Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.03.1987, Side 49

Skólablaðið - 01.03.1987, Side 49
SKÓLABLAÐIÐ 49 ingu fyrir sjálfri sér og getur verið ósveigjanleg. (Rís- andi í Ljóni.) Hún hefur skipulagða, jarðbundna og kryfjandi hugsun, hefur auk þess gott minni. Hún er góður ræðu- maður, á gott með að tjá sig og er ákveðin í tali. (Merkúr í Nauti í afstöðu við tungl, Plútó og rísanda.) Magga er sjálfstæð í vinnu, er drífandi og vill fást við fjölbreytileg og spennandi málefni. Allt sem hún gerir þarf að vera skemmtilegt. Þessi staða sem Helga hefur einnig gefur til kynna skemmtanasýki. (Mars í Boga- manni í 5. húsi.) Helga (rússíbani) Helga ólíkt hinum tveimur þarf líf, spennu og fjöl- breytileika, er miklu léttari persónuleiki. Hún er hug- sjónamanneskja, sjálfstæð ákveðin og drífandi. Jafn- framt því er hún hress og vingjarnleg. Hún býr yfir innra öryggi og jafnvægi, er afslöppuð og samkvæm sjálfri sér. Hún er feykilega orkumikil og hugmyndarík á gott með að tjá sig og breyta hugmyndum sínum í athafnir. Hún getur verið fljótfær og rokið upp í reiðiskasti en gleymir samt fljótt. Helsti veikleiki hennar getur veriö sá að byrja á einhverju af krafti, en missa þolinmæðina og hætta. Hennar eðli er léttlyndi og frjálslyndi og ætti því ekki að eltast við íhaldssemina. Hún hefur kæru- lttusa, létta og frumlega hugsun og er mjög stríðin. Jafnframt því tjáir hún sig á léttan og kraftmikinn hátt. Hún þolir ekki málaleggingar og útúrdúra sem skipta ekki máli. Líklegt er að hún nenni ekki að læra heima vegna þarfar fyrir líf og félagslegt fjör. (Sól og Merkúr í samstöðu í Bogamanni í samhljóma afstöðu við tungl í Hrút.) Félagsleg samvinna skiptir hana miklu. Hún hefur mikla ábyrgðarkennd gagnvart henni og störfin verða að skila árangri. Vinnan verður jafnframt að vera skemmtileg og spennandi og tengjast ferðamálum eða öðrum ævintýrum. (Tungl og Satúrnus í 11. húsi, Mars í Vog í 5. húsi) Á bak við kæruleysið og stælana býr þrátt fyrir allt viðkvæm, hjálpsöm og umhyggjusöm persóna. Hún á gott með að gráta með bágstöddum vinum sínum. Hún er töluverð mamma í sér. Hún á til að vera stjórn- söm og getur verið sveiflukennd milli daga. Jafnframt liggja vel fyrir henni pælingar í matarræði og heilsu- rækt og líklegt að það skipti hana máli, en samt eins og annað sem hún gerir á hressilegan hátt. (Rísandi í Krabba, sól og Merkúr í 6. húsi.) Helga laðast að list- rænu og fáguðu fólki. hún er trygglynd og góður vinur. Hún hefur sterka ábyrgðarkennd gagnvart vinum sínum og á það til að ætlast til réttrar og venjulegrar hegðunar af þeint í mótsögn við allan léttleikann. Hún getur því átt í baráttu milli frjálslyndis og íhaldssemi. (Venus í Vog í 7. húsi í spennuafstöðu við Satúrnus.)

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.