SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 37
21. ágúst 2011 37 fólki mætir, þetta er mjög samhentur hópur og í upphitun er oft hlegið svo mikið að maður nær varla andanum,“ segir Pétur. „Við erum með iðkendur frá 5 til 55 ára og góður kjarni hefur myndast þessi ár sem deildin hér á Sel- fossi hefur verið starfandi. Til okkar leitar fólk með krakka sem eiga við ýmis vandamál að stríða svo sem krakkar á einhverfurófi, krakkar og fullorðnir með skerta hreyfigetu, börn með ADHD og jafnvel hafa aðra deildir innan Ungmannafélags Selfoss sent krakka til okkar til að styrkjast eða til að verða liðugri. Það sem gerir þessa íþrótt góða fyrir þessa krakka er þessi mikli agi og festa sem einkennir æfing- arnar og að allir verða að taka belta- prófin á sama hraða, það líður því jafn- langt á milli prófa hjá öllum.“ Byggir upp sjálfstraust Aðspurð hvort íþróttin henti öllum segir Heiða: „Já, það geta allir æft íþróttina, hver á sínum forsendum og hraða. Íþróttin hentar einnig vel fyrir þá sem þrífast ekki í hópíþróttum. Við mælum tvímælalaust með þessari íþrótt og það er aldrei of seint að byrja. Taek- wondo hentar einstaklega vel fyrir börn sem hafa orðið fyrir einelti í skóla þar sem þetta byggir upp sjálfsmyndina og sjálfstraust viðkomandi aðila.“ Pétur bætir við að Daníel Jens hafi sjálfur verið lagður í einelti í grunn- skóla. „Það hætti eftir að hann fór að vera meira áberandi góður í tae- kwondo. Davíð er einnig stundum út- undan í skólanum, en þeir sem standa fyrir því þora líklega ekki í slag við hann enda er honum frjálst að verja hendur sínar ef á hann er ráðist.“ Íþróttin hefur gert heilmikið fyrir þau sem fjölskyldu. „Taekwondo hefur þjappað fjölskyldunni mikið saman og erum við nánast alltaf saman. Í byrjun voru Davíð og Dagný á barnaæfingum og við á byrjendaæfingum fullorðinna, en núna æfum við öll saman þar sem Daníel er kennarinn. Það er mjög skemmtilegt,“ segir Pétur. Fóru til Kóreu í beltapróf Síðastliðið haust létu Heiða og Pétur langþráðan draum rætast og skruppu alla leið til Kóreu þar sem þau þreyttu meðal annars beltapróf. „Það er ógleymanleg lífsreynsla,“ segir Pétur. „Við nutum þeirra forréttinda að fara með meistara okkar, Sigursteini og eig- inkonu hans Magneu Kristínu Ómars- dóttur, 3. dan. Sigursteinn hefur dvalið í Kóreu í um það bil tvo ár og talar málið reiprennandi og þekkir alla framámenn í taekwondo-hreyfingunni í Kóreu. Stressið í beltaprófinu var svakalegt, við þekktum bara Sigurstein og Magneu. Við tókum prófið fyrir framan hóp af nemendum í Yonsei- háskólanum en stórmeistarinn Kim, meistari Sigursteins, var prófdómari. Þess má geta að Magnea tók 3. dan prófið sitt um leið og við tókum prófið okkar.“ Dvölin í Kóreu snerist bara um taek- wondo. Þau hjón æfðu mikið, tóku próf, fengu fólk úr landsliði Kóreu í poomse eða formi til þess að halda sýningu áður en beltaprófið hófst en þar á meðal var heimsmeistari kvenna í poomse. „Það var stórkostlegt að sjá,“ segir Heiða. Aðspurð hvort beltaprófin í Kóreu séu frábrugðin þeim prófum sem haldin eru hér heima segir Pétur að í grunninn séu þau hin sömu. „Prófin í Kóreu eru mjög svipuð og þau beltapróf sem meistari Sigursteinn stendur fyrir, en okkur fannst frekar erfitt að byrja á því að fara á tveggja tíma æfingu og svo beint í beltaprófið – það var mjög erf- itt,“ segir Pétur og skellihlær. Í Kóreu ferðuðust hjónin eingöngu með neðanjarðarlestum í Seúl. „Þar var mikið horft á okkur þar sem við vorum eina hvíta fólkið í lestunum. Börn og unglingar flissuðu og bentu á okkur og sögðu eitthvað sín á milli. Þeim brá mikið þegar Sigursteinn svaraði þeim á kóresku. Þau héldu að við skildum öll hvað þau voru að segja og fóru alveg hjá sér þegar við brostum til þeirra. Það var mjög fyndið,“ segir Heiða. Stefna á Kóreu síðar Daníel, Davíð og Dagný öfunda foreldra sína mjög mikið af ferðinni til Kóreu og stefna sjálf á að fara þangað innan tíð- ar. „Mig hefur alltaf langað til þess að fara til Kóreu. Það væri mjög gaman að fara til þangað og kynnast íþróttinni betur,“ segir Daníel. Sjálfur hefur hann keppt á stórmótum hérlendis sem og erlendis og hefur gaman af. „Það er alltaf eitthvert stress í manni fyrir mótin, sérstaklega ef maður er skráður í erfiðan flokk. Aftur á móti eru keppnisferðirnar mjög skemmtilegar.“ Fjölskyldan hvetur alla til að prófa íþróttina „Þessi íþrótt styrkir allan lík- amann og eykur sjálfstraust. Svo það er um að gera og drífa sig í næsta félag sem kennir íþróttina og fá að prófa einn tíma frítt,“ segir Daníel að lokum. ’ Ég sagði við meistara Sigurstein þegar ég var fimm ára að ég ætlaði að ná svarta beltinu þegar ég yrði ellefu ára en ég var nýorðinn tólf ára þegar ég tók beltið.“ Ljósmynd/Helga Mjöll Stefánsdóttir Pétur, Bjarnheiður, Daníel Jens og í neðri röð tvíburarnir Dagný María og Davíð Arnar. Morgunblaðið/Eggert

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.