SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Blaðsíða 28
28 21. ágúst 2011 E ystri-Rangá skaust í liðinni viku á toppinn yfir gjöfulustu laxveiðiár landsins, og það er ekkert óvenjulegt; þá veiddust hátt í 800 laxar á einni viku á stangirnar 18. Eftir að laxaævintýrið hófst í Rang- ánum, systrunum Ytri og Eystri, hafa veiðimenn veitt þar þúsundir laxa á hverju ári. Laxveiðin byggist þar á um- fangsmiklum seiðasleppingum. Laxar sem veiðast í ánum eru kreistir, seiðin al- in í eldisstöðum, flutt að vori í sleppi- tjarnir þar sem þau eru fóðruð og að nokkrum vikum liðnum fara þau í silfr- aðan göngubúning og halda til hafs. Ári síðan snúa þau aftur sem fullvaxnir laxar, eða eftir tvö ár sem stórlaxar. Í vikunni veiddum við Martin Bell, bandarískur félagi minn, í einn dag í Eystri-Rangá og upplifðum að þar var lax að ganga af krafti, og víða var mikið af honum. Þegar við komum að veiðihúsinu í hléinu voru veiðimenn að snara plöst- uðum löxum á pallinn við vogina og veiðibókina. „Þetta var frábær morgunn,“ sagði einn þeirra og lagði hvern laxinn af öðr- um á pallinn. „Við fengum 19 á stöngina á neðsta svæðinu, allt nýjan lúsugan lax, á spúninn. Konan verður ánægð með þetta – leyfir mér örugglega að fara aftur fljót- lega,“ segir hann skælbrosandi. Aðrir voru þó með færri, frá einum upp í sjö; að meðaltali hefur dagsstöngin verið að gefa um sex laxa síðustu dagana. Viðkvæmir fyrir veðrinu „Reyndu þessa,“ segir Skúli Kristinsson, leiðsögumaður og fluguhnýtari, við fé- laga minn og réttir honum langa græna túpuflugu. Þetta er ein útgáfa hans af túpu sem kölluð er Bismó og hefur reynst vel í ánni síðustu sumur. „Þetta er mín útgáfa af danskri túpu. Ég veit um þrjá sem segjast hafa fundið hana upp,“ segir Skúli og glottir, „en sú græna hefur reynst vel hér. Þegar mikill litur er í ánni er bleika útgáfan líka góð.“ Við erum að hefja veiðar, það er morg- unn, klukkan að verða sjö og það er svalt; norðanstrengur og hitamælirinn sýnir sjö gráður. Eftir að Skúli hefur stjórnað drætti veiðimanna á svæði réttir hann Martin líka langan sökkenda, fimmtán feta, og hvetur hann til að nota hann. „Áin er köld fyrst á morgnana og þá þarf að veiða hægt og djúpt,“ segir hann. Síð- an sýnir hann okkur á korti hvernig við eigum að bera okkur að við veiðarnar á sjötta svæði, sem féll okkur í skaut. Fyrst ökum við þó á eftir Skúla og breskum veiðimönnum sem hann er að segja til, upp á efsta svæðið, það níunda. Annar veiðimaðurinn er sá elsti sem Skúli hefur fylgt við veiðar til þessa, á 93. ald- ursári, en þegar hann hefur gengið út í strenginn sem kenndur er við Fagradal, studdur af vaðstaf og tengdasyni, velti- kastar hann fallega út í strenginn og veiðir sig rólega niður hann. Á meðan spjöllum við Skúli saman. Áin er köld í morgunsárið og það er hvítgræn slikja á vatninu. „Við erum viðkvæmir fyrir veðrinu hér í Eystri-Rangá. Það getur verið erfitt þegar mikið rignir því þá skolast áin og eðlilega finnst mörgum veiðimönnum það leiðinlegt,“ segir Skúli. Skyldi askan úr Eyjafjallajökulsgosinu hafa aukið við litinn í ánni í sumar? „Ekki svo mikið. Hún skemmir hins vegar útsýnið ef það er mjög hvasst. Kannski eykur hún eitthvað bráðnunina úr jöklunum. En jöklasýnin hverfur alveg ef það er mjög hvasst.“ Tignarlegur Þrí- hyrningurinn blasir þó við austan við okkur, þar sem við stöndum á miðju sögusviði Njálu. „Oft er áin ekki nema um fjórar gráður þegar við erum að byrja hér upp frá á efri svæðunum. Þá er takan róleg en svo keyrir maður á þetta milli klukkan tíu og eitt og svo aftur síðdegis milli þrjú og átta. Það er aðaltökutíminn, ólíkt því sem gerist í flestum laxveiðiám þar sem takan er best snemma á morgnana og seint á kvöldin. Hitinn hækkar skarpt í ánni yfir daginn en hún er líka fljót að kólna á kvöldin. Öfugt við margar aðrar veiðiár erum við ánægð með sólskin, það hækkar vatnshitann,“ segir hann. Laxveiðin í Eystri-Rangá var sein af stað í sumar, eins og annars staðar. „Hún er yfirleitt sein af stað, miðað við aðrar ár, en hún var óvenjusein að þessu sinni. Núna hefur veiðin hins vegar verið jöfn og góð síðustu vikur, og mjög góð síðustu daga. Svæðin eru misgóð, eins og gengur í laxveiði, en á heildina litið er þetta mjög gott núna,“ segir hann. Laxar á sögusviði Njálu Skúli vissi hvað hann söng, um vatnshit- ann fyrstu klukkustundirnar og að takan hrykki í gang um tíu, það sannreyndum við Martin. Fátt gerðist fyrr en við kom- um á Rangárvað klukkan tíu, gegnt Stóra-Hofi þar sem Mörður Valgarðsson bjó og löngu síðar Einar Benediktsson, en þá setti Martin fljótlega í vænan lax á Bismó-túpu Skúla. Það tók síðan annar á svarta Snældu áður en vaktin var öll. Í hléinu hittum við glaðbeitta breska veiðifélaga yfir hádegismatnum en þeir Rífandi laxveiði á Njáluslóð Skúli Kristinsson leiðsögumaður veður út í streng á níunda svæði sem kenndur er við Fagra- dal, ásamt 92 ára gömlum breskum veiðimanni, Raymond að nafni, og tengdasyni hans. „Öfugt við margar aðrar veiðiár erum við ánægð með sólskin, það hækkar vatnshitann,“ sagði Skúli Kristinsson, leiðsögumaður við Eystri- Rangá, sem liðast um söguslóðir Njálu í Rang- árþingi. Hann sagði satt; þegar vatnshitinn steig fór laxinn að taka. Eystri-Rangá er nú, sem oft áður, sú gjöfulasta á landinu. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Stangveiði

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.