SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Qupperneq 50

SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Qupperneq 50
50 14. nóvember 2010 Á miðvikudaginn kemur verður opnuð í Listasafni Íslands yf- irlitssýning á verkum Karls Kvaran myndlistarmanns (1924-1989). Nær aldarfjórðungur er síðan síðast var efnt til yfirlitssýningar á verkum Karls en það var árið 1986, þremur árum áður en hann lést. Sýningin er sett upp í tveimur sölum safnsins og á henni verða alls 84 verk; 53 olíumálverk auk teikninga, gvassmynda og samklippa. Sýningarstjóri er Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur sem er búsett í París. Hún starfar þar sem sýningarstjóri, greina- höfundur og forstöðumaður Maison Lou- is Carré. Ásdís er jafnframt ritstjóri tíma- ritsins ARTnord sem fjallar um norræna samtímalist. „Karl Kvaran var óhemju afkasta- mikill listamaður,“ segir Ásdís þegar hún fræðir blaðamann um sýninguna og þær áherslur sem hún leggur við uppsetningu verkanna. „Hann málaði á hverjum degi, frá morgni til kvölds, alla daga ársins nema föstudaginn langa og jóladag, sagði Elísabet dóttir hans mér. Það liggur því mikið eftir Karl þótt hann hafi dáið frekar ungur, 64 ára gamall,“ segir hún. Listasafn Íslands hefur látið gera skrá yfir verk Karls Kvaran og eru í henni yfir 500 verk, sem eru ýmist í opinberri eigu, í ýmsum stofnunum, fyrirtækjum og í einkaeigu. Ásdís segir þessa skrá hafa hjálpað sér mikið við vinnuna en sýn- ingin verður sett upp í tveimur sölum á neðri hæð safnsins. „Það var vandasamt að velja úr þess- um 500 verkum,“ segir hún. „Það er áberandi hvernig Karl vann alltaf í syrp- um. Hann tók fyrir ákveðin mótíf og vann þau til þrautar. Var jafnvel að vinna með sama mótífið, sömu hugmyndina, í mörg ár. Það er mjög athyglisvert hvað hann var einbeittur í nálgun sinni alla tíð.“ Kröfuharður listamaður „Karl var mjög kröfuharður hvað út- komu verkanna varðaði og vann sum verk upp aftur og aftur. Í mörgum má greina mörg lög, það glittir í liti og línur sem hann hefur málað yfir. Sum verkin var hann að mála í mörg ár. Hann vann venjulega að mörgum á sama tíma en hætti ekki fyrr en hvert verk var örugg- lega tilbúið, enda er útkoman venjulega afskaplega sterk,“ segir hún. Ásdís tók þá ákvörðun að byggja sýn- inguna í kringum helstu syrpurnar sem Karl vann að á ferlinum. „Í minni salnum stefni ég saman verk- um frá ólíkum tímum en þau hverfast kringum ákveðin þemu. Eitt þemað nefni ég „Sitjandi veru“. Karl byrjaði að vinna út frá því á fimmta áratugnum, elsta verkið er frá 1947, en fram á miðjan átt- unda áratuginn er hann að fást við þetta viðfangsefni. Önnur sería eru húsform. Þegar hann byrjaði að mála á unglingsaldri, þá heill- aðist hann mjög af húsaþyrpingum á Grímsstaðaholtinu og í Skerjafirði, þar sem hann ólst upp. Það er athyglisvert að sjá að um miðjan níunda áratuginn er hann ennþá að mála húsform. Þannig ganga þessi minni í gegn hjá honum á löngum tíma og hann grípur annað slagið í þau. Í minni salnum eru líka geómetrísk flatarmálverk. Það var um 1952 sem Karl tók til við abstraktið, eins og margir aðrir á þeim tíma. Hann tileinkaði sér þetta form strax og vann með það á persónu- legan hátt. Karl var mikill meistari í lit. Við þessi geómetrísku verk tengi ég svo verk með krossformum sem hann gerði seinna á ævinni, upp úr 1983. Þannig reyni ég að gefa fólki innsýn í vinnubrögð Karls,“ segir Ásdís. Lagði áherslu á teiknikunnáttu Í stóra salnum segir hún að hægt sé að láta stór og fín olímálverk hans njóta sín. Þar eru líka sýndar teikningar og gvass- myndir, minni og nánari verk, í eins- konar minni sal sem er byggður inn í stóra salinn. „Á árabilinu 1956 til 1973 vann Karl einkum í gvass og þá komu fram mótíf sem hann átti eftir að nota áfram í olíu- Djúpstæð list og heillandi „Það var vandasamt að velja,“ segir Ásdís Ólafsdóttir sýningarstjóri sem hefur valið 84 verk á yfirlitssýningu á verkum Karls Kvarans sem opnuð verður í Listasafni Íslands á mið- vikudaginn kemur. Ásdís segir Karl hafa verið tímalausan í listinni. