SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Page 41
14. nóvember 2010 41
S
agan hefst á millistríðsárunum;
þetta er ættarsaga manns sem
lendir alveg óvart í því að
eignast stærsta banka lítillar
þjóðar og ansi margt fleira,“ segir
Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi,
upplýsingafulltrúi í sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu og fyrrver-
andi alþingismaður; höfundur bók-
arinnar Sigurðar saga fóts, sem nýlega
er komin út.
Umfjöllunarefnið er Íslendingum
ekki með öllu ókunnugt.
„Hún er skrifuð að því leyti til að
fyrirmynd riddarasagna að þær urðu til
þegar norrænir rithöfundar, norskir og
íslenskir, við hirð Hákonar gamla
snéru frönskum trúbadoratextum og
misskildu; sjálfur tók ég texta frá okk-
ar ástsæla Megasi og gat í eyðurnar
hvernig saga hans í laginu Furstinn
passaði inn í það sem hér hefur gengið
á.“
Bjarna langaði að velta því fyrir sér
með ýmsum hætti hvernig gullið –
peningarnir – ná að brjóta ansi margt
niður, „án þess þó að taka það allt of
alvarlega, enda er bókin skrifuð í
þannig stíl að menn eiga að geta haft
gaman af; þetta á ekki að vera neinn
harmagrátur.“
Það er drifkraftur peninganna sem
drífur söguna áfram. „Margt af því sem
Sigurður fótur segir finnst mér ég ekki
hafa lagt honum í munn; hann sagði
það bara. Hans heilbrigðasta samband
er við móður sína og á einum stað seg-
ir hann við hana að þrátt fyrir alla
þessa peninga stjórni hann ekki þeim
heldur stjórni peningarnir honum.
Þannig vill það nú vera.“
Höfundurinn segir alls ekki ætlunina
með bókinni að finna sökudólga.
Sterkar tilvísanir séu vissulega til at-
burða liðanna ára „en ég er ekki að
skrifa um neinn ákveðinn; reyni að
blanda aðalpersónunum í íslensku
stjórnmála- og viðskiptalífi þannig
saman að hver persóna í sögunni sé
mátulega mikið mitt á milli manna,
þannig að engin ein ákveðin fyrirmynd
sé að hverjum og einum.“
Spurður um það hvers vegna hann
ákvað að skrifa bókina, segir Bjarni:
„Sagan leitaði á mig því mér hefur
fundist umræðan um það sem hér hef-
ur gerst einkennast allt of mikið af til-
finningum sem þjóðin ráði ekki al-
mennilega við og ég held að hlutina
þurfi að sjá í svolítið léttara samhengi
en hefur verið gert.“
Hann bætir því við að spennandi hafi
verið að nota rokklag sem drifkraft við
söguritun. „Ég strandaði æði oft við
það hvað ég ætti að skrifa næst en
komst alltaf að því við að hlusta á
Megas. En ég var auðvitað orðinn
hundleiður á laginu vegna þess að ég
hlustaði æði oft á það!“
Hugmyndin að bókinni kviknaði fyr-
ir rúmu ári. „Ég raðaði henni saman í
hausnum á mér á meðan ég stóð vakt-
ina í búðinni í jólatraffíkinni síðast og
handskrifaði síðan uppkast að bókinni
þegar fór í frí til Eþíópíu eftir jól.“
Fólk hefur velt fyrir sér, eðlilega,
segir Bjarni, hvers vegna hann talar
um Sigurðar sögu fóts, en ekki fótar.
„Nafnið sæki ég í riddarasögu sem
talin er frumskrifuð hér á landi á 15.
öld, og nota minni úr henni. Glöggir
menn í beygingum taka eftir því að
þetta er ekki kórrétt miðað við það
sem kennt er í skólum í dag en hvað
sem því líður held ég að þessi beyging
hafi lifað allt frá 15. öld í talmáli. Mér
finnst þetta þjálli beyging og skemmti-
legri.“
Á ekki að vera
harmagrátur
Bjarni Harðarson veltir gulli fyrir sér í Sigurðar sögu Fóts.
Morgunblaðið/Eggert
Í Sigurðar sögu Fóts veltir Bjarni Harðarson því
sér með ýmsum hætti hvernig gullið – pening-
arnir – ná að brjóta ansi margt niður, án þess þó
að taka það allt of alvarlega, enda segir hann
bókina ekki eiga að vera einhver harmagrátur.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
KONAN SEM FÉKK
SPJÓT Í HÖFUÐIÐ
Kristín Loftsdóttir
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
FJÖLMENNING OG
SKÓLASTARF
Ritstjórar Hanna Ragnars-
dóttir og Elsa S. Jónsdóttir
GRIPLA XX
Stofnun Árna
Magnússonar
EILÍFÐARVÉLIN
Ritstjóri Kolbeinn Stefánsson
ÖRYGGISHANDBÓK
RANNSÓKNA-
STOFUNNAR
Sveinbjörn Gizurarson
EFTA 1960-2010
Kåre Bryn &
Gumundur Einarsson ritstj.
MILLI MÁLA
Ársrit Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur
ALMANAK HÍ 2011
Þorsteinn Sæmundsson
Gunnlaugur Björnsson ritstj.
ALLT Í ÖLLU
Hlutverk fræðslustjóra 1975-1996
Börkur Hansen og Ólafur H.
Jóhannsson
SKÁLDUÐ SKINN
Sveinn Eggertsson
Væntanleg
LJÓÐMÆLI 4
Hallgrímur Pétursson
Nokkur ný og fróðleg rit