Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 42

Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 42
42 SKÓLABLAÐIÐ Guðrún Indriðadóttir Viðtal: Daníel Ágúst Haraldsson Um daginn hafði ég samband við skólastjóra Mynd- lista- og handíðaskóla íslands, Bjarna Daníelsson, og bað hann að benda mér á fyrrverandi MR-ing, sem legði stund á listnám. Kom hann mér í samband við nemanda á þriðja ári í keramikdeild, Guðrúnu Indriða- dóttur. Ætlunin er að lofa lesendum blaðsins að fá nokkra hugmynd um skoðanir og viðhorf ungs lista- nemanda í hinum harða listheimi. G: „Það var nú eiginlega tilviljun, að ég fékk svona mikinn áhuga á leirlistinni," segir hún og brosti. „Ég fór með manninum mínum til Danmerkur og ætlaði að læra að vefa." Þar fór hún í félagsmiðstöð fyrir fullorðna, þar sem fullorðið fólk gat komið og föndrað það sem það langaði til. „En þegar ég kom inn, sá ég hvar verið var að vinna með leir og langaði sjálf að prófa. Vefnað- urinn var á hæðinni fyrir ofan, og ég komst ekki lengra en á fyrstu hæð. Þegar maður er einu sinni kominn með puttana í leirinn, losnar maður ekkert við’ann!" Þau hjónin voru þarna í tvö ár og „dútlaði" Guðrún á leirkeraverkstæðinu ásamt því að fara á teikninám- skeið. Segir hún að þetta námskeið í Danmörku og einn vetur, sem hún var í Myndlistaskólanum í Reykja- vík, hafi komið sér mjög vel, og segir það nauðsynlegt að taka einhver námskeið. því að: „Allt að því % hluta umsækjenda er vísað frá við inntökupróf og kemur þess vegna öll fyrri menntun sér ákaflega vel. Ég er ailan daginn í Myndlista- og handíðaskólanum, því ef góður árangur á að nást, verður að gera þetta heils hugar, því að nóg er að gera," sagði hún þegar ég spurði hana hvort hún ynni með skólanum, en hún hefur próf frá Háskóla íslands sem aðstoðarlyfjafræð- ingur." Til að útskrifast úr Myndlista- og handíðaskólanum þurfa nemendur að læra í fjögur ár, og í lok fjórða árs- ins sýna þeir lokaverk sín. Þegar ég spyr hana um starfsmöguleika að námi loknu, verður hún alvarleg og segir: „Það er erfitt að starfa sem leirlistarmaður nú. Til dæmis er stofnkostnaður á keramikverkstæði um það bil '/2 milljón. Auk þess virðast leirlistarmenn þurfa að hafa meira fyrir því að vera metnir sem listamenn. Til að skapa sér nafn þarf að láta bera á sér, — sýna frum- legheit og vera ákveðinn. Ef fólk er með sérstaka hluti - eins og til dæmis Kogga - seljast þeir frekar. Annars geta þetta orðið hlaup eftir lögmálum markaðarins, ef fólk ætlar að lifa á listinni einni saman. í leirlistinni þarf að ná miklu valdi á tækni og vinnubrögðum, meðan á námi stendur, og að námi loknu er fyrst hægt að fara að skapa myndverk. Það tekur kannski áratug, eftir námið, að skapa sér stíl og ná sér á strik sem listamað- ur. Gagnrýnendur hafa einnig þó nokkur áhrif á vel- gengni listamanna." D.: Fer fólk almennt eftir gagnrýni og er hún þá ekki nauðsynleg? G.: „Vissulega er gagnrýni nauðsynleg, og það fara örugglega margir eftir henni. En gagnrýni verður að vera uppbyggileg og benda á veika og sterka punkta,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.