Morgunblaðið - 06.03.2010, Síða 49
Dagbók 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVER ER
ÞETTA?
FRÚ FJÓLA ÚR
NÆSTA HÚSI
ÁHUGAVERÐUR
GARÐUR
JÁ, HÚN ER MEÐ
GRÆNA FINGUR
ÉG ÁTTI VIÐ
HÁSPENNU-
GIRÐINGUNA
Ó...
ÞAÐ
MAÐUR
VENST
SUÐINU
ÞÚ ERT MEÐ
FRÁHVARFS-
EINKENNI
ÞÚ EYÐIR ÖLLUM ÞÍNUM TÍMA
LIGGJANDI Á ÞAKINU... ÞÚ
HEFUR EKKERT ÞREK! STATTU
UPP! BROSTU! OPNAÐU AUGUN
OG SÝNDU SMÁ KRAFT!
EKKERT ER VERRA EN
KALDHÆÐINN HUNDUR
HVERNIG FÆRÐU
EIGINLEGA VIÐSKIPTI
HÉRNA ÚTI?
ÉG
AUGLÝSI
PYLSUR
ÉG SÉ ÞAÐ Á
FÖTUNUM ÞÍNUM
AÐ ÞÚ ERT KÚREKI
GULL-
FISKARNIR
MÍNIR HEITA
HANNAH OG
MONTANA
ÞAÐ ERU
ANSI FÍN
NÖFN,
ELSKAN
EN MUNDU AÐ
GULLFISKAR SEM
MAÐUR FÆR Í
TÍVOLÍINU LIFA OFT
EKKI MJÖG LENGI
ENGAR
ÁHYGGJUR! ÉG
ÆTLA AÐ PASSA
VEL UPP Á ÞÁ!
ÞÚ
ÁTT VIÐ
„HANN“
AAAHH!
MONTANA!
VORU MYNDIRNAR
Í LAGI?
JÁ. AF HVERJU
ÆTTU ÞÆR EKKI
AÐ VERA ÞAÐ?
ÚT AF
ENGU...
VERTU
SÆLL,
JAMESON.
LÁTTU
ÞÉR
BATNA
ÉG ÆTLA AÐ LÁTA MIG
HVERFA ÁÐUR EN HANN
ÁTTAR SIG Á ÞVÍ AÐ
ÉG SMITAÐI HANN
FYRIR
UTAN ÞAÐ AÐ
KONAN MÍN
TÓK ÞÆR
Pennavinir óskast
ÉG er 35 ára maður,
andlega fatlaður með
flogaveiki, ég er tón-
listarmaður og er að
læra á gítar í skóla
sem heitir Fjölmennt.
Ég á mér marg-
vísleg áhugamál svo
sem hestamennsku,
göngutúra, sund, keilu,
pool og að ferðast inn-
an- og utanlands. Ég
hef áhuga á dýrum, að
fara á ströndina, hef
gaman af að semja lög
og texta, fara á hest-
bak og fjölmargt fleira.
Ólafur Lárusson
Byggðarenda 6
108 Reykjavík
olibonus@live.com.
Svart seðlaveski
SVART seðlaveski með skilríkjum
tapaðist fyrir utan Smáralind, lík-
lega á stoppistöð fyrir framan versl-
unarmiðstöðina 2. mars sl. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 565-3199
eða 896-8619.
Spilavítin, nei
ÞAÐ er mikið talað um að koma
upp spilavítum, en ég spyr:
Er ekki nóg af þessum hörmung-
arspilabúllum um allt land?
Er ekki nóg að hafa svona spila-
horn um allt land til þess eins að
plokka peninga af
litlum launum öreiga
og ellilífeyrisþega?
Enginn er svo aura-
laus að hann
hangi ekki í þessum
botnlausu auragleyp-
um sem þessir kassar
eru. Þeir sem spila
vonast alltaf eftir
gróða. Kassinn gleypir
marga marga þús-
undkalla, en stundum
fær fíkillinn ekki neitt
til baka. Fái hann ein-
hverja summu til baka
er hann alsæll og sýnir
hvað hann vann mik-
inn pening. Ég veit að
Háskóli Íslands rekur þessa spila-
kassa ásamt öðrum, það mætti
styrkja hann öðruvísi. Allir þeir sem
eru með happdrættismiða hjá
Happdrætti Háskóla Íslands
styrkja þessa stofnun, það eru nú
margir sem þar eru styrktaraðilar
þar á meðal ég í háa herrans tíð.
Það er pínlegt að sjá fólk, sem
kemst varla á milli húsa hanga við
kassana í þeirri von að vinna nú
nokkra aura. Það sannast þar þetta
gamla máltæki: Margur verður af
aurum api.
Kristjana
Sigríður Vagnsdóttir.
Ást er…
… að vera orðlaus.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Magnús Skúlason sendirVísnahorninu bréf með vísu
um tafl, en nokkuð hefur verið
um slíkar vísur að undanförnu.
„Vísuna kenndi mér Ingvar Ás-
mundsson, skákmeistarinn snjalli
og skólameistari, sem nú er fall-
inn frá. Hann mun um skeið hafa
kennt við MR, hygg ég.
Kennarar tóku stundum „eina
bröndótta“ á kennarastofunni til
að slaka á að góðum sið. Eitt sinn
sátu yfir tafli þeir Sigurkarl Stef-
ánsson og kollega hans, Valde-
mar (Valdimar?), man því miður
ekki föðurnafnið.
Einhverjum varð á að ýja að
því við þá, hvort sigur í skák-
unum væri þeim ekki mikilvægur,
líklega fundist þeir fullfrið-
samlegir. Þeir kváðu svo ekki
vera!
Minnir þetta á söguna af því,
þegar rússneski stórmeistarinn
Boleslavskí kvað nei við, er hann
var eitt sinn inntur eftir því,
hvort hann tefldi ekki upp á vinn-
ing! Nei! Upp á jafntefli þá? Nei,
ekki heldur. Þó varla upp á tap!?
Nei, hann tefldi nefnilega til að
tefla! Nákvæmlega eins og Sig-
urkarl og Valdimar. Ingvar Ás-
mundsson sagði að nafni sinn,
Ingvar Brynjólfsson, þýskukenn-
ari, hefði þá kveðið stöku þessa,
sem mér finnst býsna skondin:
Situr að tafli seggur snjall,
sigurmarinn Valdikarl,
sigurorð af sér hann ber,
sama hvernig skákin fer.“
Að lokum segir Magnús að það
standi til að prenta kver með
kvæðum og lausavísum Ingvars
Brynjúlfssonar. Af þeim síð-
arnefndu virðist fáum hafa verið
haldið til haga og óskar hann eft-
ir ábendingum um slíkar vísur, en
póstfang hans er:
sisyfos31@gmail.com.
Guðmundur Torfason, prestur
Hruna, Torfastöðum og víðar, orti
á sínum tíma:
Heims þótt taflið hérvistar
hefti aflið snjóa
er það kafli eilífðar
undir skafli að gróa.
Svo er það vísa Þorsteins Magn-
ússonar Gilhaga:
Margan hendir manninn hér
meðan lífs er taflið þreytt
að hampa því sem ekkert er
og aldrei hefur verið neitt.
Þegar Jónas Jónasson Torfmýri
var að tapa skák orti hann:
Taflið búið bráðum er,
býsna þú ert klókur.
Burt er nú af borði hér
biskup, frú og hrókur.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Ingvari, skák og sigri
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.