SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Page 55

SunnudagsMogginn - 14.11.2010, Page 55
14. nóvember 2010 55 Þ að koma fjórar bækur frá mér fyrir jólin,“ segir Hugleikur Dagsson og hallar sér aftur í hæg- indastól á Kaffi Rósenberg – að loknu góðu ársverki. „Popular Hits kom út í vor. Þá tek ég fyrir lagaheiti erlendra dægurlaga og sný út úr þeim. Ég verð einnig með sjálfstætt framhald af Íslenskum dægurlögum. Bubbi Morthens skrifar formálann, síðast var það Valgeir Guðjónsson. Ef til er efniviður í þriðju bókina mun ég reyna að fá Pál Óskar. Ég segi þetta, því síðast þegar ég sagði í viðtali að ég væri til í að fá Bubba sem formála- skrifara hafði hann samband og sagði: „Hvað segirðu, á ég að skrifa formála?“ Þannig að ég legg hér með inn umsókn. Svo var Garðarshólmi að fara í prentsmiðju, sem birtist í símaskránni 2008 og 2009.“ – Þú ert ekkert umdeildur! „Nei, ég er ekkert umdeildur, ég meina, úff …“ Hann grettir sig. „Á ég að fara að snerta á þessu máli? Ég var með heitar skoðanir á því, en sveiflaðist yfir í að vera alveg drullu- sama. Ég held að allir á Íslandi hafi fengið ógeð á sama degi, það var á miðvikudegi, eftir að þetta hafði verið í umræðunni í tvær vikur. Þá var hætt að tala um þetta á Facebook og í næsta partíi var allt í einu sagt: „Neibb, ég ætla ekki að tala um næstu símaskrá.“ Hann yppir öxlum. „Ég er ekkert umdeildur. Ætli það sé ekki af því að fólk fattar brandarana mína.“ – Hefurðu ákveðnar skoðanir á Gillzenegger? „Hann var mikið í umræðunni þegar hann kom fyrst fram. Ég lét hann fara í taugarnar á mér, fannst stælarnir pirrandi, en aðallega leiðinlegt að hann kallaði okkur trefla! Tvíhöfði hafði skipt mannkyninu í hnakka og úlpur og mér fannst það ganga betur upp – ég geng aldr- ei með trefil, heldur í úlpu. Ef eitthvað er, þá eru hnakk- ar frekar með trefla en treflar. Ég ákvað því að semja Eineygða köttinn kisa og hnakkana. Aðalhnakkinn var Jabba the Hut-týpa, og sögn bókarinnar var sú, að foringi hnakkanna væri í raun fituklessa, þannig að innst inni væri hnakkinn fi- tuklessa. Síðan opnaði hann hlera, kisi datt í kjallarann, eins og í Stjörnustríði 3, nema skrímslið sem mætti honum var byggt á Gillzenegger, skeinarinn mikli frá Hnakk-hnakk-hnakkalakka-lakk-hnakk. Hann var með líkama kjúklings og síðan, eins og hnakkarnir í bókinni, ekki með andlit, heldur hnakka báðum meg- in – þeir töluðu með rassinum. Hann var svakalegt skrímsli, með vígtennur í rassinum. Svo voru hend- urnar klósettrúllur, því hann var alltaf að tala um að skeina fólk, og þær voru hvassar – hann skar jóla- sveininn í tvennt. Ég varð ekkert pirraður á hnökkunum lengi eftir að hafa gert bókina – það er sniðugt að beina pirringi sínum í bækur. Einn vinur minn, sem er nörd, sagði mér um svipað leyti, að hann hefði svikið lit og farið til Gilzeneg- gers í einkaþjálfun. Ég leit á þetta sem svik við nördasamfélagið og einn karakterinn er byggður á honum, Darth Vader sem var einu sinn nörd en breyttist í hnakka.“ Brúnin lyftist á Hugleiki við það eitt að minnast á Stjörnustríð. „Það er erfitt að detta ekki inn í Stjörnustríð; ég vísa ósjálfrátt í þær myndir. Ég verð til dæmis með sýningu ásamt fleiri listamönnum í anda Empire Strikes Back, bestu stjörnustríðsmyndarinnar, í Crymo-galleríi í desem- ber ásamt fleiri listamönnum.“ – Átti Garðarshólmi ekki að vera þríleikur? „Ég hugsa að það verði raunin ef þessi bók selst vel. Þá geri ég Garðarshólma 2, hvort sem hún heitir Ísa- fold eða Frón. Ég þarf líka að finna vettvang til að birta hana. Ef mér býðst ekki símaskráin aftur, þá getur verið að ég birti hana bara á vefnum. Eða í IKEA- bæklingnum? Það hefði verið flott að fá rannsókn- arskýrsluna – það hefði verið lö-ö-öng saga!“ – Ég heyrði að þú værir kominn með annan teikn- ara fyrir eineygða köttinn kisa! „Já, Eineygði kötturinn kisi og leyndardómar Eyja- fjallajökuls kemur út hjá JPV fyrir jólin. Þegar ég gerði Eineygða kisa og leyndarmálið hélt ég teiknikeppni á My Space, í þeim steinaldarhelli, og bað fólk að teikna karaktera í kisa. Einn bar af, Pétur Antonsson, sem er í teikniskóla í Kaliforníu. Ég var búinn að ákveða að teikna ekki aðra Kisabók, mér fannst það leiðinlegt og vissi að hægt væri að teikna hann betur. Pétur var til í slaginn. Ég vippaði því upp handriti og áttaði mig fljót- lega á, að sagan gat ekki verið um annað en Eyjafjalla- jökul. Ég bjó til lítið Indiana Jones-ævintýri með ein- eygða kettinum kisa og vinum hans, sem er alþjóðlegra en sögurnar hafa verið hingað til og kemur einnig út á ensku.“ – Þú varst á lista Besta flokksins, sem mikið er talað um þessa dagana! „Já, ég fylgist ekkert með þessum um- ræðum – ég er svo upptekinn af sjálfum mér. Ég veit aldrei hvort fólk er almennt pirrað eða örfáir bloggarar. En ég hef heyrt einhverja segja það sama og alltaf, að Jón Gnarr viti ekkert í sinn haus og kunni ekkert að stjórna borginni. Og í rauninni, ja, að minnsta kosti við- urkennir hann það,“ segir Hugleikur og hlær. „Ég hef ekki séð neinar sprengingar ennþá, borgin er ekki farin að hrynja, þannig að ég held að henni sé ágætlega stjórnað. Þegar við sjáum börn borða rottur úti á götu, þá getum við kannski byrjað að hafa áhyggjur. Mér finnst við Íslendingar gleyma því stundum að horfa á heildarmyndina. Þrátt fyrir að allt sé í steik, þá gætum við ekki haft allt í steik á betri stað í heiminum. Það sveltur enginn úti á götu og hér eru eng- in hryðjuverk. Það eina sem gerðist er að við misstum peninginn okkar. Kannski er naívt að hugsa svona, en mér finnst að við ættum að líta á björtu hliðarnar og það voru einmitt formerki besta flokksins.“ – Koma fleiri „Okkur“ bækur? „Okkur mun einn daginn snúa aftur, þegar það er tilbúið, þau eru tilbúin eða við erum tilbúin! Þá mun það ekki heita „okkur“, heldur eitthvað allt annað. En ég hef ekki ákveðið ennþá hvað.“ Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Síðasta orðið … Hugleikur Dagsson Hann kallaði okkur trefla! ’ Þrátt fyrir að allt sé í steik, þá gætum ekki haft allt í steik á betri stað í heiminum.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.