SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Qupperneq 9
14. nóvember 2010 9
Bókanir í síma 420-8815 l sales@bluelagoon.is I www.bluelagoon.is
Jólahlaðborð LAVA í Bláa Lóninu
„all ir fá þá eit thvað fal legt“
Ómótstæðilegt jólahlaðborð
í einum glæsilegasta sal landsins
Helgarnar 26. & 27.nóvember, 3. & 4.desember
og 10. & 11.desember
Fordrykkur við komu í boði hússins og allir gestir
fá boðsmiða í Bláa Lónið
Sannkölluð tónlistarveisla verður í höndum þeirra Ara Braga
Kárasonar og Ómars Guðjónssonar og fá þeir til liðs við sig
úrval tónlistarmanna.
Verð 6500 krónur á mann
S
tjarna evrópopp-
söngkonunnar og rapp-
arans Leilu K skein
skært í upphafi tíunda
áratugarins en hennar er áreið-
anlega hvað mest minnst fyrir
lagið „Open Sesame“, sem var
einn mesti smellur ársins 1993 í
Evrópu.
Ættuð frá Marokkó
Leila K fæddist Laila El Khalifi
hinn 6. september árið 1971 í
Gautaborg í Svíþjóð en hún á
ættir að rekja til Marokkós. For-
eldrar hennar sendu hana í skóla
í Marokkó en hún passaði ekki
inn þar og sneri aftur til Svíþjóð-
ar eftir ársdvöl.
Þótt „Open Sesame“ sé stærsti
smellur hennar, lagið var mjög
vinsælt hérlendis og náði til
dæmis 23. sæti vinsældalista í
Bretlandi og 5. sæti í Þýskalandi,
var hann ekki sá fyrsti. Hún var
uppgötvuð af tvíeykinu Rob’n-
’Raz og náði hátt á lista með lag-
inu „Got to Get“ árið 1989. Stíll
Leilu K átti vel upp á pallborðið
og átti hún marga evrópopp-
smelli. Hún sleit tengslunum við
Rob’n’Raz og fór til diskóeyj-
unnar miklu Ibiza þar sem hún
sló rækilega í gegn á dansklúbb-
unum.
Smellur með Dr. Alban
Þess má líka geta að hún átti
ennfremur smell með annarri
stórstjörnu tíunda áratugarins,
Dr. Alban, en sá er líka sænskur.
Lagið sem þau sungu saman bar
nafnið „Hello Afrika“ og náði
sjöunda sæti vinsældalista í Sví-
þjóð. Dr. Alban þessi er fræg-
astur fyrir stórsmellinn „It’s My
Life“.
Efir stutt hlé kom Leila K aftur
fram á sjónarsviðið en hún sendi
árið 1995 frá sér smáskífuna
„Electric“, sem naut nokkurra
vinsælda. Hún gaf út tónlist allt
til ársins 1997 en síðan þá hefur
ekkert nýtt efni komið frá henni.
Hún hefur átt fjölda smella í
heimalandinu og er of langt mál
að telja þá alla upp hér. Þótt hún
líti út fyrir að vera einhvers kon-
ar „eins-smells-undur“ hér á
landi var hún mikil stjarna í Sví-
þjóð og var löndum hennar því
mjög brugðið þegar fréttist af
henni peningalausri og heim-
ilislausri. Sænska sjónvarpið SVT
gerði heimildarmynd um Leilu K
árið 1998 sem tók að einhverju
leyti á þessu. Myndin bar titilinn
Fuck You, Fuck You Very Much.
Heimilislaus, í vímuefnaneyslu
og stal sér til matar
Eftir þetta hallaði þó enn frekar
undan fæti hjá söngkonunni.
Hún var í vímuefnaneyslu, bjó á
götunni og þurfti að stela sér til
matar. Ekki hefur bætt úr skák
að það slitnaði upp úr tengslum
hennar við fjölskylduna, sem gat
aldrei sætt sig við tónlistarferil
hennar. Árið 2003 kom síðan út
safnplata með helstu smellum
hennar og átti útgáfan að bæta
fjárhag hennar og stöðu. Það
gekk ekki eftir en ári síðar eyddi
hún þremur mánuðum í fangelsi.
Stutt endurkoma árið 2007
Hún steig óvænt á svið í veislu á
vegum bloggsins
Bögjävlar hinn
15. júní árið 2007
og tók gamla
smellinn „Elect-
ric“ auk lagsins
„Ça Plane Pour Moi“. Aðstand-
endur bloggsins stóðu fyrir tón-
listaruppákomu og höfðu marg-
oft skrifað að þeir vildu fá Leilu
K til að koma fram en það náðist
ekki í söngkonuna enda hún
ekki skráð til heimilis neins
staðar. Þakið ætlaði því að rifna
af húsinu þegar hún steig á svið.
Eftir þessa óvæntu uppákomu
fer ekki mörgum sögum af þess-
ari djúprödduðu söngkonu. Hún
virðist þó vera í sömu vandræð-
unum og áður en hún náðist við
þjófnað úr matvörubúð í Stokk-
hólmi snemma árs í fyrra. Verð-
mæti vörunnar sem hún stal
nam 67 sænskum krónum sem
eru um 1.100 íslenskar krónur.
ingarun@mbl.is
… Leilu K
Nýleg mynd af söngkonunni. Plakatið fyrir heimildarmyndina.
Hvað varð um …