Morgunblaðið - 06.03.2010, Side 28
28 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Föstudaginn 19.mars kemur
út hið árlega Brúðkaupsblað
Morgunblaðsins.
Látið þetta glæsilega
Brúðkaupsblað ekki framhjá
ykkur fara... það verður
stútfullt af spennandi efni.
MEÐAL EFNIS:
Brúðarkjólar
Förðun og hárgreiðsla fyrir brúðina
Veislumatur og veislusalir
Brúðkaupsferðin
Undirbúningurinn
Giftingahringirnir
Brúðargjafirnar
Veisluskreytingar
Veislusalir
Brúðkaupsmyndir
Veislustjórnun
Og fullt af öðru
spennandi efni
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 15. mars.
Brú
ðka
ups
blað
ið
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
BRÚÐKAUPSBLAÐIÐ
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 15. MARS
JÓHANNA Sigurð-
ardóttir forsætisráð-
herra reynir allt sem hún
getur til að eyðileggja
þjóðaratkvæðagreiðsl-
una um Icesave-lögin í
dag og nýtur til þess
stuðnings Steingríms J.
Sigfússonar fjármála-
ráðherra. Framganga
forsætisráðherra síðustu
daga er með þeim hætti
að fáir Íslendingar geta verið stoltir af
leiðtoga ríkisstjórnarinnar.
Í viðtali við Fréttablaðið í gær
(föstudag) sagðist Jóhanna ekki ætla
að taka þátt í atkvæðagreiðslunni um
lög sem hún ber ábyrgð á að voru sett:
„Mér finnst þetta markleysa og
finnst mjög dapurlegt að fyrsta þjóð-
aratkvæðagreiðslan frá stofnun lýð-
veldisins verði um lög sem þegar eru
orðin úrelt. Í ljósi þess sé ég engan til-
gang í að taka þátt í þessari atkvæða-
greiðslu.“
Þessi orð forsætisráðherra eru með
öllu óskiljanleg. Eitt er alveg ljóst. Því
fleiri landsmenn sem mæta á kjörstað
og hafna Icesave-lögunum, því sterk-
ari verður pólitísk
samningsstaða Íslands
gagnvart Bretum og
Hollendingum. Takist
Jóhönnu Sigurð-
ardóttur ætlunarverk
sitt, að eyðileggja þjóð-
aratkvæðagreiðsluna,
veikist samningsstaðan
að sama skapi. Með
orðum sínum og fram-
göngu er forsætisráð-
herra því að vinna
gegn hagsmunum ís-
lensku þjóðarinnar en styrkja málstað
hinna gömlu nýlenduvelda. Varla get-
ur forsætisráðherra nokkurrar þjóðar
lagst lægra.
Í dag eiga allir Íslendingar að
standa saman og senda skýr skilaboð
til umheimsins. Við munum aldrei
beygja okkur gagnvart ofríki annarra
þjóða. Við munum aldrei brotna gagn-
vart ofbeldi. Aldrei.
Afstaða Jóhönnu Sigurðardóttur
gengur þvert á hag þjóðarinnar og
miðast við það eitt að halda dauðahaldi
í ráðherrastól, með því að reka fleyg
milli landsmanna. Vegna þessa er að-
eins hægt að segja: Mikil er skömm
þín Jóhanna.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Takist Jóhönnu Sig-
urðardóttur ætl-
unarverk sitt, að eyði-
leggja þjóðaratkvæða-
greiðsluna, veikist
samningsstaðan að
sama skapi.
Óli Björn Kárason
Höfundur er blaðamaður.
Mikil er skömm
þín Jóhanna
„ENGIN þjóð hef-
ur efni á því að nýta
ekki auðlindir sínar,“
sagði Jón Gunn-
arsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, á
opnum fundi um
orkustefnu fyrir Ís-
land, sem fram fór í
Háskóla Íslands hinn
25. febrúar sl. Með
þessum orðum – sem
síður en svo eru að heyrast í fyrsta
skipti – á hann við að virkja skuli
íslensk fallvötn og jarðhitasvæði
fyrir orkufreka framleiðslu. Það er
ansi algengt viðhorf, ekki einungis
á Íslandi heldur almennt innan
ríkjandi kerfis og menningar Vest-
urlanda.
