Morgunblaðið - 03.07.2010, Side 1
L A U G A R D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 153. tölublað 98. árgangur
HLÁTUR-
FÁTÆKT
UPPRÆTT
MIÐNÆTUR-
SÓLEY
BÓKABLÓÐ
LIÐ ARGENTÍNU
MÆTIR TIL LEIKS
Í HEFNDARHUG
SUNNUDAGSMOGGINN RISASLAGUR Á HM ÍÞRÓTTIRHLÁTURJÓGA 10
Hvort sem það eru bæjarhátíðir, knattspyrnumót eða
þörfin eftir fersku sveitalofti sem dregur fólk út úr
bænum þá þarf þyngd ökutækja og aftanívagna að vera
í lagi. Lögreglan fylgdist grannt með umferðarþung-
anum í gær enda margir á faraldsfæti. Ferðalangar
ættu ekki að vera í vandræðum með að hafa ofan af fyr-
ir sér og sínum þessa helgi. Meðal bæjarhátíða eru
Írskir dagar á Akranesi, Markaðsdagar í Bolungarvík,
Hamingjudagar á Hólmavík, Dýrafjarðardagar á Þing-
eyri, Goslokahátíð í Eyjum og Humarhátíð á Höfn.
Morgunblaðið/Ómar
Ferðahelgi í þungavigt
Mögulegt fjár-
hagslegt tjón
banka og lána-
stofnana vegna
endurskoðaðra
lánasamninga
gæti numið millj-
örðum, gangi
mestu svart-
sýnisspár eftir.
Verði raunin sú er ekki loku fyrir
það skotið að lánveitendur geti sótt
bætur til lögmanna sem komu að
gerð gengistengdu lánasamning-
anna sem óvissa ríkir nú um. Lög-
menn bera bótaábyrgð á störfum
og starfsmönnum sínum, sam-
kvæmt lögum þar að lútandi frá
1997. Sú ábyrgð er þó breytileg eft-
ir starfsfyrirkomulagi. Þannig er
t.d. eðlismunur á því að starfa sem
hluti af lögfræðisviði lánastofnunar
og að starfa sjálfstætt á stofu.
Sé þeim kleift að sýna fram á
fjárhagslegt tjón sem beina afleið-
ingu af sannanlegu gáleysi lög-
manns í störfum hans er hugs-
anlegt að lánveitendur fleyti hluta
af byrði sinni yfir á lögmenn með
bótakröfu. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru dæmi um það að leitað
hafi verið álits sjálfstætt starfandi
lögfræðinga á þeim lánasamningum
sem nú hafa verið dæmdir ógildir.
Ekki hafi verið fundið að samning-
unum í þeim álitsgerðum, þótt bann
sé við vissum ákvæðum þeirra í
lögum. »22
Krafðir
um háar
bætur?
Lögmenn ekki
hafnir yfir ábyrgð
Ræðukóngur
138. þings Al-
þingis, sem lauk
fyrir skemmstu,
var Pétur H.
Blöndal, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokks. Pétur
kom 696 sinnum í
ræðustól, flutti
197 ræður og tal-
aði samtals í
1.947 mínútur eða í rúmar 32
klukkustundir. Alls komust sjö þing-
menn Sjálfstæðisflokks á lista yfir
þá tíu sem töluðu lengst, tveir þing-
menn Framsóknarflokksins komust
einnig á listann og svo Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Hann er eini ráðherrann sem kemst
á listann, en Steingrímur talaði alls í
1.208 mínútur. Sá þingmaður sem
talaði styst var Lilja Rafney Magn-
úsdóttir, þingmaður VG, en hún kom
26 sinnum í ræðustól og talaði í sam-
tals 68 mínútur. »16
Ræðukóngurinn
talaði alls í 32
klukkustundir
Pétur H.
Blöndal
Þjónusta við fatlaða verður færð
frá ríki til sveitarfélaga og verður
samkomulag þess efnis undirritað í
næstu viku.
Svæðaskipting þjónustunnar
mun þó ekki fylgja línum sveitarfé-
laga, heldur munu smærri sveit-
arfélög fara saman með þjón-
ustuna. Miðað er við að ekki séu
færri en 7.000 íbúar á hverju þjón-
ustusvæði.
