Morgunblaðið - 25.05.2010, Page 10
HREYFING OG ÚTIVIST
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2010
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Fugla-
skoðun
Þriðjudagskvöldið 25. maí verður farin
fuglaskoðunarferð. Leiðsögumaður er
Hafsteinn Björgvinsson, umsjónarmaður
vatnsverndarsvæða. Þátttakendur eru
hvattir til að taka með sér sjónauka.
Mæting er kl. 19:30 við Minjasafn
Orkuveitunnar í Elliðaárdal og
stendur gangan í rúma tvo tíma.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
05
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af ýmsum ástæðum og er
því bent á að nánari upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þetta kom þannig til að ídesember sameinuðustfjögur fyrirtæki og þaðkrafðist þess að við vær-
um í tveimur húsum. Eftir samein-
ingu kom í ljós að það var töluvert
flakk starfsmanna milli húsa vegna
vinnunnar. Ég veit til þess að það
var starfsmaður sem hnippti í for-
stjórann í matsalnum og stakk
þessu að honum. Það var eins og
við manninn mælt að hann fór
beint í að græja hjól fyrir mann-
skapinn og hann lét ekki þar við
sitja heldur græjaði merktar regn-
hlífar og slár,“ segir Erna Margrét
Arnarsdóttir starfsmaður hjá upp-
lýsingatæknifyrirtækinu Skýrr.
Starfsmenn Skýrr hafa nú að-
gang að um tuttugu hjólum til að
hjóla á milli þeirra tveggja húsa
sem starfsemin er í í Ármúlanum.
Aðeins eru um 200 til 300 metrar á
milli húsanna að sögn Ernu og því
þótti tilvalið að skaffa starfs-
mönnum aðgengi að hjólum í stað-
in fyrir að þeir væru jafnvel að
keyra þennan spotta á milli.
„Til að kynna þetta skemmti-
lega átak kom forstjórinn hjólandi
inn á árshátíðina okkar sem var í
janúar og skreytingarnar á árshá-
tíðinni voru hjólin,“ segir Erna.
Sprækir starfsmenn
hjóla á milli bygginga
Starfsemi upplýsingatæknifyrirtækisins Skýrr er í tveimur húsum í Ármúlanum.
Til að starfsmenn væru ekki að starta bílnum til að fara á milli húsa voru keyptir
hjólfákar fyrir starfsmenn sem þeir nota nú óspart til að ferðast á milli bygginga
en fyrirtækið leggur áherslu á góða heilsu starfsmanna.
Það skiptir miklu máli að halda sér í
formi á hvaða aldri sem er. Fyrir þá
sem eru orðnir miðaldra eru eftirtalin
fimm ráð góð til að halda sér í formi
án þess að þurfa að hafa mikið fyrir
því.
1. Kayptu tilbúinn heilsusamlegan
mat. Þó það virðist vera spreð að
kaupa tilbúið salat eru meiri líkur á að
þú borðir það en það sem þarf að
skera niður þegar þú kemur heim eftir
langan vinnudag.
2. Settu hreyfingu inn í dagskrána á
hverjum degi og hvikaðu hvergi frá
því. Það er alltaf hægt að koma smá
hreyfingu fyrir. Svo er upplagt að æfa
með öðrum, það hvetur alla áfram.
3. Ekki eyða tíma þínum í kalóríuríkan
og vondan mat. Hugsaðu um það sem
þú borðar. Þú hefur val.
4. Ekki ferðast án þess að hafa
íþróttaföt meðferðis. Það er alltaf
möguleiki á að þú komist út að hlaupa
eða labba og það gerir ferðina bara
ánægjulegri.
5. Vigtaðu þig oft. Rannsóknir sýna að
þeir sem vigta sig oftar haldast frekar
í kjörþyngd. Vigtin veitir aðhald.
Heilsa
Reuters
Leikfimi Eldriborgarar í Perú gera leikfimisæfingar.
Fimm góð
og auðveld ráð
Morgunblaðið/Eggert
Fjallahlaup Það er gefandi og gaman að hlaupa í fallegu fjallaumhverfi eins og
þessir hraustu hlauparar gerðu á Landsmóti UMFÍ árið 2004.
Hlaupahátíð verður haldin í annað
sinn á Vestfjörðum helgina 16. til 18.
júlí í sumar. Hátíðin hefst með Ós-
hlíðarhlaupinu kl. 20 á föstudags-
kvöldinu og þá verða hlaupnir 21,1
km og 10 km. Hlaupið verður með
sama sniði og á síðasta ári nema sú
nýbreytni verður nú að 10 km hlaup-
ið hefst á Óshlíðinni sjálfri í staðinn
fyrir í Hnífsdal.
Forskráning er hafin í Óshlíðar-
hlaupið á vefsíðunni Hlaup.com.
Á laugardeginum, 17. júlí, verður 4
km skemmtiskokk og skemmti-
dagskrá á Þingeyri ásamt fræðslu og
kynningu fyrir hlaupara og aðra
gesti. Einnig verður haldin hjólreiða-
keppni frá Þingeyri en þar verður
hjóluð fjallaleið sem er um 55 km
löng. Forskráning í þá keppni hefst
fljótlega á Hlaup.com.
Á sunnudeginum verður Vestur-
gatan hlaupin og er þá hlaupið milli
Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Í því
hlaupi er hægt að velja milli 12 og
24 km í ægifögru umhverfi. Skráning
í það hlaup er hafin.
Riddarar Rósu taka þátt
„Þetta er í sautjánda skipti sem
Óshlíðarhlaupið er haldið. Þátttakan
hefur verið mjög góð og það var
metþátttaka á síðasta ári en þá var
það haldið í fyrsta skipti í tengslum
við hlaupahátíðina,“ segir Guðbjörg
Rós Sigurðardóttir formaður hlaupa-
klúbbsins Riddarar Rósu á Ísafirði.
„Óshlíðarhlaupið er venjulegt götu-
hlaup og það tóku um 200 manns,
sem komu allstaðar að, þátt í því í
fyrra. Vesturgatan er mikið erfiðara
hlaup,“ bætir hún við.
Spurð út í hlaupamenninguna á
Ísafirði segir Guðbjörg að það séu
um 70 til 80 manns í Riddurum Rósu
á Ísafirði og svo sé annar hlaupa-
hópur í Bolungarvík með um þrjátíu
manns.
„Við ætlum að hlaupa öll hlaupin
sem eru í boði á Hlaupahátíðinni.
Hátíðin er líka haldin í frábæru um-
hverfi og þetta eru magnaðar leiðir
sem er verið að hlaupa,“ segir Guð-
björg. ingveldur@mbl.is
Hlaup
Skráning er hafin
í Hlaupahátíðina
á Vestfjörðum 2010