaktarleikur Stöðvar 2 í Kringlunni.
Fíton með flesta
Lúðra fyrir árið 2009
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðstefna Samhliða afhendingu verðlaunanna var haldin ráðstefna á Íslenska markaðsdeginum í gær. Fulltrúar á
ráðstefnunni voru 250 talsins og aðalfyrirlesari var hinn þekkti vörumerkjasérfræðingur dr. Kevin Lane Keller.
FÉLAG atvinnurekenda segir að
nýtt frumvarp viðskiptaráðherra
um lög um fjármálafyrirtæki setji
bönkum ekki nægilega skýr skil-
yrði varðandi eignarhald fyr-
irtækja.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að tryggja verði samkeppnissjón-
armið með skýrari hætti í lögum –
það verði að vera óumdeilt að
bankar stuðli ekki að óheil-
brigðum viðskiptaháttum í gegn-
um eignarhald. Þá segir að lög-
gjafanum beri að setja skýrar
línur varðandi hvað hann telji
„tímabundna“ eign banka í at-
vinnufyrirtækjum – það eigi ekki
að vera túlkunaratriði bankanna
sjálfra.
„Heilu atvinnugreinarnar mót-
ast nú af því að þar eru fyrirtæki í
eigu banka og skilanefnda í sam-
keppni við einkaaðila og í inn-
byrðis samkeppni. Það skapar við-
varandi óvissu og bjagar eðlilega
samkeppni. Nefna má bílamark-
aðinn og markað með ritföng sem
dæmi um þetta. Því miður eru
dæmin mun fleiri, segir í tilkynn-
ingunni. ivarpall@mbl.is
Bankarnir ógni
samkeppni
TM, Tryggingamiðstöðin, tapaði
2,6 milljörðum króna á síðasta ári,
borið saman við 12,5 milljarða tap á
árinu áður. Munar þar mest um
„þýðingarmun dótturfélaga“, sem
er færður til gjalda upp á 5,5 millj-
arða króna. Þýðingarmunur dótt-
urfélaga er gengismunur sem verð-
ur til við umreikning reikningsskila
félaganna úr erlendum myntum í
íslenskar krónur.
Hagnaður félagsins af reglu-
legum rekstri nam 237 milljónum
króna, samanborið við 5,2 milljarða
tap árið 2008. Eigið fé í árslok var
átta milljarðar króna og eiginfjár-
hlutfall 28%. ivarpall@mbl.is
TM tapar 2,6
milljörðum
króna
PwC á sér rætur í íslensku viðskiptalífi frá 1924
... „Starfið hjá PwC er bæði fjölbreytt og krefjandi. Sem viðskiptafræðingur á endurskoð-
unarsviði fæst ég aðallega við endurskoðun og aðra sérfræðiþjónustu fyrir stærri og smærri
fyrirtæki. Í þessu felast mikil samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn. Ábyrgðin er
mikil en hér leggjast allir á eitt við að skila faglegri vinnu og það er sönn ánægja að sinna
viðskiptavinunum í svo öflugu teymi”.
Margrét Inga Guðnadóttir, viðskiptafræðingur á endurskoðunarsviði PwC
„Hér leggjast allir á eitt við að
skila faglegri vinnu”...
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n