„Vestfirðir, þar sem eru níu
sveitarfélög, munu t.d. vinna saman
sem ein heild,“ segir Halldór Hall-
dórsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar. Hann telur
yfirfærsluna gerða á jafnræðis-
grundvelli og með hagsmuni skjól-
stæðinganna í huga. »4
7.000 á hverju
þjónustusvæði
Hjalti Geir Erlendsson
Eyrún Magnúsdóttir
Borgarstjórnarmeirihluti Besta
flokksins og Samfylkingarinnar
nýtur stuðnings 71% borgarbúa.
Þetta sýna niðurstöður nýrrar
könnunar sem Miðlun ehf. vann fyr-
ir Morgunblaðið. Spurt var hvort
fólk styddi nýmyndaðan meirihluta
Besta flokksins og Samfylkingar-
innar. Um 29% svöruðu neitandi.
Stuðningur við meirihlutann er
áberandi í öllum aldurshópum en þó
langmestur meðal ungs fólks. Þann-
ig nýtur borgarstjórnarmeirihlutinn
85,3% stuðnings í aldurshópnum 18
til 24 ára og 76,6% stuðnings í ald-
urshópnum 25 til 34 ára. Heldur
fleiri konur en karlar styðja meiri-
hlutann eða tæp 74% kvenna gegn
68% karla. Í kosningunum 29. maí
hlaut Besti flokkurinn 34,7%
greiddra atkvæða en Samfylkingin
19,1%.
Könnunin var framkvæmd 11. til
28. júní. Svarfjöldi var 680 einstak-
lingar og tóku um 87% afstöðu til
spurningarinnar. Svarendur endur-
spegluðu lýðfræðilega samsetningu
Íslendinga á aldrinum 18 til 75 ára.
Hveitibrauðsdagaáhrif
„Þessi niðurstaða sýnir hefð-
bundin hveitibrauðsdagaáhrif,“ seg-
ir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í
stjórnmálafræði. „Þetta þýðir bara
það að Besti flokkurinn og Samfylk-
ingin fá gott veður í upphafi. Það er
jákvætt fyrir nýjan meirihluta en
svona háar tölur endast nú eig-
inlega aldrei þannig að þessi nið-
urstaða segir ekkert um framhald-
ið, en sýnir þó að borgarbúar
gleðjast enn með Jóni Gnarr,“ segir
hann.
Meirihlutinn með 71% fylgi
Mestur stuðningur meðal ungs fólks Jákvætt fyrir nýjan meirihluta en
ólíklegt er að svona háar tölur endist Fleiri konur en karlar styðja flokkinn
Styður þú nýmyndaðan borgarstjórnar-
meirihluta Samfylkingar og Besta flokksins?
71%
29%
Já, styð meirihlutasamstarf
Samfylkingar og Besta flokksins
Nei, styð ekki meirihlutasamstarf
Samfylkingar og Besta flokksins
Stuðningur meirihlutans eftir aldri
18-24
ára
25-34
ára
35-44
ára
45-54
ára
55-75
ára
8
5
,3
%
76
,6
%
70
,1
%
6
6
,1
%
6
1,
8
%
Ágreinings-
málum sem
skiptastjórar
þrotabúa og
slitastjórnir við
slit fjármálafyr-
irtækja vísa til
dómstóla hefur
fjölgað gríð-
arlega á fyrstu
sex mánuðum
þessa árs og hjá
dómstólunum má búast við að mál-
unum fjölgi enn með haustinu og á
næsta ári. Slík mál eru nefnd X-mál
og geta verið afar þung í vöfum og
tímafrek. Símon Sigvaldason, for-
maður dómstólaráðs, segir að þótt
þingfestum einkamálum hafi fækk-
að á þessu ári sé útlit fyrir að álag í
Héraðsdómi Reykjavíkur muni
stóraukast, bæði vegna X-málanna
og vegna mála sem búist er við að
verði höfðuð af sérstökum saksókn-
ara. »24
Alda erfiðra
dómsmála ekki
skollin á land
Héraðsdómur
Reykjavíkur