SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Blaðsíða 34
34 14. nóvember 2010
Drekahellir í Vatnajökli
Hafdís Ósk Sigurðardóttir
Drekahellir í Vatnajökli er vel
skrifuð saga og spennandi og
ætti að hæfa vel börnum á
aldrinum 6-12 ára sem hafa
gaman af drekum, hestum og
ævintýrum. Bókin fær
ímyndunaraflið til að fara á flug og áður en
lesandinn veit af fylgir hann Gunnari og
Krissa eftir í ævintýraförinni jafnspenntur og
þeir.
Ingveldur Geirsdóttir
Upp í sveit
Halldór Á. Elvarsson
[Bó]kin [er] mjög heillandi, hún
er skemmtilega sett upp,
textinn er stuttur, myndirnar
einfaldar og litríkar auk þess
sem bókin er mjög fræðandi
fyrir ung börn.
Þessi bók er þarfaþing í íslenska
barnabókaflóru og gefur innsýn í sveitalífið
eins og það er í dag.
Ingveldur Geirsdóttir
Á slóð sjóræningja
Þorlákur Már Árnason
Lilli er skemmtilegur og
kraftmikill strákur. Sagan er
létt og leikandi skrifuð en
flakkar á milli fyrstu og þriðju
persónu frásagnar sem getur
verið dálítið ruglandi. Gunnar
Júlíusson myndskreytir bókina og eru myndir
hans skýrar og fínar og eiga vel við söguna.
Börn á aldrinum 5 til 10 ára ættu að hafa
gaman af ævintýrum Lilla og ekki skemmir
fyrir að þau eru rammíslensk.
Ingveldur Geirsdóttir
Tumi þumall
Claudia Venturini myndskreytti
Ævintýrið um Tuma þumal
er fyrir löngu orðið klassískt
og hér er það í styttri útgáfu
og myndskreyttri.
Útdrátturinn úr uppruna-
legu sögunni er vel unninn
ogmyndskreytingarnar flottar og litríkar. Bókin
er með flettimyndum og gaman er að þær eru
ekki aðeins til að kíkja á bak við eða ofan í
eitthvað heldur sýna þær líka hreyfingu.
Ingveldur Geirsdóttir
Skrímsli á toppnum
Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettler, Rakel
Helmsdal (Mál og menning)
Litla skrímslið og stóra skrímslið
eru svo óendanlega krúttleg og
saklaus að það er ekki annað
hægt en að þykja vænt um þau
og ekki dregur þessi bók úr
þeirri væntumþykju. Þetta er
frábær bók.
Sögurnar um litla og stóra skrímslið
eru orðnar sex og ég hlakka til að sjá
fleiri bætast í hópinn. Skrímslin eru svo
sannarlega á toppnum.
Ingveldur Geirsdóttir
Breki og Dreki í leikskóla
Aino Havukainen og Sami Toivonen
Breki og Dreki eru
stórskemmtilegar persónur
sem lífga aldeilis upp á lífið í
leikskólanum Koppi. Sagan er
mjög skemmtileg og
teikningarnar eru frábærar;
litríkar og það er mikið um að vera á hverri
opnu. Hverja mynd er hægt að skoða
endalaust því mikið er af skemmtilegum
smáatriðum sem fengu mig til að skella upp
úr.
Ingveldur Geirsdóttir
Forngripasafnið
Sigrúnu Eldjárn
Óttinn við hið nýja og óþekkta;
nýtt heimili, nýjan heimabæ
og nýtt fólk, er hér til staðar,
eitthvað sem börn ættu að
geta tengt við, og dularfullir
atburðir og draugagangur er
eitthvað sem ungir lesendur hljóta að kunna
að meta og ættu að geta lifað sig inn í.
Helgi Snær Sigurðsson
Ertu Guð, afi?
Þorgrímur Þráinsson
Ertu Guð, afi? er falleg saga,
innihaldsrík, afskaplega vönduð
og sögð á leikandi léttan hátt.
Þetta er bók sem ætti að höfða
bæði til barna sem fullorðinna
enda full af fallegum boðskap
sem á erindi til allra.
Ingveldur Geirsdóttir
Árstíðirnar
Þórarinn Eldjárn og Sigrún Eldjárn (Vaka-
Helgafell)
Í þetta sinn eru það árstíðirnar
sem eru teknar til umfjöllunar.
Þarna koma fyrir
árstíðabundnir gjörningar;
sláturgerð, rigningar og
farfuglar á haustin, ísát, ferðalög og
skriðkvikindi á sumrin, jólin og myrkrið á
veturna og leysingar og kríukoma á vori. Allt
er þetta snilldarlega framsett í bundnu máli
Þórarins, sem hefur þetta feiknagóða vald á
íslenskri tungu. Í mestu uppáhaldi hjá mér
voru ljóðin um hann Sumarliða sem
hræddist skordýr, vangavelturnar um
farfuglana, Villa sem tók slátur, blóðugur
uppfyrir haus, og draugana sem vældu eftir
Grýlu.
Jafnt ungir sem aldnir skemmta sér við
lestur bókarinnar; það verður ekki á betra
kosið.
Birta Björnsdóttir
Sögur og leikir úr Latabæ
Bókin er litrík og mikið um að
vera á hverri blaðsíðu, í anda
sjónvarpsþáttanna, hún mun
ekki valda
Latabæjaraðdáendum
vonbrigðum.
Ingveldur Geirsdóttir
Barnabækur
Þ
egar Sóllilja, rótlaus Reykjavíkurmær
sem býr í kjallaranum hjá ömmu sinni,
finnur af tilviljun mynd falda á bak við
trúlofunarmyndina af afa og ömmu
koma brestir í skorður hversdagsins. Smám saman
fá bernskuminningar nýja merkingu og raddir
fortíðar annan blæ. Það reynast fleiri kunna að
ljúga en Sóllilja.
