SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Side 16
16 14. nóvember 2010
B
láfjallasvæðið var opnað al-
menningi á fimmtudaginn en
áður hafði svæðið verið opið tvö
kvöld fyrir æfingafólk.
Magnús Árnason, framkvæmdastjóri
Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir
helgina líta vel út fyrir skíðafólk. Spáin
eftir helgi er ekki eins góð en veturinn
byrjar töluvert betur en í fyrra, sem var sá
versti í sögunni þegar aðeins var opið í
fimm daga í Bláfjöllum.
Magnús vildi geta framleitt snjó og segir
að þannig væri á meðalári hægt að opna
snemma í desember. „Við myndum leggja
okkur fram við að halda opnu yfir jólin og
milli jóla og nýárs. Svo myndum við stytta
hlákutímabil, sem koma alltaf á hverjum
vetri, í báða enda. Að lokum gætum við
tryggt að það væri nægur snjór um páska.
Þetta eru mikilvægustu póstarnir fyrir
okkur,“ segir Magnús.
„Ef svona stöðugleiki næðist værum við
komin í alvörurekstur. Við erum ekki að
fara að borga með þessu,“ segir hann og
bendir á betri nýtingu fasteigna og tækja.
„Við næðum jafnari dreifingu á fólki yfir
veturinn. Núna á fólk það til að flykkjast
upp í fjöll á góðum helgum þegar við erum
nýbúin að opna því það veit ekki hvenær
snjórinn fer aftur. Þá erum við að tala um
10.000 manns í fjallinu og þá eru langar
raðir og öll bílastæði full,“ segir hann og
ítrekar að dreifingin yrði ekki aðeins betri
með snjóframleiðslu heldur mætti búast
við fleiri gestum í heildina.
Hann segir vetrarkortasölu hafa byrjað
vel og er bjartsýnn á veturinn. „Það þýðir
ekkert annað.“
Vaskur kappi í byrjendalyftunni með Bláfjallaskála í baksýn.
Skíða/brettabogi er nauðsynlegur búnaður fyrir þá sem stunda íþróttina af kappi.
Ein spennt að mæta á langþráða æfingu.
Æfingin skapar meistarann. Vösk stúlka fær aðstoð í byrjendalyftunni.
Snjóbrettakappar með aðalsvæðið, Kóngsgil og Norðurle
Skíðaskemmtun
Hvort góður skíðavetur sé framundan skal látið
ósagt en skíðahelgin lítur allavega vel út. Blá-
fjallasvæðið var opnað á fimmtudaginn og iðar
strax af lífi.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is
Bak við tjöldin