Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1987, Síða 21

Skólablaðið - 01.03.1987, Síða 21
SKÓLABLAÐIÐ 21 Stundum Stundum gerir stefjaregn. stundum þurrkur ríkir. Stundum gefur stuðlaþegn. stundum greppur sníkir. Stundum iðkar greppur grín, glettinn spaugar kátur. Stundum er ég miður mín; mæðu iinar hlátur. Límbandamaðurinn. Vísa góð oft vekur glóð, vermir þjóð á norðurslóð. eflum móð og yrkjum ljóð, ágætt hljóð því gefi fljóð. Vísur margar vondar kveð, vil ég það mjög laga. Sái fræi í bragarbeð, ber á ljóða haga. Dreg ég frá og deili, dæmalaus er þó. Hefur þessi heili af hugsun fengið nóg. Rotnun Alein, í frumskógi örlaganna. Ég hélt ég hefði fundið réttu leiðina en í raun og veru var hún sú versta. Ég áttaði mig ekki strax. En fagurt útlit var einungis til að hylja rotið innihald, svo rotið að fnykinn leggur enn að vitum mér! Ég sé þig en þó sé ég þig ekki. Hvernig viltu að fari fyrir mér? Ég vil ekki lykta langar leiðir! í raun verð ég að viðurkenna að þú hjálþaðir mér á vissan hátt. Með hegðan þinni sýndir þú hvernig á ekki að koma fram við aðra. Ég hef gert ýmislegt rangt, en ekkert í líkingu við þig. bér er vorkunn! Það er alltaf erfitt að hafa samvisku, sérstaklega þegar hún er jafnslæm og þín. Þér er vorkunn! Hána, 5. mars '87. Máttur augna þinna Mín kalda sál er ei hræddist ást né hatur splundraðist er ég leit í augu þín og hjarta mitt varð ómennskt af hlýju augnabliksins. Skotta Grettistaki gríþur mig glettinn mjög á stundum. Hrekkjótt tunga hefur sig helst á mannafundum. Límbandamaðurinn Mon ami! Je ne sais þas, mon ami. Je ne veux pas savoir... II y a une voiture d’enfant á gauche mais je ne sais pas, mon ami. Voiture d’enfant! C’est ridicule! Árni J. Magnús

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.