Þannig liggur landið í fyrstu skáldsögu Hug-
rúnar Hrannar Kristjánsdóttur, Stolnum röddum,
sem komin er út hjá Máli & menningu.
Í samtali við Sunnudagsmoggann segir Hugrún
að öðrum þræði sé þetta saga ömmu Sóllilju og afa
en annars er hún ófáanleg til að gefa meira upp um
söguþráðinn. „Fólk verður bara að lesa bókina,“
segir hún og hlær stríðnislega.
Að sögn Hugrúnar er hér um tæran skáldskap að
ræða, sagan á sér enga stoð í veruleikanum. Nema
ef vera skyldi að því leyti að það eru leyndarmál í
öllum fjölskyldum, eins og hún bendir réttilega á.
Hugrún Hrönn er íslenskufræðingur að mennt
og hefur meðal annars starfað við kynningarmál
og vefstjórn. Hún kveðst lengi hafa haft áform um
að skrifa bók en ekki endilega þessa bók. Stolnar
raddir hefur hún glímt við með hléum í þrjú til
fjögur ár með annarri vinnu. „Eigum við ekki að
segja að ég hafi unnið markvisst í þessari sögu síð-
ustu tvö árin eða svo,“ segir Hugrún og upplýsir
að hún sé þegar byrjuð á næstu bók. „Þetta er
mjög spennandi, nýr starfsferill að verða til.“
Hugrún kveðst þegar hafa fengið jákvæð við-
brögð frá fólki sem hefur lesið bókina. „Ég er mjög
ánægð með þessa bók og kvíði í raun ekki við-
tökum. Bókin er bara þarna úti og vonandi hafa
sem flestir skoðun á henni. Ég er staðráðin í að
njóta augnabliksins.“
Aldrei hafa komið út fleiri bækur á Íslandi en
fyrir þessi jól en Hugrún hefur eigi að síður engar
áhyggjur af samkeppninni. „Það þýðir ekkert að
hugsa þannig. Það er pláss fyrir marga ólíka höf-
unda á markaðnum.“
Spurð hvaðan þessi ritgleði hjá þjóðinni komi
rekur Hugrúnu í vörðurnar. „Ég hreinlega veit
það ekki. Ætli það sé ekki hefðin. Bókaþjóðin er
greinilega ekki af baki dottin.“
Sjálf kveðst hún lesa mikið – allskonar bækur.
„Ég hef mjög gaman af að lesa og ég held að það
eigi við um Íslendinga almennt. Þeir skrifa alla
vega bækur. Kannski finnst þeim það skemmti-
legra en að lesa þær,“ segir hún og hlær dátt.
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir segir pláss fyrir marga ólíka höfunda á markaðnum.
Brestir í skorður
hversdagsins
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir íslenskufræðingur hefur
sent frá sér sína fyrstu skáldsögu, Stolnar raddir.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Í Snjóblindu eftir Ragnar Jónsson
segir frá ungum lörgreglumanni
sem leysir glæpamál á Siglufirði.
Spurt er: Þar sem bókin endar er
ljóst að ekki eru öll kurl komin til
grafar; ertu með framhald í huga?
„Þrátt fyrir að ráðgátan, eða öllu
heldur ráðgáturnar, í Snjóblindu
leysist í lok bókarinnar þá felur sag-
an vissulega í sér möguleika á að halda áfram að
segja lesendum frá aðalpersónunni, lögreglumann-
inum Ara á Siglufirði, sem lendir í vandræðum með að
fóta sig á þessum nýja og framandi stað, bæði í
vinnunni og einkalífinu.
Ég er nú farinn að leggja drög að sjálfstæðu fram-
haldi og geri ráð fyrir að sú saga snúist að hluta til um
rannsókn á óhugnanlegu morðmáli sem teygir anga
sína víða, meðal annars til Siglufjarðar. Ari fær hins
vegar óvænta samkeppni við rannsóknina að sunnan,
en sennilega er best að segja ekki meira um það að
sinni.“
Ragnar Jónsson
Framhald framundan
Sigríður Pétursdóttir, rithöfundur
og umsjónarmaður útvarpsþátt-
arins Kviku á Rás 1, sendir frá sér
smásagnasafnið Geislaþræði þar
sem sögurnar fjórar eru sagðar í
gegnum tölvupósta (ein er í tveim-
ur hlutum). Uppheimar gefa bók-
ina út.
Spurt er: Ertu ekkert orðin leið á
að skrifa tölvupósta?
„Nei, ég fæ aldrei leiða á að svara tölvupóstum!
:-)
Skemmtanagildið fer þó mikið eftir því hverjum ég
er að svara. Bréfin sem fóru milli mín og eiginmanns-
ins í tilhugalífinu fyrir tæpum áratug veittu taum-
lausa gleði og útrás. Svo er alltaf gaman að skrifast
á við pennavini erlendis og hlustendur Kviku.
Ekki eins gaman að svara fyrirspurnum frá fjár-
málafyrirtækjum eða hafna fólki sem biður um eitt-
hvað.“
Sigríður Pétursdóttir
Aldrei leið á
tölvupóstum
Jólabækurnar
ÚRVAL ÚR LJÓÐUM
HÁKONAR AÐALSTEINSSONAR
Fjallaþytur hefur að
geyma úrval ljóða hins
dáða hagyrðings
Hákonar Aðalsteinssonar.
Þessa bók lætur enginn
ljóðaunnandi fram hjá
sér fara.
Hér tekur hver
ljóðaperlan við af annarri.
holar@holabok.is