Morgunblaðið - 27.04.2010, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 2010
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | „Ekkert samfélag hef-
ur efni á að vanrækja menntun og
menningu,“ sagði Katrín Jakobsdótt-
ir mennta- og menningarmálaráð-
herra í ræðu við formlega opnun
fræðaseturs Háskóla Íslands á
Skagaströnd og gerði þessi orð Hall-
dórs Laxness að sínum. Fræðasetrið
var formlega opnað á degi bókarinn-
ar föstudaginn 23. apríl að viðstöddu
fjölmenni lærðra og leikra. Við þetta
tækifæri var líka formlega opnuð ný,
velbúin rannsóknarstofa sjávarlíf-
tæknisetursins BioPol sem telja má
byltingu í starfsaðstöðu fyrirtækis-
ins.
Margt fyrirmanna þjóðfélagsins
mætti til þessarar tvöföldu opnun-
arhátíðar. Þar á meðal voru ráð-
herrar sjávarútvegs- og menntamála,
nokkrir þingmenn kjördæmisins, há-
skólarektorar, prófessorar og for-
ystumenn úr atvinnulífinu ásamt
framámönnum úr héraðinu. Hátíðin
fór fram í nýendurbyggðu húsi gamla
kaupfélagsins en þannig vill til að
bæði fræðasetrið og BioPol eru með
starfsaðstöðu sína í húsinu ásamt
fleiri stofnunum.
BioPol rannsakar lífshætti
og útbreiðslu skötusels
Eftir að Lárus Ægir Guðmunds-
son hafði kynnt sögu hússins í stuttu
máli ávörpuðu nokkrir gestanna
samkomuna. Jón Bjarnason sjávar-
útvegsráðherra sagði frá því í sínu
ávarpi að fyrr um daginn hefði Bio-
Pol verið úthlutað styrkjum frá Verk-
efnasjóði sjávarútvegsins á sam-
keppnissviði, meðal annars fimm
milljónum króna til að fylgjast með
og rannsaka lífshætti og útbreiðslu
hins umdeilda skötusels við Ísland.
Halldór Gunnar Ólafsson fram-
kvæmdastjóri BioPol þakkaði fyrir
og fór í stuttu máli yfir helstu verk-
efni sem hinir fimm starfsmenn Bio-
Pol eru að vinna að. Starfsvið fyrir-
tækisins er vítt, því hjá því eru
stundaðar rannsóknir og vöktun á
hrognkelsum, beitukóngi, selum,
kræklingi og hörpudiski ásamt at-
hugunum, greiningu og framleiðslu á
smáþörungum með framtíðarnýtingu
þeirra í huga. Þakkaði Halldór sér-
staklega gott samstarf við Háskólann
á Akureyri og aðrar rannsóknar-
stofnanir á landinu.
Kristín Ingólfsdóttir rektor Há-
skóla Íslands fagnaði opnun fræða-
setursins á Skagaströnd. Fram kom í
máli hennar að með opnuninni væru
slík fræðasetur HÍ orðin átta talsins í
öllum landsfjórðungum en þetta væri
fyrsta setrið sem legði stund á hug-
vísindi, það er sagnfræði og væri
þannig að skoða fortíðina. Forstöðu-
maður fræðasetursins er doktor
Lára Magnúsardóttir. Sagði hún að
nú væri unnið að því hjá fræðasetrinu
að koma á fót verkefnum þar sem
munnleg saga verður í brennidepli.
Starf setursins er enn á skipulags-
stigi enda byrjaði Lára ekki að vinna
að því fyrr en í nóvember. Þakkaði
hún velvilja og stuðning einstaklinga
og fyrirtækja við setrið. Þá gat hún
um höfðinglega gjöf 3000 sagnfræði-
bóka frá Elínu Hannesdóttur ekkju
Halldórs Bjarnasonar sagnfræðings.
Sagði hún það draum sinn að koma á
ýmiss konar endurmenntunar-nám-
skeiðum við setrið.
Anna Agnarsdóttir, formaður
Sögufélags Íslands, óskaði fræða-
setrinu velfarnaðar og færði því bók-
gjöf frá félaginu. Sama gerði Eggert
Þór Bernharðsson fyrir hönd Sagn-
fræðistofnunar.
Formleg opnun fræðaset-
urs og rannsóknarstofu
Morgunblaðið/Ólafur Bernódussson
Fjölmenni Fjölmargir gestir voru viðstaddir formlega opnun fræðaseturs-
ins á Skagaströnd. Í þeim hópi voru meðal annara ráðherrar og rektorar.
HÁTÍÐ Jóns Sigurðssonar var hald-
in í Jónshúsi í Kaupmannhöfn á
sumardaginn fyrsta. Markmiðið með
hátíðinni er að heiðra minningu Jóns
Sigurðssonar og halda á loft verkum
hans og hugsjónum. Stjórn húss
Jóns Sigurðssonar hefur umsjón
með hátíðinni með fulltingi forseta
Alþingis og forsætisnefndar.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti
Alþingis, hélt hátíðarræðu í tilefni
dagsins. Í ræðu sinni fjallaði hún
meðal annars um eldsumbrotin í
Eyjafjallajökli, skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis og samband full-
veldis og Evrópusambandsaðildar.
Þá afhenti forseti Alþingis verðlaun
Jóns Sigurðssonar. Alþingi veitir
verðlaunin í minningu starfa hans í
þágu Íslands og Íslendinga. Þau
hlýtur hverju sinni einstaklingur
sem hefur unnið verk er tengjast
hugsjónum og störfum Jóns forseta.
Verðlaunin hlýtur Sören Langvad
byggingarverkfræðingur, starfandi
stjórnarformaður Pihl og Søn og
einn stofnenda og fyrrverandi
stjórnarformaður íslenska verktaka-
fyrirtækisins Ístaks.
„Sören Langvad hefur stutt
dyggilega við útbreiðslu íslenskrar
menningar á danskri grund og unnið
óeigingjarnt starf í þágu Íslendinga í
Kaupmannahöfn, meðal annars sem
formaður Dansk-islandsk samfund.
Søren hefur verið ötull talsmaður ís-
lenskra hagsmuna og hefur með
ævistarfi sínu eflt vináttu milli Ís-
lands og Danmerkur,“ segir í frétt
frá Alþingi.
Sören
verðlaun-
aður
Ötull talsmaður ís-
lenskra hagsmuna
Athöfn Erik-Skyum Nielsen, verðlaunahafi 2009, Sören Langvad, Guðjón
Friðriksson, verðlaunahafi 2008 og Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.
Jóns forseta var minnst í Kaupmannahöfn
einfalt og gott!
Passionata
pizza
prociutto
199kr.pk.