Þó ég sé ósammála Jóni um að
fyrirbærin „þjóðir“ geti átt heild-
stæðra og sameiginlegra hagsmuna
að gæta, get ég ekki annað en bent
honum, sem og öðrum lesendum, á
nokkrar þjóðir eða þjóðarbrot sem
hafa haft efni á því að „nýta“ ekki
jarðargæðin í þeirri merkingu sem
Jón leggur í sögnina „að nýta“.
Þetta er Akuntsu-, Awá-, Ena-
wene Nawe-, Guarani-, Raposa-
Serra do Sol- og Yanomami-fólkið í
Brasilíu, auk indjána þar í landi
sem ekki hafa haft nein samskipti
við umheiminn. Einnig Arhuaco- og
Nukak-fólkið í Kólumbíu, Ayoero-
og Enxet-fólkið í Paragvæ, Wichí-
fólkið í Argentínu, Innu-fólkið í
Kanada, og indjánar frá Perú sem
hafa heldur ekki haft samskipti við
umheiminn.
Svo eru það búskmenn í Botsw-
ana, Ogiek-fólkið og Maasaiar í
Kenýa, frummenn
Omo-dalsins í Eþíópíu
og Pygmies-fólkið í
Mið-Afríku.
Að lokum er það svo
Batak- og Palawan-
fólkið á Filippseyjum,
Jummas-fólkið í
Bangladesh, Papuan-
þjóðflokkar Indónesíu,
Penan-fólkið í Malasíu,
Wanniyala-Aetto-fólkið
á Srí Lanka, Khanty-
fólkið í Rússlandi,
frumbyggjar Síberíu,
Jarawa og Dongria Kondh-fólkið á
Indlandi.
Í stað þess að „nýta“ jarð-
argæðin hefur þetta fólk lifað í
samhljómi við jörðina og býr það
flest við meiri raunveruleg lífsgæði
en gengur og gerist í heiminum.
En flestar þessar þjóðir eiga nú á
hættu að vera þurrkaðar út ásamt
lífsháttum sínum, menningu og
tungumáli, vegna kröfunnar um
framfarir. Vegna kröfunnar um
fulla nýtingu jarðargæðanna alls
staðar á plánetunni.
Nú er það þraut fyrir Jón, jafnt
sem aðra, að átta sig á tengslum
hættunnar á útrýmingu þessara
þjóða annars vegar og nýtingu ís-
lenskra jarðargæða hins vegar.
Þraut fyrir Jón
jafnt sem aðra
Eftir Snorra Pál
Jónsson
Úlfhildarson
Snorri Páll Jónsson
Úlfhildarson
»Ég get ekki annað en
bent á nokkrar þjóð-
ir eða þjóðarbrot sem
hafa haft efni á því að
„nýta“ ekki jarðargæð-
in.
Höfundur er listamaður.
ALLT frá þeim
tíma er þessi svína-
flensa byrjaði hafa
vaknað upp grun-
semdir hjá mönnum
þar sem einkaleyfið
fyrir bóluefninu var
veitt Baxter Int-
ernational árið 2007. Í
Austurríki komst
blaðakonan Jane
Bürgermeister að
því, að 72 kíló af vírus
höfðu verið flutt lifandi inn í bóluefn-
inu frá Baxter-bóluefnafyrirtækinu
og náð að smita almenning beint í
fjórum löndum Evrópu (theflu-
case.com). Nú eru menn að heyra
aðrar svipaðrar frásagnir sem dr.
Leonard G. Horowitz komst yfir, þar
sem Baxter-fyrirtækið kom einnig
við sögu í Mexíkó, þar sem bólusetn-
ing hófst í apríl eða áður en svína-
flensan byrjaði að ráði, þannig að fólk
smitaðist við bólusetningu (drlen-
horowitz.com). Í ágústmánuði
hringdi svo líffræðiprófessorinn Jo-
seph Moshe inn á útvarpsstöð í
Bandaríkjunum og talaði þá við dr.
True Ott í beinni útsendingu, og
sagði að Baxter- bóluefnafyrirtækið
ætlaði að breiða út farsótt í Úkraníu,
en bað síðan dr. True Ott að hafa
uppi á ríkissaksóknara fyrir sig. Dag-
inn eftir var prófessorinn hins vegar
handtekinn, en tveimur mánuðum
síðar breiddist þessi Baxter-veiki út
og bóluefni var keypt í stórum stíl.
