Skólablaðið - 01.03.1987, Blaðsíða 48
48 SKÓLABLAÐIÐ
skólafélagsstj órnar
eftir Jóhann E. Matthíasson
Það er athyglisverð skólastjórn sem nú lætur brátt
af störfum samkvæmt stjörnunum. í rauninni höfum
við hin alls ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af henni.
Þær Ragnheiður og Margrét hafa þvílíkan metnað og
stjórnunarhæfileika að með eindæmum er. Það er
ekki liallað á Helgu með þessum orðum en hún er
frjálsari og hefur væntanlega hleypt fjöri í þennan
kvennaþríhyrning sem er við völd.
Ragnheiður (jarðýta)
Ragnheiði hefur að öllunt líkindum liðið vel í inspecl-
orsstöðunni. Hún fær þar útrás fyrir stjórnunarhæfi-
leika sína þar sem hún getur einnig látið töluvert á sér
bera og til sín taka. Hún er í grundvallaratriðum alvöru-
gefin, formföst og íhaldssöm. Hún er stjórnsöm og
hefur tilhneigingu til þess að axla ábyrgð og bera
syndir þessa heims. Hún hefur óhugnanlegan metnað
og vill ná miklum áþreifanlegum árangri. Metnaðurinn
kemur mjög fram í því að vera þekkt fyrir vinnu sína og
andlega snilld. Hún er reiðubúin að leggja hart að sér til
að skapa sér virðingarvert nafn og stöðu í þjóðfélag-
inu. I lún stefnir vafalaust hátt á hvaða sviði sem það
verður. Hún á mikla möguleika í stjórnmálum en hefur
jafnframt hæfileika í tungumálum og hvers kyns
störfum sem tengjast fjölmiðlun. (Sól og Merkúr í
Steingeit á miðhimni.)
Þrátt fyrir íhaldssemi, stöðugleika og stífni fer Ragn-
heiður eigin leiðir, er breytingagjörn og næm á
nýjungar en samt innan þess íhaldsramma sem hún
skapar sér. Þar sem hún starfar eða tekur sér eitthvað
fyrir hendur vill hún hafa eigin aðferðir og getur átt til að
bylta, umturna og hreinsa rækilega til. (Úranus og
Plútó í 6. húsi í samhljóma afstöðu við sól.)
Ragnheiður er tilfinningalega stolt og hlý. Hún hefur
tilhneigingu til að láta dást að sér og vera í sviðsljósinu,
getur átt til að vera drottnandi og eigingjörn. Samt sem
áður heldur hún fólki í fjarlægð og getur átt í togstreitu
milli þess að vera miðja umhverfisins eða ein úr
hópnum. (Tungl í Ljóni og Venus í Vatnsbera í spenn-
uafstöðu.)
Hæfileikar Ragnheiðar nýtast mjög vel í ópersónu-
legu og rólegu hópsamstarfi þar sem hún getur beitt
sér á kraftmikinn og jafnframt fágaðan hátt. (Venus og
Mars í 11. húsi.)
Magga (skurðgrafa)
Magga er í grunnatriðum jarðbundin þung, hæg og
friðsöm, þarf öryggi og góða undirstöðu. Jafnframt er
hún þrjósk og úthaldsmikil. Hún hefur akveðna full-
komnunarþörf, er kröfuhörð og hefur mikla ábyrgðartil-
finningu. Hún er hógvær og raunsæ, gerir sér góða
grein fyrir veikleikum sínum en þarf að varast að gera
of lítið úr sjálfri sér. Magga hefur svipaða stöðu og
Ragnheiður sem er algeng Itjá stjórnmálamönnum.
I lún leggur mikla áherslu á vinnu sína og andlega itæfi-
leika, hefurgífurlegan metnað. Hún vill láta sjá sig sem
samviskusama, duglega og greinda persónu. 1 iún vill
iiafa áhrif á þjóðfélagið og vera númer. (Sói, Merkúr og
Satúrnus í Nauti á miðhimni.)
Magga er tilfinningamikil og viðkvæm, getur verið
hlédræg og feimin en felur sig kannski á bak við harða
skel. Hún er umhyggjusöm og hefur næmleika fyrir
skapi og tilfinningum annara. Þrátt fyrir áhuga sinn á
þjóðfélagsmálum skiptir gott fjölskyldulíf hana miklu.
l lún er næm á þarfir fjöldans, sem kæmi sér vel í stjórn-
málum. Hún hefur þörf til að loka sig frá umhverfinu og
hreinsa sig annað slagið. (Tungl í Krabba í 12. húsi.)
Magga er opin og hlý í framkomu og vill hafa vissan
stíl yfir sjálfri sér. I lún er ákveðin, stjórnsöm og föst
fyrir, er stórhuga og skapandi. Hún vill láta bera virð-