Fréttablaðið - 15.10.2011, Side 25
LAUGARDAGUR 15. október 2011 25
arionbanki.is – 444 7000
ÍS
LE
NS
KA
SI
A.
IS
A
RI
56
79
9 1
0/
11
Við viljum sjá þig
Staðreyndin er sú að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki
fimm sinnum fyrr. Flest eigum við endurskinsmerki ofan í skúffu, en
þau koma aðeins að gagni séu þau notuð. Gætum að því að börnin
okkar noti endurskinsmerki.
Arion banki gefur endurskinsmerki sem nálgast má í öllum útibúum
bankans, í samstarfi við Umferðarstofu. Þeir sem búa fjarri útibúum
bankans geta sent tölvupóst á fraedsla@us.is og fengið merkin send.
Nældu þér í endurskinsmerki í næsta útibúi bankans.
Fréttablaðið og Vísir hvetja les-
endur til að leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð, að hámarki um 4.500 tölvu-
slög með bilum. Aðeins er tekið
við yfirlesnum og villulausum
texta. Greinahöfundar eru beðnir
að hafa í huga að því styttri sem
greinin er, þeim mun líklegra er að
hún fái skjóta birtingu.
Eingöngu er tekið við raunveru-
legum umræðugreinum, en ekki
greinum sem eru fyrst og fremst
kynning á til dæmis fyrirtæki eða
félagasamtökum, ráðstefnu eða
átaki. Tekið er á móti efni á net-
fanginu greinar@frettabladid.is
eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna
má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn
ákveður hvort efni birtist í Frétta-
blaðinu eða á Vísi eða í báðum
miðlum að hluta eða í heild. Áskil-
inn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Sendið
okkur línu
Í dag býr stór hópur þessa sam-félags við þunga skuldabyrði,
aðallega vegna fjármálahruns,
verðbólguskots og gífurlegrar
hækkunar á verðtryggðum lánum.
Ungt fólk er stór hluti þessa hóps,
sem í mörgum tilvikum fær ekki
úrlausn sinna mála með þeim
aðgerðum sem stjórnvöld hafa boðið
upp á. Aðgerðir sem flestar ganga
út á að leysa greiðsluvanda, ekki
skuldavanda. Við, höfundar þessar
greinar, tilheyrum þessum hópi. Við
erum ungt fólk, sem fór út á fast-
eignamarkaðinn á árinu 2004-2008
til að kaupa okkar fyrstu eign. Við
erum lánsveðshópurinn sem fell-
ur ekki undir 110% leiðina, sem á
sama tíma horfir á skuldabaggann
stækka vegna skerðingar á kaup-
mætti, skattahækkana, hækkana á
þjónustugjöldum, allt á meðan laun
hafa lækkað eða staðið í stað.
Hver er vandi ungs fólks?
Meðan húsnæðisverð blés út á árun-
um 2003-2008 buðust fáir valkost-
ir við séreignakerfið. Eina leiðin
til að vera með á húsnæðismarkaði
var að taka lán og kaupa fasteign.
Ýmsar aðstæður gerðu það að verk-
um að húsnæðisverð hækkaði hratt
og taka þurfti áður óþekkt hlutfall
kaupverðsins að láni. Það sem enn
fremur setti hóp fyrstu kaupenda í
einkennilega aðstöðu var að mark-
aðsverð fasteigna fór langt fram úr
matsverðinu sem yfirleitt gaf veð-
rými eignanna.
Þetta voru algerlega nýir tímar
á húsnæðismarkaði. Ódýrasta leið-
in til að brúa bilið var að fá lánað
veðrými til dæmis hjá foreldrum
og taka lán út á það. Bönkum og líf-
eyrissjóðum nægði sem sagt ekki
að taka veð í því sem verið var að
kaupa heldur þurftu að fá frekari
tryggingar fyrir sínu. Þess má geta
að í dag hefur þetta lánsveðsfyrir-
komulag verið bannað. Það er því
ljóst að fasteignakaupendur á fyrstu
eign á árunum 2004-2008 eru raun-
veruleg fórnarlömb fasteignaból-
unnar.
Hvað er ósanngjarnt
við lausnina í dag?
Ýmislegt hefur verið gert til að
bæta stöðu skuldara. En snarlækk-
að eignaverð og lán sem bólgnað
hafa út hafa skilið marga Íslend-
inga eftir í ómögulegri stöðu. Það
sem verra er er að margt ungt fólk
er án úrræða til að leysa úr sínum
málum á sanngjarnan hátt. 110%
leiðin undanskilur nefnilega algeng-
ustu fjármögnunarleið ungs, eigna-
lauss fólks sem er lánsveðið. Því er
unga fólkið enn í ómögulegri stöðu
og hún fer versnandi. Aðgerðir
stjórnvalda hafa eingöngu miðast
við að leysa fólk í djúpum skulda-
vanda úr sinni krísu. Fyrstu kaup-
endur íbúða, fólk sem er að taka
sín fyrstu skref á fasteignamark-
aði hefur ekki hlotið neina sérstaka
athygli. Það sem gerir 110% leið-
ina enn ósanngjarnari er að hún er
útfærð með ólíkum hætti milli fjár-
málastofnana. Þá var hún illa kynnt
almenningi og fór seint af stað.
Allt þetta hefur eftirlitsnefnd um
skuldavandamál gagnrýnt í skýrslu
sinni skýrt og skilmerkilega. En
allt kemur fyrir ekki, stjórnvöld
og þingflokkar stjórnarflokkanna
þegja þunnu hljóði yfir vandanum.
Það er þó unga fólkið sem á að
halda uppi hagvexti næstu ára
og halda landinu í byggð. Ungu,
grandvöru fólki sem jafnvel lagði
fram reiðufé í íbúðir sínar hefur
beinlínis verið refsað. Á meðan var
bankainnistæðum eldra fólks bjarg-
að krónu fyrir krónu, jafnvel fé sem
fékkst fyrir endurfjármögnuð lán
sem síðar hafa verið felld niður.
Mættum við vinsamlegast hafna
slíku kynslóðalotteríi.
Hvað viljum við gera?
Sanngirni er þörf, ekki bara
milli einstaklinga heldur milli
kynslóða. Sagan af 110% leið-
inni eins og við þekkjum hana
er saga óréttlætis og ójöfnuðar,
sem hefur valdið því að við getum
ekki annað en látið í okkur heyra.
Við viljum málefnalega umræðu
án upphrópana um það hvernig
ungt fólk sér þessi mál og hvern-
ig stjórnvöld sjá framtíðina fyrir
sér.
Við efnum því til fundar um
þetta málefni þar sem allt ungt
fólk er boðið til umræðna um
skuldavandann og framtíðina –
óháð pólitískum flokkadráttum
þriðjudaginn 18. október kl. 20.00
í Sjóminjasafninu.
Lánleysi kynslóðanna
Fjármál
Eva H.
Baldursdóttir
lögfræðingur
Sverrir
Bollason
verkfræðingur
Það er því ljóst
að fasteignakaup-
endur á fyrstu eign á
árunum 2004-2008 eru
raunveruleg fórnarlömb
fasteignabólunnar.