Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1987, Síða 15

Skólablaðið - 01.03.1987, Síða 15
SKÓLABLAÐIÐ 15 Vinátta Smásaga eftir Elsu Valsdóttur Þegar ég var íítil fórum við mamma oft í heimsókn til aldraðrar frænku minnr úti á ianöi á sumrin og um páskana. Hún bjó töluvert fyrir utan bæinn í litlu húsi með klósetti í kjallaranum. Þangað niður lá brattur stigi; ryk og köngulóarvefir þöktu alla ósnerta fleti og ég var alltaf dauðhrædd við að fara þangað niður en lét mig þó hafa það. En frænka mín bjó ekki ein í firðin- um. Þar voru nokkur önnur hús og í einu þeirra var telpa á mínum aldri. Við urðum fljótlega mestu mátar og undum okkur vel í fábreytni sveita- lífsins. Faðir hennar sótti vinnu inn í bæinn enda átti hann fyrir stórum barnahópi að sjá en móðirin var heima við sökum lasleika. Bærinn var sjávarpláss og skemmtanahald þar oft og tíðum óheflað en aldrei varð ég vör við óreglu á heimili vin- konu minnar. Hún var yngst syst- kinanna, dökkhærð með djúpblá augu og svo saklaus að ég, borgar- barnið, gat oft talið henni trú um ótrúlegustu hluti þótt ég skammað- ist mín jafnan eftir á og tæki aftur lygisögurnar. Vissulega kastaðist stundum í kekki okkar í milli en því fylgdu jafnan Ijúfar sættir eins og gengur og gerist. Við brölluðum margt saman og vísast fengi hún frænka mín fyrir hjartað ef hún frétti sumt af því. Ég held þó að hún hafi oft séð til okkar þegar við vorum að leik í garðinum og rændum rabarbara og klifruðum í trjánum þótt hún segði aldrei neitt. Við undum okkur lengst af í fjörunni og komum oft heim holdvotar eftir háskalega leiðangra eða áflog. Þegar ég var fyrir sunnan skrifuðumst við á um allt sem við ætluðum að gera, þegar ég kæmi aftur, og allt sem við höfðum gert. En þegar árin liðu fækkaði bréfun- um. Smástelpan ég varð unglingur- inn ég sem hafði margt betra við tímann að gera en skrifa ein- hverjum krakka sem varla gat skrifað nafnið sitt rétt. Eitt sumarið kom hún svo suður í heimsókn og ég skammaðist mín fyrir hvað þessi trygga og einlæga vinkona mín varsveitaleg og barna- leg. Börn eru svo miskunnarlaus og ég gerði mér enga grein fyrir því hye djúpt ég særði hana. Upp frá þessu fóru aðeins einstaka bréf á milli, alltaf þvinguð og full af uppgerð. Svo var það sumarið sem við vorum fimmtán ára að ég hitti hana aftur. En þetta var ekki sama stúlkan og ég hafði þekkt sem barn. Hún var eitthvað svo fjarlæg og það fór ekki mikið fyrir lífsgleðinni sem áður var svo rík í fari hennar. Loks sagði hún mér að hún héldi að hún væri ófrísk eftir 38 ára gamlan mann úr bænum sem þegar var giftur og þriggja barna faðir. Á ein- hvern hátt fannst mér þetta vera mér að kenna. Hún hafði alltaf litið svo upp til mín og treyst mér fyrir öllum vandamálum sínum þótt ég ætti það traust síst skilið. Og ég hafði brugðist henni. Og ég skammaðist mín, — í þetta skipti ekki fyrir hana heldur sjálfa mig. Ég hafði metið stundarkynni meir en sanna vináttu og hið eina, sem ég gat gert, var að biðja þess að enn væri ekki of seint að brúa bilið sem myndast hafði á milli okkar. Þegar ég frétti svo hjá frænku minni nokkrum vikum síðar að vinkona mín hafði verið lögð inn á spítala vegna „bólgu í legi“ langaði mig til að úthrópa óréttlæti heims- ins, að það skuli alltaf vera hinir góðu og saklausu sem lenda í erfið- leikum en hinir sleppa með „skrekk- inn". En það er víst, að þessi atburður mun aldrei hverfa mér úr huga, og jafnvíst að ég verð vinkonu minni, sem lét nokkurra ára afskiptaleysi ekki kasta rýrð á trygglyndi sitt, ævinlega þakklát fyrir að opna augu mín fyrir mikilvægi og fegurð sannrar vináttu.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.