SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 33
21. ágúst 2011 33 D iljá Mist Einarsdóttir útskrifaðist úr lög- fræði frá Háskóla Íslands í vor og starfar nú sem lögfræðingur hjá Lögmáli ehf. Einnig hefur hún verið að starfa með unglingum síðustu ár í Miðbergi, sem er félagsmiðstöð í Breið- holti. Diljá Mist ólst upp í Foldahverfinu í Grafarvogi og segir þar langbest að vera. Hins vegar gekk hún ekki í hverfisskóla sinn heldur Ísaksskóla, Ártúnsskóla og að lokum Álftamýrarskóla. „Ég á sem sagt æskuvini úr öllum áttum,“ segir hún hress. Diljá Mist stundaði næst nám við Verzlunarskóla Íslands og líkaði vel en þar var hún formaður Listafélagsins árið 2005-2006. „Þessa dagana er ég að búa mig undir Reykjavík- urmaraþonið, en þar ætla ég að hlaupa hálfmaraþon og safna áheitum til styrktar Styrktarsjóði Susie Rutar.“ Susie Rut, systir hennar, lést í júní árið 2007 aðeins 22 ára gömul. „Það er því mikils virði fyrir mig að geta stuðlað að framgangi sjóðsins í minningu hennar.“ Þeir sem vilja styðja þetta góða málefni sem og önnur geta leita á heimasíðuna hlaupastyrkur.is. gunnthorunn@mbl.is Vinkonur mínar úr Miðbergi. Ég og Robbi, kærastinn minn, bakvið Seljalandsfoss. Ég, kæró, mamma og Garpurinn á útskriftardaginn minn.Ég og Páll Fannar, stóri-litli bróðir. Uppáhaldsvinkonurnar: Marthe, Maren, Thelma og ég í lautarferð á Klambratúni. Vinkonuhópurinn að útskrifast úr Verzlunarskólanum. Æskuvinir úr öllum áttum Lögfræðingurinn Diljá Mist Einarsdóttir er að búa sig und- ir Reykjavíkurmaraþonið en hún hleypur fyrir systur sína. Ég og Einar, vinur minn úr Versló, á Greifaballi en við erum forfallnir aðdáendur hljómsveitarinnar. Ég og Sindri Snær, litli bróðir. Fjölskyldan úti að borða í London á afmælinu hans pabba. Jonni töframaður að saga mig í tvennt. Garpur minn pínku þreyttur eftir hlaup Ég og Susie Rut, systir mín, á öskudaginn í stuði. Myndaalbúmið

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.