Skólablaðið - 01.03.1987, Side 72
72 SKÓLABLAÐIÐ
Skólasel
Menntaskólans
Árið 1934 kom nemendum M.R.
fyrst til hugar að reisa skólasel.
Pálmi Hannesson rektor tók foryst-
una, ritaði dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu og fór fram á að
Menntaskólinn fengi landskika
undir skála. Þar átti að koma upp
litlu búi, gera sundlaug, leikvöll o.fl.
Tuttugasta og níunda júní 1936 var
M.R. heimilaður hálfur liektari úr
landi Reykjakots í Ölfusi. Fram-
kvæmdir við byggingu selsins hóf-
ust 21. september 1937.
Um haustið fóru bekkirnir, einn og
einn í senn ásamt nokkrum kennur-
um, og unnu að byggingu selsins
en fagmenn sáu um trévinnu. Um
jólin 1938 lauk innréttingu Selsins.
Selsferðir hófust svo í ársbyrjun
1939 með þeim hætti, að bekkir
dvöldust þar um helgar. Nemendur
og aðstandendur þeirra kostuðu
aila þygginguna.
Unnið í selinu
Selið er stórt hús. Á neðri hæð eru
arinstofa, forstofa, eldhús, salur,
kennslustofa og tvö lítil herbergi. Á
efri hæð eru svefnherbergi, ýmist
með tveimur eða fjórum kojum.
Samtais eru kojurnar 46. í nágrenni
selsins er frábært útivistarsvæði,
fjöll, hverir, sundlaug og glaðværa
kauptúnið Hveragerði.
í mörg ár fóru M.R.-ingar upp í sel
að skemmta sér, hvílast og kynnast
Selsnefnd veturinn '86—'87
innbyrðis. Voru selsferðir ómiss-
andi þáttur í félagslífi skólans.
Árin liðu og M.R. hélt áfram að
brautskrá stúdenta, en seisferðir
lögðust af. í mörg ár var selinu ekki
haldið við sem skyldi og var það
óspart notað undir teiti ýmissa
manna, sem notuðu stóla, borð o. fl.
tiltækilegt í eldivið. M.R. brautskráði
nú stúdenta, sem vissu varla að
selið var til.
Það var loks veturinn 1984—85 að
farið var að vinna markvisst að
endurreisn selsins og selsferða.
Nokkrir nemendur tóku sig til og
sendu gömlum nemendum gíró-
seðla með ósk um nokkur hundruð
króna styrk. Svo var tekið til við að
gera við selið.
Þegar núverandi selsnefnd tók
við hafði margt verið gert, en tals-
vert var óunnið. Allflestar helgar
hafa selsnefndarmenn notað til að
vinna að endurbótum. Útlagður
kostnaður við framkvæmdir í selinu
í vetur er nú um fimm hurtdruð þús-
und krónur. Mikill hluti þessa kostn-
aðar fór í að leggja gólffjalir í
kennslustofuna og nýja vatnslögn
að selinu.
Þrátt fyrir það að unnið hafi verið
í selinu flestar helgar hafa verið
farnar nokkrar selsferðir. Þriðju-
bekkingar riðu fyrst á vaðið og fóru
í dags-vinnuverð upp í sel. Sjöttu-
bekkingar í náttúrufræðideild fóru í
fyrstu alvöruferðina í mörg ár. Svo
var ákveðið að farin skyldi emb-
ættismannaferð til að gefa mönn-
um tækifæri á að kynnast innbyrðis
og selinu. Því miður voru örfáir í
þeirri ferð. Fimmtubekkingar áttu
næst kost á að fara upp í sel. í síð-
ustu ferðina fyrir jól fóru 5 bekkir úr
fjórða bekk. Eftir jól var svo haldið
áfram og var fyrst farin sjöttabekkj-
arferð. Ætlunin var að afgangur
fjórða bekkjar færi næst. Þar sem
framkvæmdum við kennslustofu
var lokið, þegar hér var komið, var
öllum fjórðubekkingum frjálst að
koma með í ferðina. í þriðjabekkjar
ferðina fóru rúmlega 120 manns.
Ákveðið var að í síðustu ferðina
fengju allir M.R.-ingar að fara. Ekki
voru þó margir. um 26 manns. Þetta
varð hins vegar stórskemmtileg
ferð.
Á leið í selið
Næsta haust verða liðin 50 ár frá
því að hafist var handa um að reisa
selið. Vonandi verður þá viðgerð-
um á því fulllokið, svo að unnt verði
að fara enn fleiri selsferðir næsta
vetur og þær verði aftur ómissandi
þáttur í félagslífi skólans.