Læknar í Úkraníu hafa síðan birt op-
ið bréf þar sem þeir ásaka stjórnvöld
um að hafa komið þessum vírus af
stað.
Svínaflensa
í ágóðaskyni?
Bóluefnafyrirtækin
hafa hagnast mikið þar
sem farsóttarstigið hjá
Alþjóðaheilbrigðisstofn-
uninni (AHS) var hækkað
upp í sjötta stig og þessir
menn eru á því að halda
þessu sjötta stigi áfram í
nokkur ár, svo að fyr-
irtækin haldi áfram að
hagnast og menn hjá
AHS geti haldið áfram að
fá meira en 6,3 milljónir
evra beint frá Glaxo Smith Kline
(GSK). Vitað er um menn eins og t.d.
dr. Neil Ferguson, prófessor Malik
Peiris og fleiri, sem allir hafa þegið
greiðslur frá GSK svo og frá öðrum
bóluefnafyrirtækjum. Þrátt fyrir að
margir liggi undir grun og upp hafi
komist um leynilega fundi á milli
AHS og bóluefnafyrirtækjanna, vilja
menn halda uppi hræðsluáróðri og
bólusetningu með bóluefni sem
sennilega mun ekki duga gegn stökk-
breyttri flensu. Síðan var því lekið út
á fréttavefnum Mail Online, að sótt-
varnalæknar í Bretlandi fengju 5,25
pund fyrir hverja bólusetningu. Ja-
cob Axel Nielsen heilbrigðisráðherra
Danmerkur hefur sagt að þetta mál
sé vandræðalegt, þar sem það sé
leyninefnd innan AHS sem ákveði
farsóttarstigið. Rússar, Pólverjar og
fleiri segja þetta sjötta farsóttarstig
ekki lengur í gildi og Rússar hafa auk
þess viljað slíta öllu samstarfi við
AHS vegna hneykslismála og tengsla
AHS við bóluefnafyrirtækin. Margar
þjóðir aðrar hafa undanfarið afpant-
að bóluefnið og lokað bólusetning-
arstöðum. Dr. Wolfgang Vordag,
sem á sæti í heilbrigðisnefnd Evr-
ópuþingsins og stóð fyrir því að AHS
yrði yfirheyrð, hefur sagt að þetta sé
„eitt stærsta hneyksli aldarinnar í
læknavísindum“ og fólk hafi þurft að
taka á sig óþarfa áhættu með
óreyndu bóluefni, þar sem svínaflen-
suvírusinn sé sársaukaminni en
venjuleg árstímabundin flensa. Á vef-
síðu sinni vill Wolfgang ekki sam-
þykkja að hið umdeilda skvalen (e.
squalene) sé skaðlaust, og hann seg-
ist ekki vita nægilega mikið um skva-
len, eða þetta óreynda bóluefni.
Bóluefnið farsóttin?
Allt að 10 rannsóknastofnanir í
heiminum, þar með talið Karolinska
stofnunin í Stokkhólmi, pólska
Vísindaakademían og Tulane-
læknaháskólinn í New Orleans, hafa
sýnt fram á að skvalen geti fram-
kallað liðagigt, sjálfnæmisröskun og
sjálfnæmissjúkdóma. Það er rétt hjá
Wolfgang að bóluefnið er ekki
öruggt, því í leiðbeiningum (Packet
insert) með bóluefninu segir, að það
uppfylli ekki alla staðla um öryggi,
hvað varðar barnshafandi konur,
börn og unglinga yngri en 18 ára og
síðan 60 ára og eldri. Þar sem ekki
eru til nein gögn („no data“) er segir
að öryggi þeirra sé tryggt. Lyfja-
stofnun Evrópusambandsins hefur
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
og bóluefnafyrirtækin
Eftir Þorstein
Sch. Thor-
steinsson
» Bóluefnafyrirtækin
hafa hagnast mikið
þar sem farsóttarstigið
hjá Alþjóðaheilbrigð-
isstofnuninni var hækk-
að upp í sjötta stig ...
Þorsteinn Sch. Thor-
steinsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni