Fréttablaðið - 15.10.2011, Blaðsíða 6
15. október 2011 LAUGARDAGUR6
Orka nýrra tíma – helgarnámskeið
12. – 13. nóvember í Reykjavík
19. – 20. nóvember á Flúðum
Áhrif yfirstandandi orkulegra umbreytinga jarðar á daglegt líf okkar
og orkulíkama. Afhverju finnst okkur tíminn líðar hraðar en áður?
Hvaða breytingar verða eftir 2012 og 2032?
Nánar á Viskaoggledi.is s: 615 5710
og Heimurinyjuljosi.is
ÍSAFJÖRÐUR „Þetta hefði farið í
gegnum hvaða íbúðarhús sem er
eins og ekkert væri,“ segir Þorleif-
ur Ágústsson, sem horfði á gríðar-
stór björg hrynja úr Gleiðarhjalla
ofan Ísafjarðarbæjar á fimmtudag
og staðnæmast rétt ofan við íbúa-
byggð.
„Þetta var
svakalegt. Það
er alveg brjál-
æðisleg stærð
á þessu og
þetta fer mjög
nálægt byggð-
inni,“ segir
Þorleifur. „Það
stærsta er eins
og rútubíll.“
Hann segir
björgin hafa
olt ið nokk-
ur hundruð
metra niður
hlíðina, og því
hafi fylgt mikill reykjarmökkur og
læti. „Ég hélt fyrst að þota væri að
fljúga hérna yfir, hávaðinn var svo
svakalegur. Það mynduðust eld-
glæringar þegar þessi björg skullu
saman á leiðinni niður.“
Þorleifur segir björgin öll mann-
hæðarhá og ætla má að þau séu
tugir tonna að þyngd. Það stærsta
ruddi sér leið inn í miðjan trjálund
og átti hann óhægt um vik með að
mynda það.
Þorleifur segist ekki vita til þess
að skelkaðir íbúar á svæðinu séu
farnir að huga að því að reisa varn-
argarð í kjölfar þessa. „En það fór
um marga sem sáu þetta því menn
hafa aldrei upplifað grjóthrun af
þessari stærðargráðu áður.“
stigur@frettabladid.is
Bjarg á við rútubíl
valt niður að byggð
Drunur og eldglæringar fylgdu því þegar mikil björg hrundu úr Gleiðarhjalla
ofan Ísafjarðar á fimmtudag. Sjónarvottur segir að farið hafi um íbúa bæjarins.
HUNDUR OG BJARG Þetta er næststærsti hnullungurinn sem hrundi úr Gleiðarhjalla
í fyrradag. Hundurinn virðist smár við hlið bjargsins. Það stærsta er hins vegar vel
ríflega tvöfalt stærra, falið inni í trjálundi. MYND/ÞORLEIFUR ÁGÚSTSSON
MUNAÐI MJÓU Eins og sjá má á myndinni hefðu björgin ekki þurft að velta mikið
lengra til að brjóta íbúðarhúsnæði í mél. MYND/ÞORLEIFUR ÁGÚSTSSON
Það mynduð-
ust eldglær-
ingar þegar
þessi björg
skullu saman
á leiðinni
niður.
ÞORLEIFUR
ÁGÚSTSSON
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ
VARNARMÁL „Mér þykir þessi skýrsla nú ótrúlega
þunnur þrettándi þegar kemur að varnar- og örygg-
ismálum,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra um skýrslu rannsóknarstofnunar sænska
hersins um ástand öryggismála á Íslandi, sem
Fréttablaðið sagði frá í gær. „Hins vegar gefur hún
góða félags- og sálfræðilega sýn á þjóð í vanda að
lokinni kreppu.“
Össur segir til dæmis varla minnst í skýrslunni á
varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna frá 1951,
sem enn er í fullu gildi, né heldur þá varnaráætlun
sem gerð var fyrir Ísland árið 2006 þegar herinn
fór.
Á septemberþinginu í haust var auk þess sam-
þykkt þingsályktun um mótun þverpólitískrar þjóð-
aröryggisstefnu fyrir Ísland og í mars samþykkti
þingið aðra ályktun um stefnu Íslands í málefnum
norðurslóða.
„Þessi vinna er að fara af stað núna í vetur,“ segir
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefnd-
ar. „En menn skyldu þá líka athuga það að þegar
herinn fór héðan þá var þetta mál ekki á dagskrá
þáverandi ríkisstjórnar. Það hefur engin vinna verið
lögð í þetta fyrr en núna, að við erum að gera það.“
Sænsku sérfræðingarnir ýja einnig að því, í
skýrslu sinni, að Ísland hafi verið að einangra sig
í varnarsamstarfi nágrannaríkjanna með því til
dæmis að taka minni þátt í sameiginlegum heræf-
ingum en til stóð á tímabili.
„Um þetta er auðvitað pólitískur ágreiningur
á Íslandi,“ segir Árni Þór. „Sjálfur er ég þeirrar
skoðunar að slíkt þjóni bara alls ekki hagsmunum
Íslands, þótt þessar heræfingar geti verið mikil-
vægar sem framlag Íslands til NATO.“ - gb
Ráðherra gefur lítið fyrir skýrslu sænska hersins um ástand öryggismála á Íslandi:
Skýrslan ótrúlega þunnur þrettándi
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Vísar gagnrýni rannsóknastofnunar
sænska hersins algerlega á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fylgist þú með bókamessunni
í Frankfurt þar sem Ísland er
heiðursgestur?
Já 18,9%
Nei 81,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sækir þú einhverja atburði í
tengslum við Airwaves-tónlist-
arhátíðina?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
BANDARÍKIN, AP Hundruð mótmæl-
enda í New York fögnuðu ákaft
þegar stjórnvöld í borginni frest-
uðu því að rýma torgið, sem mót-
mælendurnir hafa hafst við á und-
anfarinn mánuð.
Á hinn bóginn hafa borgaryfir-
völd í Denver gripið til aðgerða
gegn hundruðum mótmælenda
skammt frá þinghúsi borgarinn-
ar, fjarlægt tjöld og rýmt götur.
Óttast hafði verið að til átaka
myndi koma í New York ef alvara
hefði verið gerð úr því að rýma
torgið.
Sumir mótmælenda í New York
sögðust þó varla trúa því að þeim
yrði leyft að vera þarna áfram,
þrátt fyrir yfirlýsingar borgar-
yfirvalda.
Fjölmenn mótmæli hafa verið
í New York undanfarnar vikur
gegn græðgi fjármálafyrirtækja
undir kjörorðinu „Leggjum undir
okkur Wall Street“.
Undanfarið hefur mótmælend-
um fjölgað jafnt og þétt og sams
konar mótmæli breiðst út til ann-
arra borga, bæði í Bandaríkjun-
um og Evrópuríkjum. Í dag er
boðað til stærstu mótmælanna af
þessu tagi í tugum borga víða um
heim, þar á meðal hér í Reykjavík.
- gb
Borgarstjórnin í New York frestar því að rýma torg mótmælenda á Manhattan:
Fjölmenn mótmæli boðuð í dag
HANDTÖKUR Í NEW YORK Eitthvað var
um átök í New York í gær þrátt fyrir að
lögreglan hafi hætt við að rýma svæðið.
NORDICPHOTOS/AFP
FÉLAGSMÁL Þing Starfsgreinasam-
bands Íslands mótmælir áformum
um lækkun hlutfalls sem launa-
fólk getur lagt í séreignarsparnað
án þess að borga skatt úr fjórum
prósentum í tvö. „Sá hluti sem er
umfram tvö prósent lendir að mestu
í eignaupptöku stjórnvalda þar sem
bæði inn- og útgreiðsla sparnaðar-
ins verður skattlögð,“ segir þing
Starfsgreinasambandsins.
Þá er „það grímulausa órétt-
læti“ sem íslensk heimili hafi mátt
þola frá hruni sagt óásættanlegt.
„Stórum hluta forsendubrestsins
hefur verið varpað miskunnarlaust
yfir á heimili landsins á sama tíma
og slegin hefur verið skjaldborg
utan um kröfuhafa og erlenda vog-
unarsjóði.“ - gar
Starfsgreinasambandið:
Andmæla tví-
sköttun lífeyris
VIÐSKIPTI Prentun fyrir erlenda
viðskiptavini verður í framtíð-
inni verulegur hluti af veltu Ísa-
foldarprentsmiðju. Þetta segir
prentsmiðjustjórinn Kjartan
Kjartansson, sem nú er staddur á
bókamessunni í Frankfurt.
Ísafold er eina íslenska prent-
smiðjan sem er með eigin bás á
sýningunni.
„Við höfum fengið gríðarlega
góð viðbrögð og höfum varla
undan að taka á móti áhugasöm-
um kaupendum að prentverki,“
segir Kjartan. Útflutningur á
prentverki hafi aukist jafnt og
þétt upp á síðkastið. - sh
Prentverk kynnt í Frankfurt:
Ísafold prentar
fyrir útlendinga
HEFUR EKKI UNDAN Kjartan Kjartansson
hefur staðið í ströngu á bókamessunni
við að kynna íslenskt prentverk.
MYND/ÍSAFOLD
ÍTALÍA, AP Ítalska þingið felldi
vantrauststillögu á Silvio Berl-
usconi forsætisráðherra með 316
atkvæðum gegn 301.
Munurinn er mjór og getur
bent til þess að Berlusconi eigi
erfitt með að koma nauðsynleg-
um aðgerðum í efnahagsmálum í
gegnum þingið á næstunni.
Staða Berlusconis hefur
versnað mjög undanfarið vegna
hneykslismála og gagnrýni á
efnahagsaðgerðir hans. Fyrr-
um stuðningsmenn hans taka nú
undir kröfur um afsögn. - gb
Berlusconi stendur tæpt:
Vantraust
naumlega fellt
BERLUSCONI Á ÞINGI Hafnar vantrausti á
sjálfan sig. NORDICPHOTOS/AFP
FORNLEIFAR Breskir og bandarískir
vísindamenn hafa lokið nýjustu
rannsóknum á Tyrannosaurus
Rex, eða grameðlunni, sem leiða í
ljós að hún var um 30 prósentum
þyngri en áður var talið.
Helsta viðfang rannsóknarinnar
var eðlan Sue, fullorðin grameðla,
sem nú er til sýnis í Chicago. Vís-
indamennirnir komust einnig að
því að á unglingsárum sínum hafi
eðlan stækkað tvisvar sinnum
hraðar en fyrri rannsóknir bentu
til. Á aldrinum 10 til 15 ára þyngd-
ist Sue um fimm kíló á dag. - sv
Ný gögn um grameðluna:
Töluvert stærri
en talið var
Sló mann með kúbeini
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega
tvítugan mann fyrir að berja annan
mann ítrekað með kúbeini í höfuð
og háls. Fórnarlambið hlaut þrjú sár
aftanvert á höfuðið við árásina.
DÓMSMÁL
Óhapp á Skaga
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni
í beygju á Akranesi um eitt leytið í
gær. Talið er að ökumaðurinn hafi
verið á of mikilli ferð þegar óhappið
varð. Bíllinn hafnaði uppi á umferð-
areyju. Ökumaður var einn í bílnum
og slapp ómeiddur, að því er segir á
vef Skessuhorns.
LÖGREGLUMÁL
KJÖRKASSINN