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is N ú nýverið gerði ég mér daga- mun og fór í réttir. Slíkt er ár- leg skemmtun mín og vekur einlægt upp ljúfar minningar frá þeim tíma er ég var ungur drengur í sveit austur í Fljótshlíð. Réttardagar voru þá sem nú hátíðir. Þegar féð var rekið í réttina fengum við, sem töldumst liðlétt- ingar, gjarna það hlutverk að „standa fyrir“ sem kallað var. Það embætti fól í sér að gæta þess að féð rynni sína réttu og beinu leið inn í almenninginn. Það vildi þó brenna við að féð tæki til sinna ráða, tvístraðist í allar áttir eða sneri jafnvel við og stefndi í fang þeirra sem ráku. Þá kom til kasta þeirra sem sáu um „fyrirstöð- una“. Það var því ábyrgðarstaða að „standa fyrir“. Ég minnist þess að það gat verið ansi ógnvekjandi fyrir stráka, sem vart stóðu út úr hnefa, að sjá skyndilega koma á móti sér breiðfylkingu fjár sem engu hlýddi en fór bara sínu fram. Þá gat verið gott að vera frár á fæti er und- ankomu var leitað. Nú sá ég þetta gerast í Þingvallarétt- inni. Féð var rekið í átt að réttinni en sá skyndilega að sér er við blasti frels- issviptingin og sneri við. Nokkrir að- komustrákar, sem hafði verið falið að „standa fyrir“, sáu hvað verða vildi og þéttu raðir sínar með köllum og hrópum og miklum handasveiflum. Einn þeirra sá að fylkingin var að rofna og hrópaði til félaga síns: „NONNI, ÞÚ FERÐ Í VÖRN- INA ÞARNA.“ Knattspyrnan sem sé komin í réttirnar. Nonni skildi samstundis hvað um var að ræða og hljóp til – en það misheppnaðist rétt eins og í gamla daga. Varnarlínur hrundu og féð hljóp út um víðan völl, allt inn fyrir vítateig. Engin ærin skoraði þó mark! Svona breytist tungumálið og þróast. En förum í aðra sálma. Árum saman hef ég þurft að lesa um það í blöðum og heyrt í ljósvökum að eitthvað skuli lögleitt sem alls enginn hefur í huga að lögleiða. Nú um stundir er til dæmis mikið ritað um það hvort beri að lögleiða neyslu hass og eða marijúana. Slíkur fréttaflutningur hlýtur að vekja ugg í brjósti þeirra mörgu manna og kvenna sem hafa engan áhuga að njóta þessara nautna. Lögleiðing felur nefnilega í sér lagasetningu; fólk skuli hvort sem því er ljúft eða leitt neyta þessara fíkniefna, ella bíði þess þungir dómar. Þetta er eitt dæmi þess að fólki hættir til að rita og tala án þess að huga að merkingum orðanna. Hér er af miklu efni að taka. Ég get til dæmis sagt frá því að einn félagi minn, stæltur göngugarpur, greindi mér frá því að hann labbaði gjarna upp á Esju, jafnvel vikulega. Þetta leiðir auðvitað hugann að merkingu sagnarinnar að labba. Ég get vel hugsað mér að labba niður eða upp Laugaveginn í góðu veðri enda lít ég svo á að sögnin að labba taki til sömu iðju og rölta, eða ganga í hægðum sínum. Labb upp á snarbrött, himinhá fjöll stangast því verulega á við máltilfinningu mína. Kannski á maður eftir að sjá á prenti að Edmund Hillary hafi labbað upp á Eve- restfjall. Sögnin að munda kemur mér einnig í hug. Ég minnist þeirrar myndrænu íþróttafréttar þar sem frá því var greint að ein ágæt knattspyrnukona úr Breiða- bliki hefði mundað hægri fót sinn og skotið. Sögnin að munda er dregin af nafnorðinu mund sem merkir hönd. Fólk getur því mundað vopn og ýmis önnur áhöld. Af fréttinni að dæma greip knatt- spyrnustúlkan fót sinn, líklega báðum höndum, og reiddi hann til sparks. Enn dæmi þess að ekki er gætt að merkingu orða. Nú er runninn upp sá tími er skotglaðir veiðimenn halda til heiða. Margir þeirra eru vanbúnir og vita kannski ekki alveg hvar þeim er ætlað að stunda skotveið- ina. Frétt í blaði orðaði vandann svo: „Að sögn Theodórs hefur mikið þurft að svara fyrir hvar menn megi skjóta.“ Svo mörg voru þau orð. Til er orðasambandið að svara fyrir sig. Það gerir maður gjarna þegar maður verst ásökunum. Hins vegar er alveg ómögulegt að svara fyrir hvar menn megi skjóta fugla. Þessi dæmi sýna svo ekki er um villst að nauðsynlegt er að huga að merkingum orðanna áður en þau eru sögð. Meira að segja er stundum gott að gæta að frum- merkingu orða eins og dæmið um mund sýndi. Kindur í knattspyrnu ’ Þessi dæmi sýna svo ekki er um villst að nauðsynlegt er að huga að merkingum orðanna áður en þau eru sögð. Meira að segja er stundum gott að gæta að frummerkingu orða. Málið El ín Es th er Tala minna, verjast meira!Þetta er sko í síðasta sinn sem ég fer í réttir! Tungutak Þórður Helgason thhelga@hi.is Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.