Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 25
SKÓLABLAÐIÐ 25
Franz Kafka fæddist 3. júlí 1883 í Prag. Frá 1901—1906 nam hann stuttan
tíma germönsk fræði, síðan lögfræði. Eftir titilveitinguna dr. jur. lauk hann
farsællega eins árs réttarstarfsþjálfun og gekk síðan til liðs við Assicurazi-
otii Generali (almennar tryggingar) 1907. Árið 1908 hóf hann störf hjá
Arbeiter-Unfail Versicherung (slysatryggingar verkamanna) sem lögfræð
ingur og lauk störfum þar 1922 er hann fór á eftirlaun. Þá átti hann einungis
tvö ár eftir ólifuð. 1 lann lést 3. júní 1924.
Kafka hafði ekki mikla trú á eigin verkum eins og kemur fram í bréfum til
vina og dagbókum enda bað hann vin sinn, Max Brod, að brenna hantirit sín.
En Brod varð ekki við hinstu ósk vinar síns og ég áfellist hann ekki fyrir það.
Stýrimaðurinn
„Er ég ekki stýrimaðurinn?" hrópaði ég. „Þú?“ spurði dökkur, hávax-
inn maður og strauk yfir augun, líkt og hann væri að hrekja burt
draum. Ég hafði staðið við stýrið þessa dimmu nótt, með fölbrenn-
andi lugtina yfir höfði mér, þegar þessi maður kom og ætlaði að ýta
mér frá stýrinu. Og þar sem ég vék ekki, setti hann fótinn fyrir bringu
mér og tróð mig niður meðan ég hékk á handföngum stýrishjólsins
og togaði það með mér niður. Þá tók maðurinn það og lagaði en
hratt mér í burtu. Ég áttaði mig fljótlega, hljóp að hleranum sem lá að
áhafnarklefanum og kallaði: „Áhöfn! Félagar! Komið fljótt! Ókunnur
maður hefur hrakið mig frá stýrinu! Hægt komu þeir upp tröppurnar
og upp um opið, riðandi, þreyttar og kraftalegar verur. „Er ég ekki
stýrimaðurinn?" spurði ég. Þeir kinkuðu kolli, en einblíndu á hinn
ókunnuga, sem þeir höfðu myndað hálfhring um. Og þegar hann
sagði skipandi röddu: „Truflið mig ekki,“ söfnuðust þeir saman, kink-
uðu kolli til mín og héldu aftur niður tröppurnar. Hvers konar saman-
söfnuður er þetta eiginlega! Hugsa þeir líka eða dragnast þeir til-
gangslaust yfir jörðina?
Þýtt hefur Hrafn Lárusson