SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 41

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 41
21. ágúst 2011 41 LÁRÉTT 1. Slæmar hitta heillakarlinn. (5) 4. Viðsnúinn andi hefur fegurðarskyn á læsingu. (8) 8. Munna sneiddir fyrir blaðara. (10) 10. Morknaði einhvern veginn út af aðfluttum. (8) 11. Svei, guð birtist í streng í sporbaug. (7) 12. Skæri með leik í birtu. (9) 13. Sækó fyllibyttna gefur okkur jasmínu. (8) 15. Sigfesta missir sef þegar verið er að miða. (5) 16. Frekur labbar á. (7) 18. Reiknast ef flækist í afskiptum. (10) 20. Stór og algeng spili vegna viðhafnar (10) 22. Dýr á reiðhjóli? (6) 25. Sinfónían hefur spil. (3) 26. Sjá ratleikinn missa miðjuna hjá aulanum. (6) 27. Rétt mörk snýr við út af sjúkdómi. (8) 28. Sálinn er öfugsnúinn eftir læsingu. (8) 29. Dálítið upp hóla fyrir peninga. (11) 31. Orma fer með að kari. (6) 32. Pílu hafi fátæklingur. (6) 33. Hékk hefðarfrú? (5) 34. Ó næði hestur samt að truflandi. (10) LÓÐRÉTT 1. Hætta að þefa. (5) 2. Staðfestulaus líkt og á hann vantaði hluta af plöntu. (7) 3. Glas með súr gott undir sykurbráð. (7) 5. Ómælt snuðir einhvern veginn undir sunnu. (11) 6. Eldingin enn blandast vörinni. (9) 7. Eitrast einhvern veginn út af álagi. (7) 9. Skær fær óma frá heiðvirðri. (7) 11. Leikfangalest ber tonn. (7) 14. Duftkenndar leifar mataríláta. (4) 15. Heilagt efni býr til hluta af skipi. (6) 17. Rekur út úr sér tunguna fyrir lík út af fatnaði. (9) 18. Er reið að ná með spóni í kennslu. (12) 19. Mjó girntist mön einhvern veginn. (11) 20. Hrindum forsetanum berlega að mjónu. (8) 21. Írum spinna með ís. (8) 22. Stutt sverð og legsteinn geta aflað okkur kjöts. (8) 23. Áðan grið komu í staðinn fyrir sorgina. (6) 24. Lemstraðir við krá sýni jaðrana. (9) 30. Trúðir og hafðir áfram. (5) Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátt- tökuseðilinn í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 21. ágúst rennur út á hádegi 26. ágúst. Nafn vinningshafans birtist í blaðinu 28. ágúst. Heppinn þátttak- andi hlýtur bók í vinning. Vinnings- hafi krossgátunnar 14. ágúst er Pálmi Kristinsson, Sólheimum 14, 104 Reykjavík. Hann hlýtur í verðlaun bókina Slátt eftir Hildi Knútsdóttur. JPV gefur út. Krossgátuverðlaun Ýmsir þykjast hafa séð teikn á lofti um hnignandi veldi Rússa á skáksviðinu. Samkeppni við granna þeirra staðfesta þetta með ótvíræðum hætti; á síðasta Ólympíumóti voru Úkra- ínumenn óstöðvandi og á heimsmeistaramóti landsliða í Kína á dögunum voru Armenar aftur „mættir til leiks“ og unnu sannfærandi sigur. Tími Kasp- arovs og Karpovs er liðinn og arftakar þeirra í rússneska lið- inu brokkgengir að ýmsu leyti og enginn skákmaður í sjónmáli sem hafði jafn augljósa leiðtoga- hæfileika og Kasparov, sem stundum tók að sér liðsstjórn þeirra og hafði jafnvel móður sína til aðstoðar. Vladimir Kramnik kom fram á Ólympíumótinu í Manila árið 1992 þegar veldi Kasparovs stóð sem hæst . Hann náði frábærum árangri en skaphöfn hans var annarrar gerðar og engrar leið- sagnar þaðan að vænta. Þegar Rússar mættu á heimsmeist- aramót landsliða í Luzern 1993 var Garrí að tefla við Nigel Short í London og Rússar náðu sér aldrei á strik. Spurning nú er hvort rofa muni til á næstu ár- um. Þeir hafa „endurheimt“ tvo öfluga skákmenn, Peter Svidler og Alexander Morozevich sem er farinn að tefla aftur eftir nokkurt hlé. Á rússneska meist- aramótinu sem lauk í vikunni fékk Svidler uppreisn æru eftir slaka frammistöðu á Ólympíu- mótinu í Khanty Manyisk. Lokaúrslit urðu þessi: 1. Svidler 5 v. ( af 7 ) 2. Mo- rozevich 4 ½ v. 3. – 5. Karjakin, Gruiscghuk og Kramnik 4 v. 6. Nepomniahtchi 3 v. 7. Galkin 2 v. 8. Timofeev 1 ½ v. Svidler var búinn að tryggja sér sigur fyrir lokaumferðina en tapaði þá fyrir Moro í aðeins 31 leik. Hann fékk harða og óvægna gagnrýni frá þjálfara Rússa á síðasta Ólympíumóti, Evgení Bareev, sem lýsti yfir undrun sinni á því að þessi ágæti skákmaður virtist ekki kunna byrjanirnar sínar almennilega. Ósanngjarnt fannst sumum en eitthvert sannleikskorn til í þessu; Svidler er mikill aðdá- andi sýrutónlistar sjöunda ára- tugarins en boðsskapurinn þar er stundum dálítið þoku- kenndur, brautirnar ekki alltaf beinar og hæpna leiðsögn þaðan að fá þegar skáklistin er ann- arsvegar. Á meistaramótinu dró Svidler úr pússi sínu eitt og annað gamalt og nýtilegt úr smiðju gömlu meistaranna, og var farsæll á stundum eins og eftirfarandi skák ber með sér: Artyom Timofeev – Peter Svidler Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rge7 Þetta afbrigði spænska leiks- ins sást stundum í skákum Wil- helm Steinitz. Riddaranum er raunar oftar valinn staður á e7 strax í þriðja leik. 5. c3 g6 6. d4 exd4 7. Rxd4 Skarpara og sennilega betra er 7. cxd4. 7. … Bg7 8. Be3 O-O 9. O-O b5 10. Bc2 Re5 11. a4 Hb8 12. axb5 axb5 13. Rd2 d6 14. h3 c5 15. R4f3 R5c6 16. Bf4 Hb7! Snjall leikur. Hrókurinn stefnir á d7 þar sem hann er góður til varnar og gagnsóknar. 17. De2 c4 18. Hfd1 Hd7 19. Rf1 d5 20. Bg5 Dc7 21. De3 b4 22. Bf4 Varla nægilega markvisst, 22. Ba4 kom sterklega til greina. 22. … Dd8 23. Bh6 d4! 24. cxd4 Rxd4 25. Bxg7 Rxf3 26. Dxf3 Kxg7 27. e5 f6? 28. Re3? Missir þráðinn. Eftir 28. Ha7! er erfitt að verja svörtu stöðuna. 28. … b3! 29. Be4 Dc7 30. Hdc1 Hd4 31. Dg3 Smá brella sem Svidler verst auðveldlega. 31. …f5 32. Bf3 f4 33. Dh4 33. … h6! Þessi einfaldi peðsleikur gerir út um taflið. 34. Rg4 Rf5 – og hvítur gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Hnignandi veldi Rússa á skáksviðinu Skák Nafn Heimilisfang Póstfang Krossgáta

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.