Skólablaðið - 01.03.1987, Qupperneq 8
8 SKÓLABLAÐIÐ
Félag framhaldsskóla:
Mistök frá upphafi
Landssamband mennta- og fjöl-
brautaskóla, skammstafað LMF,
dó drottni sínum fyrir nokkrum
árum. Skólar sáu enga ástæðu til að
byggja undir það félag að nýju, —
því hefði hvort eð er ekki tekist að
koma fram hagsmunamálum skól-
anna, svo sem var heilög köllun
félagsins. Það var orðið bákn og
óþarfa ok á herðum nemendafé-
laga um allt land. Fé, sem skólarnir
veittu til þess, skilaði sér aldrei. Einu
skólarnir sem vildu halda LMF
gangandi voru þeir, sem áttu full-
trúa í stjórninni, — og þó ekki allir.
Um þessar mundir er sagan að
endurtaka sig. Af blendnum huga
lagði ég blessun yfir að Menntaskól-
inn í Reykjavík tæki þátt í stofnun
Félags framhaldsskóla, sem vera
átti hagsmunafélag nemenda. Það
kom síðar í ljós, að gallar LMF færð-
ust yfir á hið nýja félag. Tel ég, undir-
rituð, að grundvöllur sé ekki fyrir
sameiginlegum hagsmunasamtök-
um framhaldsskólanemenda. Öðru
vísi horfir í sameiginlegum fyrir-
tækjum, svo sem Útrás og MORFÍS.
En það virðist ekki umflúið að
blanda pólitík inn í samtök, sem FF.
Það hefur alltént ekki tekist áður og
svo sannarlega ekki nú.
Því er ekki að neita, að aðgerðir
og ályktanir, sendar frá LMF í eina
tíð, hafi verið vinstri sinnaðar. Það
fer enginn í grafgötur með, að FF
hafi dregið taum Alþýðubandalags-
ins og annarra vinstri afla í kennara-
verkfallinu nú nýverið. Það vita allir,
sem fylgst hafa með, að þá gullin
tækifæri hafa gefist til að koma á
framfæri sameiginlegum óskum
nemenda, hafi formaður FF nýtt
það, til að koma eigin skoðunum og
fylkingarinnar til alþýðu, í nafni
framhaldsskólanemenda, amen.
Þegar formaður FF, sem kom fljúg-
andi frá Akureyri til þessara sér-
stöku erindagjörða, að afhenda
undirskriftalista nær 5 þúsund
nemenda, þar sem þess var æskt
við ríkisstjórn, að samningar tækj-
ust sem fyrst, lét hann í það skína í
ávarpi sínu í sjónvarpi, að þessi
fjöldi nemenda hefði ritað undir
ályktun FF. Sú ályktun hafði allt
aðra hljóðan, svo sem ég kem að
síðar. Meðal annars af þessum
sökum dró Menntaskólinn í Kóþa-
vogi sig í hlé og vildi ekki taka þátt í
aðgerðum FF varðandi verkfallið.
Og mér var ekki ljúft að bendla
nafn MR við yfirlýsingar formanns
FF og mótmæla- og kröfuaðgerðir
hans.
Við verðum að gera okkur ljóst,
að með þátttöku okkar í Félagi fram-
haldsskóla, eftir að keyrði um
þverbak, öxlum við ábyrgð. Hvort
sem við kærum okkur um eður ei.
Nemendur í MR eru ábyrgir fyrir því,
að haldinn var baráttufundur á
Lækjartorgi fyrir Alþýðubandalagið
og kennara gegn ríkisstjórninni.
Nemendur í MR eru ábyrgir fyrir því,
að ályktun í nafni félagsins vargefin
út, sem studdi kröfur kennara ein-
hliða gegn ríkisstjórninni.
Ég vil að lokum benda á, að um
leið og ég sá hættuna, lagði ég til að
Menntaskólinn í Reykjavík drægi
sig úr samstarfi við þessi pólitísku
öfl, líkt og MK, meðan á verkfalli
stóð. Skoðanir mínar hlutu ekki
hljómgrunn og því er þessi grein
skrifuð, að gera opinbera mína hug-
mynd um FF.
Ég gerði mér ljóst, að Félag fram-
haldsskóla, í sinni núverandi
mynd, voru mistök frá upphafi.
Sorgarsaga LMF er að endurtaka
sig. Grípa verður í taumana og leiða
félagið inn á farsælli brautir áður en
það er of seint. Samskipti og sam-
vinna skólanna er af hinu góða.
Pólitík veldur ávallt árekstrum og
spillir.
Ragnheiður T raustadóttir,
Inspector Scholae.